Jónas Reynir Jónsson (1926-2008) Melum Hrútafirði

Original Digital object not accessible

Identity area

Type of entity

Person

Authorized form of name

Jónas Reynir Jónsson (1926-2008) Melum Hrútafirði

Parallel form(s) of name

    Standardized form(s) of name according to other rules

      Other form(s) of name

        Identifiers for corporate bodies

        Description area

        Dates of existence

        5.8.1926 - 22.2.2008

        History

        Hann fæddist á Melum í Bæjarhreppi í Strandasýslu 5. ágúst 1926. Var á Melum, Prestbakkasókn, Strand. 1930. Bóndi á Melum í Bæjarhreppi, síðar húsvörður í Reykjavík. Gegndi ýmsum félags- og trúnaðarstörfum. Reykjaskóla 1945-1946
        Eftir að hjónin Elín og Jónas brugðu búi 1989 fluttu þau til Reykjavíkur og Jónas starfaði sem húsvörður í Landsbankanum allt til ársins 1995. Þar eignaðist hann góða félaga sem hann ræktaði samband við eftir að hann lét af störfum. Hann sinnti áhugamáli sínu að spila bridge og eignaðist góðan hóp kunningja í Sólheimunum. Síðustu árin naut hann góðs félagsskapar spilafélaga og vina í safnaðarheimili Langholtskirkju meðan kraftar leyfðu.
        Hann lést á líknardeild Landspítalans, Landakoti, föstudaginn 22. febrúar 2008. Jónas var jarðsunginn frá Langholtskirkju 29.2.2008 og hófst athöfnin klukkan 13.

        Places

        Legal status

        Eftir að barnaskólanámi lauk stundaði Jónas nám við Héraðsskólann að Reykjum í Hrútafirði og síðan í Kennaraskóla Íslands.
        Reykjaskóli 1945-1946

        Functions, occupations and activities

        Hann var bóndi á Melum 1951-1989 og var skólastjóri Barnaskólans á Hvammstanga á árunum 1960-1963. Þá var hann umboðsmaður Brunabótafélags Íslands í Bæjarhreppi.
        Jónas tók alla sína búskapartíð mikinn þátt í félagsstörfum jafnt innan sveitar og utan. Hann var um langt skeið í stjórn Kaupfélags Hrútfirðinga, formaður Ungmennafélagsins Dagsbrúnar og í stjórn Verkalýðsfélags Hrútfirðinga. Hann var formaður Búnaðarsambands Strandamanna um árabil og fulltrúi þess á fundum Stéttarsambands bænda, sat í sýslunefnd Strandasýslu og í stjórn Sambands íslenskra samvinnufélaga. Jónas var mikill framsóknarmaður, fór í framboð fyrir flokkinn í kjördæmi sínu í nokkrum kosningum og sat í miðstjórn flokksins um nokkurra ára skeið.

        Mandates/sources of authority

        Internal structures/genealogy

        Foreldrar; Jón Jósefsson 1. sept. 1894 - 15. júní 1952, bóndi á Melum og kona hans; Elísabet Jónasdóttir 23. nóv. 1897 - 17. jan. 1981. Húsfreyja á Melum, Prestbakkasókn, Strand. 1930. Húsfreyja á Melum í Hrútafirði.

        bræður hans;
        1) Jón Jónsson 15. júní 1925 - 23. jan. 2013. Var á Melum, Prestbakkasókn, Strand. 1930. Bóndi á Melum í Bæjarhreppi. Síðast bús. í Reykjavík. Gegndi ýmsum trúnaðarstörfum. Kona hans 1947; Þóra Ágústsdóttir f. 14. okt. 1927 - 24. jan. 2014. Var í Ánastaðaseli, Kirkjuhvammssókn, V-Hún. 1930. Húsfreyja á Melum í Hrútafirði, síðar bús. í Reykjavík.
        2) Sigurður Jónsson f. 26. sept. 1933 - 14. jan. 2023. Bóndi á Melum í Hrútafirði og fékkst við ýmis störf samhliða búskap. Síðar bús. í Reykjavík og Kópavogi.

        Kona hans 20. júlí 1952; Elín Þórdís Þórhallsdóttir 2. nóv. 1929 - 12. jan. 2013. Var á Stöpum, Kirkjuhvammssókn, V-Hún. 1930. Húsfreyja að Melum í Hrútafirði, fékkst síðar við matráðsstörf í Reykjavík. Foreldrar hennar voru Þórhallur Bjarnason og Þóra Sigvaldadóttir.

        1) Elsa, f. 4. janúar 1952, maki Gunnar Guðjónsson, synir þeirra eru Guðjón Freyr og Hörður,
        2) Ína Halldóra, f. 5. júlí 1953, maki Eggert Sveinn Jónsson, börn þeirra eru Reynir Þór og Elín Freyja,
        3) Hrafn, f. 7. júlí 1954, d. 14. apríl 2004,
        4) Þóra, f. 15. júlí 1956, dóttir hennar er Berglind,
        5) Birna, f. 29. október 1959, maki Gunnar Friðgeir Vignisson, synir þeirra Jónas Reynir og Þórhallur Elí. Fyrir átti Gunnar Vigni Þór, Gunnþór Ægi og Ásdísi Rán.

        General context

        Relationships area

        Related entity

        Reykjaskóli í Hrútafirði

        Identifier of related entity

        Category of relationship

        associative

        Dates of relationship

        1945-1947

        Description of relationship

        nemandi þar

        Related entity

        Melar í Hrútafirði

        Identifier of related entity

        Category of relationship

        associative

        Dates of relationship

        5.8.1926

        Description of relationship

        fæddur þar

        Related entity

        Jón Jónsson (1925-2013) frá Melum í Hrútafirði (15.6.1925 - 23.1.2013)

        Identifier of related entity

        HAH05194

        Category of relationship

        family

        Type of relationship

        Jón Jónsson (1925-2013) frá Melum í Hrútafirði is the sibling of Jónas Reynir Jónsson (1926-2008) Melum Hrútafirði

        Dates of relationship

        5.8.1926

        Description of relationship

        Related entity

        Elín Þórdís Þórhallsdóttir (1929-2013) frá Tungu á Vatnsnesi

        Identifier of related entity

        HAH08014

        Category of relationship

        family

        Type of relationship

        Elín Þórdís Þórhallsdóttir (1929-2013) frá Tungu á Vatnsnesi is the spouse of Jónas Reynir Jónsson (1926-2008) Melum Hrútafirði

        Dates of relationship

        20.7.1952

        Description of relationship

        Access points area

        Subject access points

        Place access points

        Occupations

        Control area

        Authority record identifier

        HAH07356

        Institution identifier

        IS-HAH

        Rules and/or conventions used

        Að venju eru upplýsingar frá Íslendingabók notaðar, ef þær stangast á við aðrar upplýsingar er þeim bætt við innan hornklofa [ ], ekki er tekin afstaða til mismunandi upplýsinga.

        Status

        Final

        Level of detail

        Full

        Dates of creation, revision and deletion

        GPJ skráning 30.9.2023

        Language(s)

        • Icelandic

        Script(s)

          Maintenance notes