Þorbjörg Fríðhólm Friðriksdóttir (1951-2010) Kópavogi og Sandgerði

Original Digital object not accessible

Identity area

Type of entity

Person

Authorized form of name

Þorbjörg Fríðhólm Friðriksdóttir (1951-2010) Kópavogi og Sandgerði

Parallel form(s) of name

  • Þorbjörg Elín Fríðhólm Friðriksdóttir (1951-2010) Kópavogi og Sandgerði

Standardized form(s) of name according to other rules

    Other form(s) of name

      Identifiers for corporate bodies

      Description area

      Dates of existence

      6.10.1951 - 15.12.2010

      History

      Þorbjörg Elín Fríðhólm Friðriksdóttir fæddist 6. október 1951 í Kópavogi. Verslunarstarfsmaður og verslunarstjóri, síðast bús. í Sandgerði.
      Kvsk á Blönduósi 1968-1969. Þorbjörg og Rúnar stofnuðu sitt fyrsta heimili í Reynihvammi 9 í Kópavogi á efri hæðinni hjá Erlu og Hallbirni. Þau bjuggu á Reykjavíkursvæðinu til ársins 1981 en byggðu sér svo hús í Sandgerði og hafa búið þar síðan.

      Hún lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 15. desember 2010. Útför Þorbjargar fór fram í kyrrþey hinn 21. desember 2010 að ósk hinnar látnu.

      Places

      Kópavogur
      Sandgerði

      Legal status

      Hún lauk grunnskólaprófi frá Kópavogsskóla
      Kvsk á Blönduósi 1968-1969.

      Functions, occupations and activities

      Hún hóf starfsferil sinn í Kron á Hlíðarvegi í Kópavogi fjórtán ára gömul. Hún vann síðan mestan hluta ævi sinnar við verslunarstörf og var m.a. verslunarstjóri hjá Kaupfélagi Suðurnesja í Garðinum í sjö ár. Þorbjörg endaði starfsferil sinn hjá Veitingaþjónustu IGS, Keflavíkurflugvelli, árið 2005, en þá varð hún að hætta störfum vegna veikinda sinna.

      Mandates/sources of authority

      Þorbjörg var ötul í félagsstarfi og var m.a. í kvenfélaginu Hvöt, Sandgerði til marga ára, vann nefndarstörf fyrir sveitarfélagið og var heiðruð á 1. maí fyrir störf sín í þágu verkalýðsins fyrir Verslunarmannafélag Suðurnesja

      Internal structures/genealogy

      Foreldrar; Friðrik Björnsson 2. mars 1927 - 17. jan. 2004. Var í Tjarnarkoti, Hvalsnessókn, Gull. 1930. Rafvirkjameistari í Sandgerði og kona hans 8.4.1950; Þórhildur Sigurðardóttir 10. júlí 1927 - 23. des. 2010. Var í Bráðræðisholti, í Húsi Sigurðar Benediktssonar, Reykjavík 1930. Hárgreiðslumeistari og húsfreyja í Sandgerði.
      Systkini;
      1) Steinunn Fríðhólm, f. 17. ágúst 1948, verslunarmaður á Skagaströnd, gift Gunnlaugi Sigmarssyni, f. 26. júní 1949, bankaútibússtjóra. Börn þeirra eru Jóhanna, f. 15. maí 1970, og Ragnar Friðrik, f. 8. feb. 1974.
      2) Sigurður Sævar Fríðhólm, f. 18. des. 1949, rafvirkjameistari Sandgerði, kvæntur Sólrúnu Bragadóttur, f. 26. júní 1950, rannsóknarmanni. Börn þeirra eru Þórhildur, f. 1. jan. 1969, Bragi Páll, f. 13. ágúst 1971, Sigursteinn, f. 27. apríl 1975, og Sigrún, f. 26. okt. 1980.
      3) Jón Fríðhólm, f. 10. nóv. 1954, ketil- og plötusmiður í Hafnarfirði, kvæntur Ölmu Jónsdóttur, f. 17. apríl 1955, læknaritara. Börn þeirra eru Jónas, f. 11. mars 1974, og Eiríkur, f. 18. júlí 1983.
      4) Friðrik Þór, f. 12. nóv. 1961, rafvirkjameistari í Sandgerði, kvæntur Mörtu Eiríksdóttur, f. 1. maí 1961, kennara, sonur hans er Hafsteinn Þór Fríðhólm, f. 13. des. 1983, dóttir Mörtu er Hrafnhildur Ása Karlsdóttir, f. 23. nóv. 1990.
      5) Fanney, f. 7. nóv. 1964, verslunarstjóri í Keflavík, dætur hennar eru Hildur Mekkín Draupnisdóttir, f. 10. apríl 1987, og Dagný Lind Draupnisdóttir, f. 9. júlí 1993.
      6) Heiður Huld, f. 6. maí 1967, skrifstofumaður í Vogum, gift Eiði Þórarinssyni, f. 24. okt. 1953, vinnuvélstjóra, dóttir þeirra er Kolbrún Sunna, f. 25. okt. 1991, dóttir Heiðar er Valgerður Ósk Ásbjörnsdóttir, f. 9. des. 1988.

      Maður hennar 18.12.1971; Rúnar Þórarinsson 27.5.1950 starfsmaður IGS á Keflavíkurflugvelli. Rúnar er sonur hjónanna, Þórarins Árnasonar, f. 24. maí 1924, og Vagnbjargar Jóhannsdóttur, f. 1. september 1925, d. 3. maí 2005.

      Börn Þorbjargar og Rúnars eru:
      1) Erla Björg, f. 14. nóvember 1970, kennari, búsett í Sandgerði, gift Egil Aagaard-Nilsen, f. 13. desember 1964, sölumanni í heildverslun. Börn þeirra eru Anja Rún, f. 23. nóvember 1991, Hélène Rún, f. 19. desember 1994 og Daníel, f. 7. febrúar 2002.
      2) Hallbjörn Valgeir, f. 13. júní 1981.

      General context

      Relationships area

      Related entity

      Unnur Ljósbjörg Benediktsdóttir (1902-1925) Blönduósi (9.5.1902 - 28.10.1925)

      Identifier of related entity

      HAH05314

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Unnur Ljósbjörg Benediktsdóttir (1902-1925) Blönduósi is the cousin of Þorbjörg Fríðhólm Friðriksdóttir (1951-2010) Kópavogi og Sandgerði

      Dates of relationship

      1951

      Description of relationship

      afi Þorbjargar var Siguðru Hólm Friðhólm

      Access points area

      Subject access points

      Place access points

      Occupations

      Control area

      Authority record identifier

      HAH08581

      Institution identifier

      IS HAH

      Rules and/or conventions used

      Að venju eru upplýsingar frá Íslendingabók notaðar, ef þær stangast á við aðrar upplýsingar er þeim bætt við innan hornklofa [ ], ekki er tekin afstaða til mismunandi upplýsinga.

      Status

      Final

      Level of detail

      Full

      Dates of creation, revision and deletion

      GPJ skráning 30.7.2022

      Language(s)

      • Icelandic

      Script(s)

      • Avestan

      Maintenance notes