Ólafía Elísabet Guðjónsdóttir (1911-1995)

Identity area

Type of entity

Person

Authorized form of name

Ólafía Elísabet Guðjónsdóttir (1911-1995)

Parallel form(s) of name

  • Ólafía Elísabet Guðjónsdóttir (1911-1995) frá Þórustöðum í Bitru

Standardized form(s) of name according to other rules

    Other form(s) of name

      Identifiers for corporate bodies

      Description area

      Dates of existence

      28.10.1911 - 15.12.1995

      History

      Ólafía Elísabet Guðjónsdóttir fæddist 28. október 1911 að Þórustöðum í Bitru, Strandasýslu. Hún lést í Sjúkrahúsi Akraness 15. desember síðastliðinn. Árið 1959 flytja Ólafía og Ingólfur til Akraness og bjuggu þar eftir það, fyrst að Heiðarbraut 35, síðan að Brekkubraut 17 sem þau byggðu sjálf og bjuggu þar í 28 ár. Þá fluttu þau að Höfðagrund 16 og bjuggu þar í rúm tvö ár en fluttu síðla árs 1990 inn á Dvalarheimilið Höfða. Að hausti 1993 hrakaði heilsu Ólafíu svo að hún fór á Sjúkrahúsið á Akranesi og dvaldi þar til dauðadags. Útför Ólafíu fer fram frá Akraneskirkju í dag og hefst athöfnin kl. 14.

      Places

      Þórustaðir í Bitru: Gautsdalur Barð 1940: Akranes 1959:

      Legal status

      Functions, occupations and activities

      Mandates/sources of authority

      Internal structures/genealogy

      Foreldrar hennar voru Guðjón Magnús Ólafsson og Margrét Jóhanna Gísladóttir sem bjuggu að Þórustöðum.
      Systkini Ólafíu eru: Jónína Ragnheiður, f. 1910, dáin 1990. Hún var gift Grími Arnórssyni. Gísli Kristján, f. 1914, dáinn 1965, kvæntur Unni Rögnvaldsdóttur. Bjarni, f. 1916, dáinn 1991, kvæntur Steinunni Sigurðardóttur. Jón, f. 1926, býr í Reykjavík, kvæntur Arndísi Guðjónsdóttur.
      Hinn 17. júní árið 1939 giftist Ólafía Friðriki Ingólfi Helgasyni, f. 17. janúar 1913, syni hjónanna Helga Helgasonar og Ingibjargar Friðriksdóttur er bjuggu í Gautsdal, þá í Geiradalshreppi. Við giftingu tóku þau við búi í Gautsdal.
      Árið 1940 taka þau
      0) Hjörtur Ágúst Magnússon, f. 4. ágúst 1939, í fóstur og ólu hann upp eins og sinn eigin son. Hjörtur er trésmiður og kennari í Reykjavík, kvæntur Jónu Sigurðardóttur og eiga þau tvö börn, Ingu Kolbrúnu og Sigurð Ágúst.
      Síðan eignast þau tvo syni. Þeir eru:
      1) Helgi, f. 30. október 1941, rafvirki, kvæntur Sigríði Gróu Kristjánsdóttur og eiga þau þrjú börn; Kristján, Ólafíu Margréti og Ingólf. Helgi og Sigríður búa á Akranesi.
      2) Maggi Guðjón, f. 30. maí 1949, trésmiður, kvæntur Sigrúnu Valgarðsdóttur og eiga þau tvo syni, Björn Val og Arnþór Snæ. Þau búa einnig á Akranesi.
      Barnabarnabörnin eru orðin 6.

      General context

      Relationships area

      Access points area

      Subject access points

      Place access points

      Occupations

      Control area

      Authority record identifier

      HAH01785

      Institution identifier

      IS HAH

      Rules and/or conventions used

      Status

      Final

      Level of detail

      Full

      Dates of creation, revision and deletion

      GPJ 8.7.2017

      Language(s)

      • Icelandic

      Script(s)

        Maintenance notes