Lára Ingibjörg Magnúsdóttir (1903-1989)

Identity area

Type of entity

Person

Authorized form of name

Lára Ingibjörg Magnúsdóttir (1903-1989)

Parallel form(s) of name

  • Lára Ingibjörg Magnúsdóttir (1903-1989) Læknishúsi Blönduósi

Standardized form(s) of name according to other rules

    Other form(s) of name

      Identifiers for corporate bodies

      Description area

      Dates of existence

      4.10.1903 - 25.12.1989

      History

      Hún fæddist 4. október 1903 í Hafnarhólma, Seltjörn, Kaldrananeshreppi í Strandasýslu.
      Lára fékk fyrst hjartaáfall fyrir fjórum árum síðan og það var einmitt seint á jóladagskvöld. Hún hafði haft það fyrir siðað bjóða börnum sínum, barnabörnum og barnabarnabörnum á þessum degi til jólaveislu. Þá 82 ára gömul lét hún ekki allan þennan fjölda aftra sér frá því að fjölskyldan ætti gleðileg jól saman. Það má segja að þarna fyrir fjórum árum hafi henni orðið fyrst misdægurt. Þetta voru síðustu jólin hennar á heimili sínu í Meðalholti 5. Stuttu síðar fluttist hún að Hrafnistu og dvaldi þar síðan. Lára bjó í Meðalholtinu í rúm 40 ár og var mjög heilsuhraust kona alla tíð. Hún hafði ákveðnar skoðanir á því hvaða fæði væri best til að halda góðri heilsu og ræddi það mikið.
      Útförin fer fram frá Dómkirkjunni í dag kl. 13.30.

      Places

      Hafnarhólmi, Seltjörn, Kaldrananeshreppi í Strandasýslu:

      Legal status

      Functions, occupations and activities

      Lára var söngelsk kona og ákaflega trúuð. Í mörg ár söng hún með Dómkórnum og síðar kór Laugarneskirkju. Hún trúði á líf eftir dauðann og hafði oft á orði að þegar hún færi yfir móðuna miklu þá myndi hún örugglega fara í kór og syngja þar.

      Mandates/sources of authority

      Internal structures/genealogy

      Foreldrar hennar voru Guðrún Mikaelsdóttir og Magnús Kristjánsson.
      Árið 1931 giftist hún Bjarna Böðvarssyni hljómlistarmanni en hann lést á afmælisdegi sínum 21. nóvember 1955.
      Þau áttu þrjú börn.
      1) Ómar Örn, fæddur 1932, en hann lést árið 1946 aðeins 14 ára gamall.
      2) Ragnar, hljómlistarmaður, fæddur 1934 og
      3) Dúna, fædd 1936.

      General context

      Relationships area

      Related entity

      Læknabústaðurinn Aðalgata 5 Blönduósi (1903 -)

      Identifier of related entity

      HAH00081

      Category of relationship

      associative

      Dates of relationship

      Description of relationship

      Hjú þar 1920

      Access points area

      Subject access points

      Place access points

      Occupations

      Control area

      Authority record identifier

      HAH01701

      Institution identifier

      IS HAH

      Rules and/or conventions used

      Status

      Final

      Level of detail

      Full

      Dates of creation, revision and deletion

      GPJ 3.7.2017

      Language(s)

      • Icelandic

      Script(s)

        Maintenance notes