Ómar Árnason (1936-2011) kennari Reykjavík

Identity area

Type of entity

Person

Authorized form of name

Ómar Árnason (1936-2011) kennari Reykjavík

Parallel form(s) of name

  • Ómar Árnason (1936-2011) kennari

Standardized form(s) of name according to other rules

    Other form(s) of name

      Identifiers for corporate bodies

      Description area

      Dates of existence

      9.4.1936 - 11.6.2011

      History

      Ómar Árnason fæddist í Reykjavík 9. apríl 1936. Hann lést á St. Jósefsspítala 11. júní 2011. Ómar ólst upp í Skerjafirði. Ómar og Hrafnhildur Oddný fluttu heim til Íslands frá Danmörku 1964. Árið 1966 fluttu Ómar og Hrafnhildur frá Reykjavík til Hafnarfjarðar, þar sem systir Hrafnhildar og eiginmaður, Soffía Kristbjörnsdóttir og Ólafur P. Stephenssen höfðu komið sér fyrir. Þau bjuggu sér heimili á Hvaleyraholti í Hafnarfirði og hafa búið þar síðan.
      Útför Ómars fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, 22. júní 2011, og hefst athöfnin kl. 13.

      Places

      Reykjavík-Skerjafjörður: Hvaleyrarholt Hafnarfirði 1966:

      Legal status

      Tók stúdentspróf frá MR árið 1955: Hann nam tryggingastærðfræði og tölfræði við Háskólann í Kaupmannahöfn og útskrifaðist þaðan sem cand. act. árið 1964:

      Functions, occupations and activities

      Hóf störf hjá Sjóvá 1964 og stundakennslu við MR og seinna við MT, sem síðar varð MS. Árið 1970 varð kennsla hans aðalstarf, og kenndi hann stærðfræði til ársins 1988, við Menntaskólann við Sund. Ómar starfaði einnig hjá Félagi menntaskólakennara, síðar HÍK, og gegndi framkvæmdarstjórastarfi þar, fyrst í hálfu starfi frá 1981, og þar á eftir í fullu starfi frá 1988 til ársloka 1999. Eftir að kennarafélögin sameinuðust í nýtt Kennarasamband Íslands í ársbyrjun 2000, varð hann framkvæmdastjóri Félags framhaldsskólakennara og gegndi því starfi þar til hann fór á ellilaun. Ómar var einn af níu stofnendum Félags íslenskra tryggingastærðfræðinga og kjörinn ritari á stofnfundi þess. Hann sat í mörg ár í stjórnum Félags menntaskólakennara og HÍK.

      Mandates/sources of authority

      Internal structures/genealogy

      Foreldrar Ómars voru Sigríður Björnsdóttir, f. 13. janúar 1907 á Ísafirði, d. 20. október 2001, og Árni Stefán Björnsson, trygginga- og hagfræðingur, f. 14. apríl 1898 á Þverá í Hallárdal, Austur Húnavatnssýslu, d. 31. mars 1978.

      Bróðir Ómars;
      1) Björn, f. 10. apríl 1932, d. 24. nóvember 2009. Umboðsmaður einkaleyfa í Reykjavík og síðar á Seltjarnarnesi.

      Ómar kvæntist Guðrúnu Jónsdóttur (1935-2016) frá Þingeyrum. Þau skildu.
      Dóttir þeirra er
      1) Hulda Sigríður Jeppesen, f. 2. apríl 1958. Hulda er gift Guðmundi J. Stefánssyni. Börn Huldu Sigríðar og Sigfúsar Nikulássonar eru Steinunn Vala og Nikulás Árni.
      Hinn 29. desember 1962 giftist Ómar Hrafnhildi Oddnýju Kristbjörnsdóttur, dóttur Guðrúnar Árnadóttur, f. 22. júní 1898, d. 28. mars 1963, og Kristbjörns Bjarnasonar, f. 15.október 1896, d. 9. september 1972.
      Börn Ómars og Hrafnhildar eru
      2) Kristín Ómarsdóttir, f. 24. september 1962, í sambúð með Sveinbjörgu Bjarnadóttur,
      3) Guðrún Yrsa Ómarsdóttir, f. 19. maí 1964, í sambúð með Ágústi Ómari Ágústssyni, Börn Guðrúnar Yrsu og Skúla Júlíussonar eru Hrafnhildur Hugrún og Álfrún Kristín.
      4) Árni Björn Ómarsson, f. 19. september 1965, í sambúð með Borghildi Þórisdóttur. Börn Árna Bjarnar og Borghildar eru Þórir, Oddný og Þórunn.

      General context

      Relationships area

      Related entity

      Björn Árnason (1932-2009) frá Syðri-Ey (10.4.1932 - 24.11.2009)

      Identifier of related entity

      HAH01134

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Björn Árnason (1932-2009) frá Syðri-Ey is the sibling of Ómar Árnason (1936-2011) kennari Reykjavík

      Dates of relationship

      9.4.1936

      Description of relationship

      Related entity

      Guðrún Jónsdóttir (1935-2016) arkitekt frá Þingeyrum (20.3.1935 - 2.9.2016)

      Identifier of related entity

      HAH04413

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Guðrún Jónsdóttir (1935-2016) arkitekt frá Þingeyrum is the spouse of Ómar Árnason (1936-2011) kennari Reykjavík

      Dates of relationship

      2.4.1958

      Description of relationship

      Barnsfaðir. Barn þeirra; Hulda Sigríður Jeppesen f. 2.4.1958. kjördóttir Knúts

      Related entity

      Hulda Sigríður Ómarsdóttir (1958) (2.4.1958 -)

      Identifier of related entity

      HAH06813

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Hulda Sigríður Ómarsdóttir (1958) is the child of Ómar Árnason (1936-2011) kennari Reykjavík

      Dates of relationship

      2.4.1958

      Description of relationship

      Related entity

      Árni Stefán Björnsson (1898-1978) frá Syðri-Ey (14.4.1898 - 31.3.1978)

      Identifier of related entity

      HAH03568

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Árni Stefán Björnsson (1898-1978) frá Syðri-Ey is the parent of Ómar Árnason (1936-2011) kennari Reykjavík

      Dates of relationship

      9.4.1936

      Description of relationship

      Access points area

      Subject access points

      Place access points

      Occupations

      Control area

      Authority record identifier

      HAH01810

      Institution identifier

      IS HAH

      Rules and/or conventions used

      Status

      Final

      Level of detail

      Full

      Dates of creation, revision and deletion

      GPJ 10.7.2017

      Language(s)

      • Icelandic

      Script(s)

        Maintenance notes