Landakirkja Vestmannaeyjum (1774)

Identity area

Type of entity

Corporate body

Authorized form of name

Landakirkja Vestmannaeyjum (1774)

Parallel form(s) of name

    Standardized form(s) of name according to other rules

      Other form(s) of name

        Identifiers for corporate bodies

        Description area

        Dates of existence

        1774 -

        History

        Smíði kirkjunnar hófst árið 1774 en talið er að henni hafi ekki lokið að fullu fyrr en 1780. Þá voru íbúar í Eyjum um 200. Þjónaði hún báðum kirkjusóknunum uns sameinaðar voru árið 1837 í prestskapartíð séra Jóns Austmanns að Ofanleiti en hann þjónaði Vestmannaeyjum 1827 til 1858.
        Ýmsar breytingar hafa verið gerðar á Landakirkju í aldanna rás. Upphaflega var hún turnlaus, sneitt af burstum og engin forkirkja, látlaus og einföld í sniðum, laus við tískuprjál rokokkó-stílsins sem þá var ríkjandi byggingarstíll. Fyrir vesturgafli var sett upp klukknaport en þar voru höfuðdyr. Auk þeirra voru dyr á norðurhlið í kór.

        Þrennar breytingar eru veigamestar, einkum þær, sem gerðar voru á dögum Kohls sýslumanns (1853-1860). Var þá reistur turn á kirkjuna og klukkurnar fluttar þangað. Predikunarstóll stóð hægra megin í kórdyrum en var fluttur yfir altarið og er það fátítt hérlendis. Skilrúm með útskornum myndum af postulunum tólf, sem var milli kórs og kirkju, var fjarlægt og svalir settar fyrir vesturenda og fram með langveggjum og ýmsar aðrar breytingar gerðar. Nokkru áður, um 1820, hafði farið fram umfangsmikil og dýr viðgerð á timburverki kirkjunnar.

        Árið 1903 stóð Magnús Ísleifsson trésmíðameistari fyrir allmikilli viðgerð á kirkjunni. Voru gluggar stækkaðir niður, dyr á norðurhlið í kór voru teknar af og reist forkirkja úr timbri. Hvelfingu, blámálaðri með gylltum stjörnum, var breytt, svalir breikkaðar um helming og söngpallur stækkaður að mun.

        Þriðja veigamesta breytingin var gerð á árunum 1955-1959. Reist var ný forkirkja og turn og jafnframt sæti og gólf endurnýjað. Var kirkjan endurvígð eftir þá breytingu 4. október 1959. Teikningar gerði Ólafur Á. Kristjánsson bæjarstjóri.

        Árið 1978 var sett eirþak á Landakirkju. Þá voru pottgluggar frá því um aldamót teknir úr kirkjunni og nýir harðviðargluggar með tvöföldu gleri settir í staðinn. Á aðalsafnaðarfundi 6. september 1987 var samþykkt að hafist yrði handa við að koma upp safnaðarheimili á kirkjulóðinni. Fyrsta skóflustunga að byggingunni var tekin 1. maí 1988 og safnaðarheimilið vígt 17. júní 1990 í tengslum við 210 ára afmæli Landakirkju. Páll Zóphóníasson teiknaði safnaðarheimilið. Frá siðaskiptum hafa 38 prestar gegnt prestsþjónustu í Vestmannaeyjum. Árið 1924 fannst skammt frá Kirkjubæ legsteinn sr. Jóns Þorsteinssonar píslarvotts sem Tyrkir vógu 1627. Er steinninn varðveittur í Þjóðminjasafni. Eftirlíkingu steinsins, sem var yfir moldum sr. Jóns, varð naumlega bjargað undan jarðeldunum 1973. Árið 1977, á 350. ártíð sr. Jóns, var steinninn reistur aftur í Eldfellshrauni á þeim stað þar sem áður var Kirkjubær. Landakirkja er þriðja elsta steinkirkja landsins, næst á eftir Hóladómkirkju í Hjaltadal, sem fullgerð var 1763, og Viðeyjarkirkju frá 1774.

        Places

        Vestmannaeyjar Heimaey;

        Legal status

        Functions, occupations and activities

        Fótgeti konungs í Vestmannaeyjum, báðir prestarnir og íbúarnir samþykktu sérstakan skatt til Landakirkju, hinn 11. október árið 1606.

        Í samþykktinni var tekið fram, að leggja skuli einn fisk til Landakirkju í hverjum útróðri um vertíðina, er einn fiskur fáist í hlut af hverju skipi, sem sæki sjóinn frá Eyjum. Þessi löggilti kirkjufiskur nam árlega í meðalári 200-300 fiskum. Þá fékk Landakirkja gjafafisk á nafndögum kirkjunnar, 5-20 fiska frá hverjum bónda, venjulega þriðja hvert ár og frá tómthúsmönnum 2-5 fiska. Frá skipstjórum og sjómönnum á kaupskipum bárust einnig oft gjafir.

        Skattur þessi var talinn sem lögmál í Vestmannaeyjum, en lagðist fyrst af 1. janúar 1879.

        Mandates/sources of authority

        Landakirkja á fjölmarga góða og vandaða gripi og berast henni tíðum góðar gjafir.

        Altaristaflan og mynd sú, er hangir í kór og sýnir Jesú blessa börnin, eru eftirmyndir af málverkum sem Hans Würst kaupmaður gaf kirkjunni 1674, en fyrirmyndirnar voru sendar til Kaupmannahafnar 1847 eða 1848. Þriðja myndin, sem einnig hangir inni í kór, er eftirmynd sem Engilbert Gíslason hefur gert af málverki sem kirkjan átti, en frummyndin er nú í Þjóðminjasafni.

        Altarisstjaka á kirkjan tvenna. Aðrir eru frá 1642, gefnir af Christensen kaupmanni, hinir frá 1766, gefnir af Hans Klog kaupmanni sem var frumkvöðull þess að steinkirkjan var reist.

        Skírnarfontur úr eiri er frá 1749 en skírnarskál úr tini ber ártalið 1641. Í lofti hanga þrír ljóshjálmar úr skyggðum eiri. Stærsta hjálminn, 16 arma, gaf Hans Nansen, borgarstjóri í Kaupmannahöfn 1662 en hann hafði þá á leigu verslun við Vestmannaeyjar. Annar hjálmurinn, 12 arma, er talinn smíðaður í Eyjum árið 1782 af Erlendi Einarssyni. Þá eru tvíarma messingstjakar með ágröfnu nafni Guttorms Andersen frá 1662.

        Í kirkjuturni eru tvær stórar hljómmiklar klukkur, önnur steypt í Þýskalandi 1617, með latneskri áletrun (Vestmannoe. Verbum domini manet in æternum. Hans Kremmer me fecit 1617; Vestmannaeyjar. Orð drottins varir að eilífu. Hans Kremmer gerði mig 1617). Henni var rænt í Tyrkjaráninu árið 1627, en síðar keypt aftur til bæjarins. Áletrun er á henni til vitnisburðar um þetta. Hin er frá 1743 með áletruðum ljóðlínum á dönsku.

        Sitt fyrsta orgel fékk Landakirkja árið 1877 fyrir tilstuðlan J. P. T. Brydes kaupmanns og var Sigfús Árnason frá Vilborgarstöðum þá ráðinn organisti. Stórt orgelharmoníum var sett í kirkjuna 1927 í tíð Brynjúlfs organista sonar Sigfúsar. Árið 1953 var sett upp fyrsta pípuorgelið, gert hjá I. Starup & sön í Kaupmannahöfn. Það var stækkað og endurbætt sumarið 1966.

        Hinn 23. janúar 1973 kom upp jarðeldur á Heimaey. Í umbrotunum féll mikil aska og vikur á Landakirkju og kirkjulóðina. Kirkjan varð þó ekki fyrir teljandi skemmdum. Ekki var hreyft við neinu í Landakirkju meðan eldsumbrotin stóðu yfir. Kirkjan var því styrk stoð þeim sem til hennar leituðu á þessum erfiðu tímum. Messað var í Landakirkju 23. mars 1973 en þá stóð eldgosið sem hæst. Í gosinu skemmdist orgel kirkjunnar af völdum gosefna. Var keypt nýtt ítalskt orgel, framleitt af Famiglia Mascioni.

        Internal structures/genealogy

        Prestar í Vestmannaeyjum;

        Snorri Helgason 1482-1492
        Halldór Tómasson (Ofanleiti) 1545-æviloka
        Gissur Vigfússon (Kirkjubæ) 1546-loka 16. aldar
        Bergur Einarsson (Ofanleiti) 1563-1593
        Ormur Ófeigsson 1593-1607
        Jón Jónsson 16. öld
        Ólafur Egilsson 1594-1627
        Jón Þorsteinsson (Kirkjubæ) píslarvottur, 1607-1627
        Gísli Þorvarðarson (Ofanleiti) 1628-1634 og aftur 1639-1660
        Jón Jónsson 1628-1650
        Böðvar Sturluson (Kirkjubæ) 1650-1656
        Árni Kláusson (Kirkjubæ) 1656-1673
        Gissur Pétursson (Ofanleiti) 1659-1713
        Pétur Gissurarson (Ofanleiti) 1660-1689
        Oddur Eyjólfsson (Kirkjubæ) 1674-1732
        Gísli Bjarnason (Ofanleiti) 1713-1734
        Illugi Jónsson (Ofanleiti) 1734-1744
        Arngrímur Pétursson (Kirkjubæ) 1732-1732
        Guðmundur Högnason (Kirkjubæ) 1742-1792
        Grímur Bessason (Ofanleiti) 1745-1748
        Benedikt Jónsson (Ofanleiti) 1748-1781
        Páll Magnússon (Ofanleiti) 1781-1789
        Bjarnhéðinn Guðmundsson (Kirkjubæ) 1792-1821
        Ari Guðlaugsson 1789-1809
        Jón Arason (Ofanleiti) 1809-1810
        Jón Högnason (Ofanleiti) 1811-1825
        Snæbjörn Björnsson (Ofanleiti) 1825-1827
        Páll Jónsson skáldi (Síðasti prestur að Kirkjubæ) 1822-1837
        Jón Jónsson Austmann (Ofanleiti) 1827-1858
        Brynjólfur Jónsson 1852-1884
        Stefán Thordarsen 1885-1889
        Oddgeir Þórðarson Guðmundsen 1889-1924
        Sigurjón Þorvaldur Árnason 1924-1944
        Halldór Kolbeins 1945-1961
        Þorsteinn Lúther Jónsson 1961-1975
        Karl Sigurbjörnsson 1973-1974
        Kjartan Örn Sigurbjörnsson 1975-1990
        Bjarni Karlsson
        Jóna Hrönn Bolladóttir
        Bára Friðriksdóttir
        Þorvaldur Víðisson 2002-2006
        Kristján Björnsson 1998-
        Guðmundur Örn Jónsson 2006-

        General context

        Relationships area

        Related entity

        Vestmannaeyjar

        Identifier of related entity

        Category of relationship

        associative

        Dates of relationship

        1774

        Description of relationship

        Access points area

        Subject access points

        Place access points

        Occupations

        Control area

        Authority record identifier

        Institution identifier

        Rules and/or conventions used

        Status

        Final

        Level of detail

        Partial

        Dates of creation, revision and deletion

        Language(s)

        • Icelandic

        Script(s)

          Maintenance notes