Marinó Kristinsson (1910-1994) prestur Valþjófsstað

Identity area

Type of entity

Person

Authorized form of name

Marinó Kristinsson (1910-1994) prestur Valþjófsstað

Parallel form(s) of name

  • Marinó Friðrik Kristinsson (1910-1994) prestur Valþjófsstað

Standardized form(s) of name according to other rules

    Other form(s) of name

      Identifiers for corporate bodies

      Description area

      Dates of existence

      17.9.1910 - 20.7.1994

      History

      Marinó Friðrik Kristinsson fæddist í Grimsby á Englandi 17. september 1910. Hann lést í Reykjavík 20. júlí 1994. Vann jafnframt mikið að söngmálum og kirkjukórastarfi á prestskaparárum sínum 1936-1979. Marinó ólst upp í Reykjavík með móður sinni, sem vann ein fyrir sér og honum, þar til hún giftist Þorsteini sem reyndist Marinó vel í alla staði svo og börnum hans.
      Marinó var með stærstu og sterkustu mönnum, beinvaxinn, þrekinn og mikill íþróttamaður á yngri árum. Hann var glaður í bragði og bar mótlæti og heilsubrest með trú og þolgæði, var lítið fyrir hégómaskap og gekk í öll störf inni á heimilinu og utandyra.

      Places

      Grimsby Englandi: Reykjavík: Vallanes á Völlum 1936-1939 og aftur 1960-1966:: Ísafjörður 1939: Valþjófsstaður í Fljótsdal 1942: Sauðanes á Langanesi 1967:

      Legal status

      Marinó varð stúdent frá MR 1930 og cand. theol. frá Háskóla Íslands 1936. Hann stundaði nám í söng og orgelleik hjá Sigurði Birkis í Reykjavík 1930-1936. Útför sr. Marinós fór fram frá Egilsstaðakirkju hinn 30. júlí 1994 og var hann jarðsettur í Valþjófsstaðarkirkjugarði.

      Functions, occupations and activities

      Marinó var skrifstofumaður í Reykjavík 1930-31, lögreglumaður um tíma og vann við ýmis önnur störf. Marinó var veitt Vallanes á Völlum 1936 frá 1. sept. og vígður 16. ágúst sama ár, veittur Ísafjörður 22. júní 1939 og Valþjófsstaður í Fljótsdal 1942 frá 1. júní, veitt Vallanes á Völlum í annað sinn 1960 frá 1. júní sama ár, og lausn 1966 frá 1. júní sama ár. Settur sóknarprestur í Sauðanesprestakalli 1966 frá 1. júní sama ár og veitt Sauðanes 1967 frá 1. júlí sama ár. Settur prófastur í Norður-Þingeyjarprófastdæmi 1966 til 1971. Honum var veitt lausn frá embætti fyrir aldurs sakir 1. des. 1979. Hann vann við kennslu- og prófdómarastörf á Hallormsstað og víðar á Héraði, kenndi við Grunnskólann á Þórshöfn 1967 til 1973 og var prófdómari við skólann 1967 til 1977. Marinó starfaði í KFUM á menntaskóla- og háskólaárum 1925 til 1936. Stundaði þá einnig frjálsar íþróttir hjá íþróttafélaginu Ármanni og var m.a. methafi í kúluvarpi og spjótkasti. Hann hafði afburðafagra söngrödd og var þekktur fyrir söng sinn, tón- og orgelleik. Hann söng með karlakór KFUM og síðar Karlakór Reykjavíkur og tók þátt í söngför kórsins til Norður-Ameríku haustið 1946.

      Mandates/sources of authority

      Internal structures/genealogy

      Foreldrar hans voru Gestur Kristinn Guðmundsson, skipstjóri í Reykjavík, f. 8. okt. 1881, d. 26. apríl 1931, og Ágústa Margrét Sigríður Valdimarsdóttir, húsfreyja í Reykjavík, f. 2. sept. 1890, d. 21. sept. 1973. Stjúpfaðir hans var Þorsteinn Ingimar Sigurðsson, sjómaður og útgerðarmaður í Reykjavík, f. 19. nóv. 1891, d. 28. sept. 1954.
      Systkini Marinós voru
      1) Oddný Steinunn Þorsteinsdóttir, f. 13. des. 1931 í Reykjavík, d. 11. júní 1934;
      2) Þóra Þorsteinsdóttir, f. 30. okt. 1933 í Reykjavík
      3) Sigurður Þorsteinsson, f. 11. apríl 1936 í Reykjavík, d. 20. okt. 1984.
      Maki 1, 25. okt. 1935: Hrefna Ásgeirsdóttir. f. 22. feb. 1917, d. 22. apríl 1939, húsfreyja.
      Kjörsonur þeirra (systursonur Hrefnu):
      1) Hrafn, f. 2. okt. 1938, d. 3. jan. 1986.
      Maki 2, 16. nóv. 1940: Þórunn Valgerður Björnsdóttir, f. 22. feb. 1917, d. 17. feb. 1984, húsfreyja. Þau skildu.
      Maki 3, 19. júlí 1949: Þórhalla Gísladóttir, f. 11. mars 1920 í Skógargerði í Fellum, N-Múl., d. 18. apríl 2006 í Reykjavík.
      Börn Þórhöllu og Marinós:
      1) Dagný, f. 12. maí 1947,
      2) Hrefna, f. 31. mars 1950,
      3) Ágúst, f. 5. maí 1951,
      4) Gísli Már, f. 16. sept. 1952,
      5) Rósa Kristín, f. 28. nóv. 1953,
      6) Steinunn, f. 13. júní 1958,
      7) Kolbeinn, f. 15. júlí 1959,
      8) Úlfur Heiðar, f. 23. des. 1961.

      General context

      Relationships area

      Related entity

      Dagný Pálsdóttir (1885-1979) Skógargerði í Fellum (4.3.1885 - 2.3.1979)

      Identifier of related entity

      HAH03002

      Category of relationship

      family

      Dates of relationship

      19.7.1949

      Description of relationship

      Þórhalla dóttir hennar var þriðja kona sra Marinós

      Related entity

      Zophonías Ásgeirsson (1924-2013) Ásgeirshúsi Blönduósi (1.6.1924 - 27.9.2013)

      Identifier of related entity

      HAH02124

      Category of relationship

      family

      Dates of relationship

      25.10.1935

      Description of relationship

      Marinó var giftur Hrefnu systur Zophoníasar

      Related entity

      Arndís Ásgeirsdóttir (1919-2006) Ásgeirshúsi (13.9.1919 - 26.12.2006)

      Identifier of related entity

      HAH01042

      Category of relationship

      family

      Dates of relationship

      25.10.1935

      Description of relationship

      Arndís var móðir Hrafns kjörsonar Marinós og Hrefnu og jafnframt mágkona hans

      Related entity

      Ása Ásgeirsdóttir (1914-1996) Ásgeirshúsi (27.8.1914 - 3.4.1996)

      Identifier of related entity

      HAH01076

      Category of relationship

      family

      Dates of relationship

      25.10.1935

      Description of relationship

      Giftur Hrefnu systur Ásu. Giftur Hrefnu systur Ásu.

      Related entity

      Ásgeir Þorvaldsson (1881-1962) Ásgeirshúsi (4.8.1881 - 25.1.1962)

      Identifier of related entity

      HAH03630

      Category of relationship

      family

      Dates of relationship

      25.10.1935

      Description of relationship

      Kona Marinós var Hrefna (1909-1939) dóttir Ásgeirs.

      Related entity

      Ása Halldórsdóttir (1959) Reykjavík (25.7.1959 -)

      Identifier of related entity

      HAH03594

      Category of relationship

      family

      Dates of relationship

      25.7.1959

      Description of relationship

      Marinó var faðir Hrafns bróður hennar sammæðra

      Related entity

      Olga Magnúsdóttir (1921-1977) frá Flögu (7.2.1921 - 23.8.1977)

      Identifier of related entity

      HAH06152

      Category of relationship

      family

      Dates of relationship

      25.10.1935

      Description of relationship

      hann var giftur Hrefnu systur hennar

      Related entity

      Valgarð Ásgeirsson (1927-1996) múrari Blönduósi (25.10.1927 - 22.4.1996)

      Identifier of related entity

      HAH06847

      Category of relationship

      family

      Dates of relationship

      25.10.1935

      Description of relationship

      mágar giftur Hrefnu systur Valgarðs

      Related entity

      Hrefna Ásgeirsdóttir (1909-1939) Vallanesi, frá Blönduósi (12.2.1909 - 22.4.1939)

      Identifier of related entity

      HAH07589

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Hrefna Ásgeirsdóttir (1909-1939) Vallanesi, frá Blönduósi is the spouse of Marinó Kristinsson (1910-1994) prestur Valþjófsstað

      Dates of relationship

      25.10.1935

      Description of relationship

      Hrefna var fyrsta kona hans. Kjörsonur Hrefnu og Marinós; 1) Hrafn Marinósson 2.10.1938 - 3.1.1986. Rafvirki. Síðast bús. í Reykjavík. Móðir hans; Kristín Arndís Ásgeirsdóttir 13. sept. 1919 - 26. des. 2006, systir Hrefnu.

      Related entity

      Þórhalla Gísladóttir (1920-2006) Valþjófsstað (11.3.1920 - 18.4.2006)

      Identifier of related entity

      HAH05666

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Þórhalla Gísladóttir (1920-2006) Valþjófsstað is the spouse of Marinó Kristinsson (1910-1994) prestur Valþjófsstað

      Dates of relationship

      19.7.1949

      Description of relationship

      Börn þeirra eru: 1) Dagný, f. 12.5.47, maki Ágúst Guðröðarson, 2) Hrefna, f. 31. mars 1950, maki Vífill Þorfinnsson, 3) Ágúst, f. 5. maí 1951, maki Elísabet Arnardóttir. 4) Gísli Már, f. 16. september 1952, maki Erla Ásgrímsdóttir. 5) Rósa Kristín, f. 28. nóvember 1953, maki John E.G. Benedikz. 6) Kolbeinn, f. 15. júlí 1959. 7) Úlfur Heiðar, f. 23. desember 1961, maki Drífa Aradóttir. 8) Óskírð Marinósdóttir, f. 28. nóvember 1953, d. 28. nóvember 1953.

      Access points area

      Subject access points

      Place access points

      Occupations

      Control area

      Authority record identifier

      HAH01759

      Institution identifier

      IS HAH

      Rules and/or conventions used

      Status

      Final

      Level of detail

      Full

      Dates of creation, revision and deletion

      GPJ 7.7.2017

      Language(s)

      • Icelandic

      Script(s)

        Sources

        Maintenance notes