Sigríður Sigvaldadóttir (1912-1966) Brekkulæk, Miðfirði

Original Digital object not accessible

Identity area

Type of entity

Person

Authorized form of name

Sigríður Sigvaldadóttir (1912-1966) Brekkulæk, Miðfirði

Parallel form(s) of name

    Standardized form(s) of name according to other rules

      Other form(s) of name

        Identifiers for corporate bodies

        Description area

        Dates of existence

        5.10.1912 - 14.11.1966

        History

        Hún var fædd að Brekkulæk 1 Miðfirði hinn 5. október 1912, dóttir hjónanna þar, Sigvalda Björnssoner bónda og Hólmfríðar Þorvaldsdóttur prests að Melstað. Á Brekkulæk voru átthagar hennar. Þar lék hún, Iítil stúlka, sína æskuleiki í glöðum systkinahópi á gróandi grundum við hina lygnu, tæru Miðfjarðará. Mjúkar, hugþekkar línur Miðfjarðardalanna og hæðanna þar umhverfis hafa efalaust átt sinn þátt í að móta skapgerð hennar. Mjallhvítur jökullinn í suðri, aðalsmerki útsýnisins, er sem tákn um þá heiðríkju hugans, er hún bar með sér til æviloka — og var einnig hennar aðalsmerki. En æskuárin liðu. Vinnan og starfið tóku við, þjónustan við foreldra og systkini.

        Places

        Brekkulækur í Miðfirði
        Hvammstangi
        Reykjavík

        Legal status

        Ung að árum stundaði hún nám í héraðsskólanum að Laugum og aflaði sér haldgóðrar alþýðumenntunar. Nokkru síðar lærði hún sjúkrahjálp í Akureyrarspítala. Eftir það starfaði hún um árabil að hjúkrun, einkum heimahjúkrun, í Vestur-Húnavatnssýslu.

        Functions, occupations and activities

        Matráðskona

        Mandates/sources of authority

        Internal structures/genealogy

        Foreldrar; Sigvaldi Björnsson 16.11.1873 - 13.12.1945. Bóndi og trésmiður á Brekkulæk í Miðfirði, V-Hún. Tökubarn á Efri-Þverá, Vesturhópshólasókn, Hún. 1880. Bóndi og trésmiður á Hvammstanga, Kirkjuhvammssókn, Hún. 1901. Bóndi á Brekkulæk, Melstaðarsókn, V-Hún. 1930 og kona hans; Hólmfríður Þorvaldsdóttir 28. júlí 1877 - 26. júlí 1959. Húsfreyja á Brekkulæk í Miðfirði. Var á Melstað, Melstaðarsókn, Hún. 1880. Var á Mel, Melssókn í Miðfirði, Hún. 1901. Húsfreyja á Brekkulæk, Melstaðarsókn, V-Hún. 1930.
        Systkini;
        1) Björn Sigvaldason 16.2.1902 - 12.5.1993. Bóndi, lengst í Bjarghúsum í Vesturhópi, síðar verkamaður og loks kirkjuvörður í Reykjavík. Verkamaður á Hvammstanga 1930. Síðast bús. í Reykjavík. Kona hans 1930; Guðrún Teitsdóttir 21.1.1906 - 9.7.1988. Vinnukona í Víðidalstungu, Víðidalstungusókn, V-Hún. 1930. Heimili: Hvammstangi. Síðast bús. í Reykjavík.
        2) Þorvaldur Sigvaldason 3.11.1903 - 21.1.1927
        3) Jóhann Frímann Sigvaldason 1.8.1905 - 30.6.1992. Daglaunamaður í Reykjaskóla, Staðarsókn, V-Hún. 1930. Barnakennari víða um land, lengst í Miðfirði. Bóndi á Brekkulæk í Miðfirði. Síðast bús. í Ytri-Torfustaðahreppi.
        4) Svanborg Sigvaldadóttir 29.10.1908 - 12.7.2007. Var á Brekkulæk, Melstaðarsókn, V-Hún. 1930. Framreiðslustúlka og sjúkrahússtarfsmaður í Reykjavík.
        5) Gyðríður Sigvaldadóttir 6.6.1918 - 11.7.2007. Var á Brekkulæk, Melstaðarsókn, V-Hún. 1930. Leikskólastjóri í Reykjavík. Hlaut hina íslensku fálkaorðu fyrir störf í þágu barna og uppeldismála. Fósturdóttir: Þórbjörg Árný Oddsdóttir f. 1.9.1952.

        Sonur hennar, faðir Kristján Finnur Jónsson 30. okt. 1902 - 29. sept. 1971. Kaupmaður á Óðinsgötu 4, Reykjavík 1930. Ekkill. Kaupmaður í Reykjavík 1945. Síðar skrifstofumaður í Reykjavík;
        1) Sigvaldi Kristjánsson 25. nóv. 1946 kona hans; Sigríður Ármannsdóttir 12. okt. 1947, þau skildu

        General context

        Relationships area

        Access points area

        Subject access points

        Place access points

        Occupations

        Control area

        Authority record identifier

        HAH08784

        Institution identifier

        IS HAH

        Rules and/or conventions used

        Að venju eru upplýsingar frá Íslendingabók notaðar, ef þær stangast á við aðrar upplýsingar er þeim bætt við innan hornklofa [ ], ekki er tekin afstaða til mismunandi upplýsinga.

        Status

        Final

        Level of detail

        Full

        Dates of creation, revision and deletion

        GPJ skráning 13.8.2022

        Language(s)

        • Icelandic

        Script(s)

          Sources

          ®GPJ ættfræði 13.8.2022
          Íslendingabók
          Ftún bls. 395
          Guðfræðingatal 1847-1976 bls 474
          mbl 15.11.1966. https://timarit.is/page/1379940?iabr=on
          mbl 13.5.2015. https://www.mbl.is/greinasafn/grein/1553197/?item_num=2&searchid=1c899be6c6629b1864251fc8b0e77477277b7d1f

          Maintenance notes