Kjartan Ragnarsson Ragnars (1916-2000) sendifulltrúi frá Akureyri

Identity area

Type of entity

Person

Authorized form of name

Kjartan Ragnarsson Ragnars (1916-2000) sendifulltrúi frá Akureyri

Parallel form(s) of name

    Standardized form(s) of name according to other rules

      Other form(s) of name

        Identifiers for corporate bodies

        Description area

        Dates of existence

        23.5.1916 - 7.1.2000

        History

        Kjartan Ragnars hæstaréttarlögmaður fæddist á Akureyri 23. maí 1916. Hann lést á Landakotsspítala í Reykjavík 7. janúar síðastliðinn. Kjartan Ragnars lauk stúdentsprófi frá MA árið 1936 og lagaprófi frá Háskóla Íslands 1942, varð héraðsdómslögmaður 1949 og hæstaréttarlögmaður 1958. Hann var aðstoðarmaður og síðar fulltrúi í fjármálaráðuneytinu 1942 til 1956 og var jafnframt í stjórnum Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins og Lífeyrissjóðs barnakennara. Hann sat ráðstefnur Institut International des Sciences Administratives fyrir Íslands hönd í Portúgal, Belgíu og Hollandi á árunum 1949 til 1954. Kjartan hlaut fyrstu verðlaun í alþjóðaritgerðasamkeppni Sameinuðu þjóðanna 1955 og kynnti sér starfsemi þeirra sama ár í New York. Hann varð riddari sænsku Norðurstjörnuorðunnar 1957, riddari 1. stigs norsku St. Olavsorðunnar 1970 og riddari íslensku Fálkaorðunnar 1975.
        Útför Kjartans fer fram frá Fossvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30.

        Places

        Akureyri:

        Legal status

        Kjartan Ragnars lauk stúdentsprófi frá MA árið 1936 og lagaprófi frá Háskóla Íslands 1942, varð héraðsdómslögmaður 1949 og hæstaréttarlögmaður 1958.

        Functions, occupations and activities

        Hann var aðstoðarmaður og síðar fulltrúi í fjármálaráðuneytinu 1942 til 1956 og var jafnframt í stjórnum Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins og Lífeyrissjóðs barnakennara. Hann sat ráðstefnur Institut International des Sciences Administratives fyrir Íslands hönd í Portúgal, Belgíu og Hollandi á árunum 1949 til 1954. Hann varð fulltrúi í utanríkisráðuneytinu 1956 og hlaut fræðimannastyrk Atlantshafsbandalagsins 1958 til rannsókna í París. Árið 1960 var Kjartan skipaður sendiráðsritari í Stokkhólmi og 1965 í Osló. Þar sat hann til 1970 en var skipaður deildarstjóri í utanríkisráðuneytinu í Reykjavík 1972 og sendifulltrúi 1983. Hann lét af störfum fyrir aldurs sakir árið 1985.

        Mandates/sources of authority

        Kjartan hlaut fyrstu verðlaun í alþjóðaritgerðasamkeppni Sameinuðu þjóðanna 1955 og kynnti sér starfsemi þeirra sama ár í New York.
        Fjölmargar ritsmíðar, einkum þýðingar, liggja eftir Kjartan, þar á meðal þýðing á bókinni Um ellina eftir Cíceró sem út kom í Lærdómsritaröð Bókmenntafélagsins 1982.

        Internal structures/genealogy

        Foreldrar hans voru Ragnar Ólafsson, kaupmaður og konsúll á Akureyri, f. 25.11. 1871, d. 14.9. 1928, og kona hans, Guðrún Johnsen, f. 11.1. 1880, d. 29.4. 1973.
        Kjartan var áttundi í röð tíu systkina, sem upp komust, en þau tóku sér öll ættarnafnið Ragnars.
        Systkini Kjartans voru þessi: Egill Ragnars, útgerðarmaður á Siglufirði og Þórshöfn, kvæntur Sigríði Elísabetu Stefánsdóttur; Þuríður Ragnars, húsfreyja, gift dr. Lárusi Einarssyni, prófessor í Árósum í Danmörku; Sverrir Ragnars, kaupmaður og sparisjóðsstjóri á Akureyri, kvæntur Maríu Matthíasdóttur; Valgerður Ragnars húsfreyja, gift Halldóri Á. Sigurbjörnssyni stórkaupmanni í Reykjavík; Ólafur Ragnars, kaupmaður á Siglufirði, síðar í Reykjavík, kvæntur Ágústu Johnson; Jón Ragnars, stýrimaður í Reykjavík, kvæntur Camillu Guðmundsdóttur; Ásgrímur Ragnars, fulltrúi í Kópavogi, kvæntur Önnu Ólafsdóttur og síðar Huldu Ólafsdóttur; Guðrún Ragnars, sjúkraliði og húsfreyja í Reykjavík, fyrr gift Geir Borg, og Ragna Ragnars, snyrtifræðingur og húsfreyja í Reykjavík, ekkja Karls Magnúsar Grönvolds lögregluvarðstjóra. Af systkinunum lifa nú einungis Sverrir, Guðrún og Ragna.
        Kjartan Ragnars kvæntist 19. október 1941 Ólafíu Þorgrímsdóttur, húsfreyju og fótaaðgerðardömu í Reykjavík. Hún fæddist 10. desember 1916 en lést á heimili þeirra hjóna í Bólstaðarhlíð 15 í Reykjavík 23. október 1997. Foreldrar hennar voru Þorgrímur Sigurðsson (1890-1955), togaraskipstjóri og útgerðarmaður í Reykjavík, og kona hans Guðrún Jónsdóttir (1890-1970).
        Börn þeirra Kjartans og Ólafíu eru:
        1) Áslaug Ragnars, f. 23. apríl 1943, blaðamaður og rithöfundur í Reykjavík. Synir hennar eru Andrés Magnússon, vefþróunarstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, dóttir hans er Iðunn, og Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi í Reykjavík, kona hans er Guðbjörg Sigurgeirsdóttir hjúkrunarfræðingur, þeirra dóttir Snæfríður.
        2) Bergljót Kjartansdóttir, f. 14. júní 1944, listmálari. Dóttir hennar er Katrín Ragnars, nemi í arkitektúr.
        3) Hildur Kjartansdóttir, f. 15. júlí 1947, móttökufulltrúi Reykjavíkurborgar, gift Guðjóni Friðrikssyni sagnfræðingi. Sonur hennar er Atli Knútsson sálfræðingur, verkefnisstjóri hjá Össuri hf., unnusta hans er Elín Dóra Halldórsdóttir sálfræðingur.
        4) Kjartan Ragnars, f. 27. september 1949, hæstaréttarlögmaður í Kópavogi, kvæntur Ragnhildi Guðmundsdóttur kennara. Börn hans fyrir hjónaband eru Logi, lögregluþjónn í Reykjavík, kona hans er Elín Björg Guðjónsdóttir íþróttakennari, og Ingibjörg Birna, stúdent í Reykjavík. Synir þeirra Ragnhildar eru Kári, Hákon og Kjartan.
        5) Ragna Ragnars, f. 26. janúar 1958, hjúkrunarfræðingur í Reykjavík. Börn hennar eru Kristín Larsdóttir Dahl og Stefán Ari Dahl.

        General context

        Relationships area

        Related entity

        Guðrún Ragnarsdóttir Borg (1917-2004) sjúkraliði Akureyri (2.7.1917 - 22.11.2004)

        Identifier of related entity

        HAH04420

        Category of relationship

        family

        Type of relationship

        Guðrún Ragnarsdóttir Borg (1917-2004) sjúkraliði Akureyri is the sibling of Kjartan Ragnarsson Ragnars (1916-2000) sendifulltrúi frá Akureyri

        Dates of relationship

        1917

        Description of relationship

        Related entity

        Egill Ragnarsson Ragnars (1902-1977) útgerðarmaður Siglufirði (11.5.1902 - 27.3.1977)

        Identifier of related entity

        HAH03090

        Category of relationship

        family

        Type of relationship

        Egill Ragnarsson Ragnars (1902-1977) útgerðarmaður Siglufirði is the sibling of Kjartan Ragnarsson Ragnars (1916-2000) sendifulltrúi frá Akureyri

        Dates of relationship

        23.5.1916

        Description of relationship

        Related entity

        Ásgrímur Ragnars (1913-1977) fulltrúi Njarðvík (1.2.1913 - 5.10.1977)

        Identifier of related entity

        HAH03645

        Category of relationship

        family

        Type of relationship

        Ásgrímur Ragnars (1913-1977) fulltrúi Njarðvík is the sibling of Kjartan Ragnarsson Ragnars (1916-2000) sendifulltrúi frá Akureyri

        Dates of relationship

        23.5.1916

        Description of relationship

        Related entity

        Lára Ólafsdóttir (1867-1932) Verzlunarstjóri á Akureyri (16.9.1867 - 24.8.1932)

        Identifier of related entity

        HAH09166

        Category of relationship

        family

        Type of relationship

        Lára Ólafsdóttir (1867-1932) Verzlunarstjóri á Akureyri is the cousin of Kjartan Ragnarsson Ragnars (1916-2000) sendifulltrúi frá Akureyri

        Dates of relationship

        1916

        Description of relationship

        föðursystir

        Related entity

        Ólafur Jónsson (1836-1898) vert Skagaströnd og Akureyri (17.3.1836 - 26.2.1898)

        Identifier of related entity

        HAH06758

        Category of relationship

        family

        Type of relationship

        Ólafur Jónsson (1836-1898) vert Skagaströnd og Akureyri is the grandparent of Kjartan Ragnarsson Ragnars (1916-2000) sendifulltrúi frá Akureyri

        Dates of relationship

        1916

        Description of relationship

        Related entity

        Valgerður Narfadóttir (1840-1892) veitingakona Skagastönd og Akureyri (12.9.1840 - 9.6.1892)

        Identifier of related entity

        HAH07461

        Category of relationship

        family

        Type of relationship

        Valgerður Narfadóttir (1840-1892) veitingakona Skagastönd og Akureyri is the grandparent of Kjartan Ragnarsson Ragnars (1916-2000) sendifulltrúi frá Akureyri

        Dates of relationship

        1916

        Description of relationship

        Access points area

        Subject access points

        Place access points

        Occupations

        Control area

        Authority record identifier

        HAH01644

        Institution identifier

        IS HAH

        Rules and/or conventions used

        Status

        Final

        Level of detail

        Full

        Dates of creation, revision and deletion

        GPJ 30.6.2017

        Language(s)

        • Icelandic

        Script(s)

          Maintenance notes