Jónas Þorsteinsson (1930-2011) Hvammstanga og Florida

Original Digital object not accessible

Identity area

Type of entity

Person

Authorized form of name

Jónas Þorsteinsson (1930-2011) Hvammstanga og Florida

Parallel form(s) of name

  • Jónas Sigfús Þorsteinsson (1930-2011) Hvammstanga og Florida

Standardized form(s) of name according to other rules

    Other form(s) of name

      Identifiers for corporate bodies

      Description area

      Dates of existence

      22.5.1930 - 6.7.2011

      History

      Jónas Sigfús Þorsteinsson var fæddur á Hvammstanga 22. maí 1930. Hann lést 6. júlí 2011 á heimili sínu í Gulf Breeze, Florida í Bandaríkjunum.

      Places

      Hvammstangi: Florida USA:

      Legal status

      Útskrifaðist frá Stýrimannaskólanum 1954 með farmannapróf og hélt síðar til framhaldsnáms í Bandaríkjunum þar sem hann aflaði sér alþjóðlegra siglingaréttinda og tók loftsiglingafræðipróf í New Orleans.

      Functions, occupations and activities

      Starfaði hann hjá mörgum flutningafyrirtækjum þar til hann hóf kennslu í siglingafræðum við Stýrimannaskólann 1964. Er hann starfaði við skólann gaf hann út bókina „Stjörnufræði gerð auðskilin“ er kom út 1967. Árið 1968 flutti Jónas ásamt fjölskyldunni til Bandaríkjanna, fyrst til Kaliforníu og síðan 1973 til Gulf Breeze, Florida. Þá hóf Jónas aftur vinnu við stjórnun ýmissa flutningaskipa er sigldu um allan heim, eða þar til hann réð sig til starfa sem skipstjóra hjá bandarísku alríkisstjórninni sem leiðsöguskipstjóri í Panamaskurðinum. Þar starfaði hann allt þar til hann lét af störfum 1995.

      Mandates/sources of authority

      Gaf út bókina „Stjörnufræði gerð auðskilin“ er kom út 1967.

      Internal structures/genealogy

      Foreldrar hans voru Ögn Sigfúsdóttir frá Ægissíðu, f. 19. desember 1907, d. 18. apríl 2001 og Þorsteinn Georg Jónasson frá Hlíð í Húnavatnssýslu, f. 23. ágúst 1903, d. 7. júlí 1986. Jónas var elstur 9 systkina. Þau eru Margrét Bjarnfríður, f. 1932, en hún lést 2003, Viggó, f. 1934, Sverrir, f. 1936, Árni Sigurjón, f. 1939, Sigurður, f. 1945, Helgi, f. 1949, Rósa, f. 1950 og Sigríður Hansína, f. 1953.
      Eftirlifandi eiginkona Jónasar er Kolbrún Inga Hoffritz, f. 1. mars 1936 frá Selfossi. Foreldrar hennar: Karl August Adam Hoffritz 26. ágúst 1901 - 29. apríl 1980 Pípulagningarmaður. Síðast bús. í Selfosshreppi. For: Johan Heinrich Hoffritz, klénsmiður í Vanlöse á Sjálandi, og Johanne Kristine, f. Andersen og Sigurbjörg Sigurðardóttir 25. september 1906 - 14. nóvember 1996 Saumakona á Sæbóli, Stokkseyrarsókn, Árn. 1930. Síðast bús. á Selfossi.
      Dætur þeirra eru:
      1) Arndís Björg Smáradóttir, f. 27. nóvember 1957, en Jónas gekk henni í föðurstað er faðir hennar lést af slysförum árið 1958. Arndís er gift Gísla Georgssyni og á hún einn son, Smára Jónsson, f. 1980, en hann er í sambúð með Huldu Björk Sveinsdóttur, f. 1977. Smári á þrjár dætur, þær Aniku Rut, Alexöndru Ósk og Írenu Björk.
      2) Helen White, f. 7. júní 1960, en hún er gift Stuart C. White og búa þau í Austin, Texas og
      3) Iris Eastburn, f. 22. júní 1966, gift Kenneth Van Eastburn og búa þau í Gulf Breeze, Florida. Dætur þeirra eru Colleen, f. 1991 og Megan, f. 1993.

      General context

      Relationships area

      Access points area

      Subject access points

      Place access points

      Occupations

      Control area

      Authority record identifier

      HAH01608

      Institution identifier

      IS HAH

      Rules and/or conventions used

      Status

      Final

      Level of detail

      Full

      Dates of creation, revision and deletion

      GPJ 28.6.2017

      Language(s)

      • Icelandic

      Script(s)

        Maintenance notes