Þorbjörg Jónsdóttir (1917-2005) Sauðárkróki

Original Digital object not accessible

Identity area

Type of entity

Person

Authorized form of name

Þorbjörg Jónsdóttir (1917-2005) Sauðárkróki

Parallel form(s) of name

    Standardized form(s) of name according to other rules

      Other form(s) of name

        Identifiers for corporate bodies

        Description area

        Dates of existence

        2.1.1917 - 14.12.2005

        History

        Þorbjörg Jónsdóttir fæddist á Sauðárkróki 2. janúar 1917. Síðustu árin bjó hún á hjúkrunarheimilinu Sóltúni í Reykjavík og naut þar hlýju og umönnunar. Ógift barnlaus.
        Hún lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni í Reykjavík 14. desember 2005. Þorbjörg var jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík 27.12.2005 og hófst athöfnin klukkan 13.

        Places

        Sauðárkrókur, Reykjavík

        Legal status

        Þorbjörg ólst upp á Sauðárkróki, lauk gagnfræðaprófi frá Menntaskólanum á Akureyri 1937, lauk námi við Hjúkrunarkvennaskóla Íslands í september 1944. Hún stundaði verklegt framhaldsnám í skurðlækningum við Landspítalann 1944-45 og bóklegt og verklegt nám í barnahjúkrun og öðrum sérgreinum hjúkrunar í Chicago 1946-47, bóklegt og verklegt nám við barnahjúkrun og deildarstjórn við háskóla í St. Louis 1947-48, tók hluta af kennaranámi við New York University School of Education en lauk hjúkrunarkennaranámi við Battersea Polytechnic Department of Hygiene and Public Health í London í júlí 1953. Hún kynnti sér rekstur sjúkrahúsa og hjúkrunarskóla í London og nágrenni árið 1953 og þróun í grunn- og framhaldsmenntun í hjúkrunarfræðum í Englandi og Skotlandi haustið 1973. Hún sótti fjölmörg námskeið í kennslufræði og stjórnun í Háskóla Íslands og víðar.

        Functions, occupations and activities

        Hún var hjúkrunarkona við Landspítalann á röntgendeild og lyflækningadeild haustið 1945-46, deildarhjúkrunarkona við sjúkrahúsið á Akureyri hluta árs 1945. Hún var kennari við Hjúkrunarskóla Íslands 1948-1953 og skólastjóri Hjúkrunarskóla Íslands frá 1.1. 1954 til 31.3. 1983, þar af í starfsleyfi 1977-78. Þorbjörg brautskráði alls 54 sinnum, alls 1.477 hjúkrunarfræðinga.

        Mandates/sources of authority

        Hún var gerð að heiðursfélaga í Hjúkrunarfélagi Íslands 1981. Hún átti sæti í stjórn félagsins 1948-52, ritari í stjórninni í tvö ár. Hún var formaður nefndar sem menntamálaráðherra skipaði 1970, sem kanna skyldi möguleika á háskólanámi í hjúkrunarfræði, formaður nefndar sem skipuð var af sama aðila 1974 sem endurskoða skyldi gildandi löggjöf um hjúkrunarnám í landinu og sat í nefnd sem menntamálaráðherra skipaði 1973 til að semja drög að reglugerðarákvæðum um nám í hjúkrunarfræðum á vegum Háskóla Íslands. Hún var í ritnefnd "Sögu Hjúkrunarskóla Íslands" sem út kom 1990. Þorbjörg var formaður Minningarsjóðs Kristínar Thoroddsen frá stofnun hans.

        Internal structures/genealogy

        Foreldrar hennar voru Jón Þ. Björnsson kennari og skólastjóri á Sauðárkróki, f. í Háagerði í A-Húnavatnssýslu 15. ágúst 1882, d. í Reykjavík 21. ágúst 1964, og Geirlaug Jóhannesdóttir, f. á Jökli í Eyjafirði 28. júlí 1892, d. á Sauðárkróki 6. apríl 1932.
        Jón kvæntist aftur árið 1940 Rósu Stefánsdóttur húsmæðrakennara, f. 10. október 1895, d. 14. júlí 1993. Fósturbarn þeirra er sonardóttir Jóns og konu hans Geirlaugar, Geirlaug Björnsdóttir.
        Systkini Þorbjargar eru:
        1) Stefán arkitekt, f. 16. október 1913, d. 11. mars 1989, kvæntur Ernu Ryel vefara, f. 8. ágúst 1914, d. 24. maí 1974.
        2) Jóhanna Margrét húsfreyja, f. 2. febrúar 1915, d. 22. mars 1985, gift John Kristian Bjerkli, f. 28. febrúar 1913, d. 29. maí 1952.
        3) Sigurgeir gjaldkeri, f. 30. ágúst 1918, d. 25. janúar 1996.
        4) Björn læknir, f. 21. maí 1920, d. 19. febrúar 1995, kvæntur Iris Muriel Fitzgerald, f. 28. júní 1926.
        5) Ragnheiður Lilja húsfreyja, f. 14. apríl 1923, gift Robert Francis Martin trésmið, f. 3. apríl 1916, d. 21. febrúar 1993.
        6) Gyða húsfreyja, f. 4. ágúst 1924, gift Ottó A. Michelsen forstjóra, f. 10. júní 1920, d. 11. júní 2000.
        7) Jóhannes Geir listmálari, f. 24. júní 1927, d. 29. júní 2003.
        8) Ólína Ragnheiður húsfreyja, f. 7. október 1929, gift Magnúsi Óskarssyni hrl., f. 10. júní 1920, d. 23. janúar 1999.
        9) Geirlaugur bókbindari, f. 29. mars 1932, kvæntur Jóhönnu Jóhannsdóttur, f. 22. október 1922.

        General context

        Ólst upp á Sauðárkróki. Var á Sauðárkróki 1930. Nam við Hjúkrunarkvennaskóla Íslands og stundaði síðan framhaldsnám í barnahjúkrun og öðru tengdu hjúkrun og kennslu í Chicago 1946-47, í St. Louis 1947-48 og einnig í New York. Lauk síðan hjúkrunarkennaranámi í London 1953. Hjúkrunarkona á röntgendeild og lyflækningadeild Landspítalans 1945-46, deildarhjúkrunarkona við sjúkrahúsið á Akureyri hluta árs 1945. Kennari við Hjúkrunarskóla Íslands 1948-1953 og skólastjóri Hjúkrunarskóla Íslands 1954-1983, þar af í starfsleyfi 1977-78. Vann mikið að félagsmálum hjúkrunarfræðinga og sat í nefndum sem mótuðu nám hjúkrunarfræðinga á Íslandi. Síðast bús. í Reykjavík.

        Relationships area

        Access points area

        Subject access points

        Place access points

        Occupations

        Control area

        Authority record identifier

        HAH08754

        Institution identifier

        IS HAH

        Rules and/or conventions used

        Status

        Level of detail

        Full

        Dates of creation, revision and deletion

        GPJ skráning 30.12.2021

        Language(s)

        • Icelandic

        Script(s)

          Sources

          Maintenance notes