Kristrún Magnúsdóttir Waage (1942-2011) Gleráskógum, Dalas.

Original Digital object not accessible

Identity area

Type of entity

Person

Authorized form of name

Kristrún Magnúsdóttir Waage (1942-2011) Gleráskógum, Dalas.

Parallel form(s) of name

  • Kristrún Helga Magnúsdóttir Waage (1942-2011) Gleráskógum, Dalas.

Standardized form(s) of name according to other rules

  • Kristrún Wagge (1942-2011) Gleráskógum, Dalas.

Other form(s) of name

    Identifiers for corporate bodies

    Description area

    Dates of existence

    17.10.1942 - 10.10.2011

    History

    Kristrún Helga Magnúsdóttir Waage var fædd 17. október 1942, að Glerárskógum í Dalasýslu. Kristrún ólst upp í Glerárskógum við almenn sveitastörf.

    Hún lést 10. október 2011. Útför Kristrúnar fór fram frá Árbæjarkirkju á afmælisdegi hennar 17. október 2011 og hófst athöfnin kl. 13. Jarðsett var í Hvammskirkjugarði í Dölum daginn eftir.

    Places

    Legal status

    Gekk í barnaskólann að Laugum í Sælingsdal. 1959 til '60 stundaði hún nám í Kvennaskólanum á Blönduósi. Síðan var hún einn vetur í Héraðsskólanum í Reykholti til undirbúnings fyrir Samvinnuskólann að Bifröst. Þar stundaði hún nám í tvo vetur.

    Functions, occupations and activities

    Kristrún og Viðar byrjuðu búskap í Glerárskógum 1966 með foreldrum hennar. 1970 fluttu þau til Reykjavíkur, þar sem Kristrún byrjaði að vinna á skrifstofu SÍS en síðan á skrifstofu Áburðarverksmiðjunnar í Gufunesi. 1979 fluttu þau aftur vestur í Dali. Kristrún vann á skrifstofu Kaupfélags Hvammsfjarðar, fyrst sem fulltrúi og síðan kaupfélagsstjóri til 1984 þegar þau fluttu til Reykjavíkur á ný. Kristrún byrjaði að vinna aftur á skrifstofu Áburðarverksmiðjunnar en síðan á skrifstofu Osta- og smjörsölunnar þar sem hún vann þar til sameining varð við Mjólkursamsöluna. Eftir það vann hún nokkra mánuði á skrifstofu verktakafyrirtækisins Jarðvélar.

    Mandates/sources of authority

    Kristrún hafði áhuga á dulrænum málefnum og stundaði um tíma nám í Sálarrannsóknarskólanum. Kristrún greindist með krabbamein í brjósti 2004 og gekk þá í gegnum erfiða læknismeðferð sem virtist skila þeim árangri að sigur hefði unnist. En fyrir um einu og hálfu ári uppgötvaðist að krabbamein hafði aftur búið um sig. Þrátt fyrir æðruleysi og hetjulega baráttu hennar, lækna og hjúkrunarfólks, tapaðist baráttan. Kristrún lá síðustu þrjár vikurnar á Landspítalanum, deild 11E þar sem hlúð var að henni af stakri prýði.

    Internal structures/genealogy

    Foreldrar; Magnús Sigurbjörnsson 23. apríl 1910 - 19. okt. 1985. Vinnumaður í Glerárskógum, Hvammssókn, Dal. 1930. Bóndi í Glerárskógum í Hvammssveit, Dal. og kona hans 19.9.1941; Eðvaldína Magney Kristjánsdóttir 8. ágúst 1913 - 15. nóv. 2011. Vinnukona á Hólum, Hvammssókn, Dal. 1930. Húsfreyja að Glerárskógum í Hvammssveit, síðast bús. í Reykjavík.

    Systur hennar;
    1) Björk f. 19. febrúar 1947. Maki: Steinar Tómas Karlsson. Börn þeirra: a) Magnús Helgi, maki Margrét Th. Friðriksdóttir. Börn þeirra: Hlynur Ingi, Steinar Friðrik og Ína Magney. b) Kristján Hörður, maki: Bergþóra Linda Húnadóttir. Börn þeirra: Ísabella Eir og Emilý Björk. Dóttir Kristjáns: Þorbjörg Elísabet.
    2) Bjarnheiður, f. 31. janúar 1951. Maki: Steingrímur S. Eiríksson, þau skildu. Börn þeirra: a) Harpa Sigríður, sambýlismaður Ólafur Karel Jónsson. Börn Hörpu Sigríðar: Arnar Óli og Steinar Ingi. b) Helga Ína, sambýlismaður Geir Guðjónsson. Barn þeirra: Steingrímur Geir.

    Maður hennar 1966; Viðar Guðmundsson Waage 13.6.1941. Reykjavík
    Synir þeirra;
    1) Bjarki 6. janúar 1969. Bjarki á Hinrik Viðar með barnsmóður sinni Svövu Þóru Hinriksdóttur og Viktor Snæ og Marín Mjöll með Lindu Dröfn Grétarsdóttur. Sambýliskona hans nú er Sveinbjörg Ólafsdóttir.
    2) Smári 22. nóvember 1975. Hann er giftur Maríu Sunnu Einarsdóttur og eiga þau Daníel, Katrínu Ósk og Davíð Emil.

    General context

    Relationships area

    Related entity

    Kvennaskólinn á Blönduósi 1951-1960 (1951 - 1960)

    Identifier of related entity

    HAH00115 -51-60

    Category of relationship

    associative

    Dates of relationship

    1959-1960

    Description of relationship

    námsmey

    Related entity

    Reykholtsskóli (1931-1997) Borgarfirði / Snorrastofa

    Identifier of related entity

    Category of relationship

    associative

    Dates of relationship

    Description of relationship

    nemi þar einn vetur

    Related entity

    Björk Magnúsdóttir (1947) Glerárskógum í Dalasýslu (19.2.1947 -)

    Identifier of related entity

    HAH08510

    Category of relationship

    family

    Type of relationship

    Björk Magnúsdóttir (1947) Glerárskógum í Dalasýslu is the sibling of Kristrún Magnúsdóttir Waage (1942-2011) Gleráskógum, Dalas.

    Dates of relationship

    19.2.1947

    Description of relationship

    Access points area

    Subject access points

    Place access points

    Occupations

    Control area

    Authority record identifier

    HAH08320

    Institution identifier

    IS-HAH

    Rules and/or conventions used

    Að venju eru upplýsingar frá Íslendingabók notaðar, ef þær stangast á við aðrar upplýsingar er þeim bætt við innan hornklofa [ ], ekki er tekin afstaða til mismunandi upplýsinga.

    Status

    Final

    Level of detail

    Full

    Dates of creation, revision and deletion

    GPJ skráning 16.10.2023

    Language(s)

    • Icelandic

    Script(s)

      Maintenance notes