Þórmar Guðjónsson (1929-2013) vélsmiður Njarðvík

Original Digital object not accessible

Identity area

Type of entity

Person

Authorized form of name

Þórmar Guðjónsson (1929-2013) vélsmiður Njarðvík

Parallel form(s) of name

    Standardized form(s) of name according to other rules

      Other form(s) of name

        Identifiers for corporate bodies

        Description area

        Dates of existence

        22.3.1929 - 13.10.2013

        History

        Þórmar Guðjónsson 22. mars 1929 - 13. okt. 2013. Var á Siglufirði 1930. Vélvirki, verkstæðisformaður og sjálfstæður atvinnurekandi í Keflavík.
        Þórmar fæddist á Dalvík 22. mars 1929.
        Hann lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 13. október 2013. Útför Þórmars fór fram frá Ytri-Njarðvíkurkirkju 18. október 2013, og hófst athöfnin kl. 14.

        Places

        Legal status

        Lengst af ólst Þórmar upp á Siglufirði og Húsavík en síðar lá leið hans til Njarðvíkur þar sem hann hóf vélvirkjanám hjá Vélsmiðju Njarðvíkur. Lauk hann námi sínu 1954 og fór í framhaldsnám í rafsuðu og verkstjórn hjá The Lincoln Electric Company Cleveland, Ohio, USA 1958 og sérnám í Englandi 1961.

        Functions, occupations and activities

        Þórmar vann mörg ár sem verkstæðisformaður hjá ÍAV, allt þar til hann stofnaði Malarnám Njarðvíkur ásamt Hilmari Svani Guðjónssyni. Síðar rak Þórmar fyrirtækið á eigin vegum eða til ársins 1997 þegar hann lét af störfum. Árið 1957 stofnaði hann ásamt öðrum Járn- og pípulagningaverktaka Keflavíkur og var lengi í stjórn fyrirtækisins.

        Mandates/sources of authority

        Hann var einn af stofnendum Sjálfstæðisfélags Njarðvíkur og sat í stjórn þess fyrstu árin. Þórmar var meðlimur og heiðursfélagi í Lionsklúbbi Njarðvíkur.

        Internal structures/genealogy

        Foreldrar; Guðjón Jónsson 1. sept. 1898 - 30. nóv. 1977. Bifreiðarstjóri í Reykjavík og á Siglufirði, bóndi í Málmey í Skagafirði, síðar framkvæmdastjóri í Kópavogi. Bílstjóri á Siglufirði 1930 og kona hans; Magnea Halldórsdóttir 22. mars 1896 - 8. maí 1984. Húsfreyja á Siglfirði og Dalvík, einnig í Málmey 1941-1944. Síðast bús. í Reykjavík.

        Systkini:
        1) Jón Guðjónsson 20. jan. 1924 - 8. des. 2005. Sjómaður og útgerðarmaður, síðast bús. á Siglufirði. Var á Siglufirði 1930.
        2) Halldór Grétar Guðjónsson 12. apríl 1925 - 9. nóv. 2011. Var á Siglufirði 1930. Vélstjóri og stýrimaður í Reykjavík og á Seltjarnarnesi, síðast bús. í Hafnarfirði.
        3) Bogi Þórir Guðjónsson 30. sept. 1926 - 19. apríl 2015. Var á Siglufirði 1930. Vélvirkjameistari og sjálfstæður atvinnurekandi í Kópavogi.
        4) Hlín Guðjónsdóttir 8.2.1931.
        5) Einar Ingi Guðjónsson 24. sept. 1932 - 16. jan. 2004. Skipstjóri og stýrimaður í Reykjavík.
        6) Hilmar Friðrik Guðjónsson 23. apríl 1934 - 7. nóv. 2010. Búfræðingur, sjálfstæður atvinnurekandi og starfaði síðar lengi hjá Osta- og smjörsölunni í Reykjavík.
        7) Bragi Guðjónsson 22. jan. 1936 - 8. apríl 2010. Kjörbarn: Kristján Bragason, f.11.11.1960.
        8) Elísa Dagbjört Guðjónsdóttir 16.10.1937.

        Kona hans 1951; Guðrún Stefánsdóttir 24. jan. 1930 - 13. mars 2010. Húsfreyja í Keflavík.

        Börn;
        1) Elías Þórmarsson, kvæntur Önnu Eyjólfsdóttur Knudsen, börn þeirra eru Jóhanna, Erla Knudsen, Pétur og Arnþór.
        2) Jóhanna Þórmarsdóttir, gift Birni Kristinssyni, börn þeirra eru Guðrún Þóra , Hildur og Kristinn.
        3) Árni Geir Þórmarsson, kvæntur Lindu Stefánsdóttur, börn þeirra eru María Kristbjörg og Þórmar.
        4) Adda Þórunn Þórmarsdóttir, gift Frederick Plott, börn þeirra eru Rósa Anna og Mark Allen.
        5) Gunnar Þór Þórmarsson, kvæntur Jennýju Olgu Eggertsdóttur, þau eiga dæturnar Jóhönnu Sigríði og Lovísu Ósk.

        General context

        Relationships area

        Related entity

        Reykjaskóli í Hrútafirði

        Identifier of related entity

        Category of relationship

        associative

        Dates of relationship

        1945-1946

        Description of relationship

        nemi þar

        Access points area

        Subject access points

        Place access points

        Occupations

        Control area

        Authority record identifier

        HAH07336

        Institution identifier

        IS-HAH

        Rules and/or conventions used

        Að venju eru upplýsingar frá Íslendingabók notaðar, ef þær stangast á við aðrar upplýsingar er þeim bætt við innan hornklofa [ ], ekki er tekin afstaða til mismunandi upplýsinga.

        Status

        Final

        Level of detail

        Full

        Dates of creation, revision and deletion

        GPJ skráning 27.9.2023

        Language(s)

        • Icelandic

        Script(s)

          Maintenance notes