Ingigerður Daníelsdóttir (1903-1990) Sóllandi Hvammstanga

Identity area

Type of entity

Person

Authorized form of name

Ingigerður Daníelsdóttir (1903-1990) Sóllandi Hvammstanga

Parallel form(s) of name

  • Ingigerður Guðbjörg Daníelsdóttir (1903-1990) Sóllandi Hvammstanga

  • Ingigerður Guðbjörg Daníelsdóttir Sóllandi Hvammstanga

Standardized form(s) of name according to other rules

    Other form(s) of name

    • Inga

    Identifiers for corporate bodies

    Description area

    Dates of existence

    13.7.1903 - 29.6.1990

    History

    Inga fæddist 13. júlí 1903 að Árnesi á Ströndum, en flutti ung með foreldrum sínum, Daníel Gestssyni og Valgerði Níelsdóttur, í Vestur-Húnavatnssýslu. Hún varí vist með foreldrum sínum á ýmsum bæjum uns hún fór í kaupavinnu um eða uppúr fermingu.
    Þegar börnin uxu úr grasi byggðu þau Inga og Sigurður nýtt hús niðri í þorpinu 1947 og heitir það Sólland, sem tónlistarskólinn er starfræktur nú. Þau fluttu í húsið 1948. Húsið er byggt á sólríkum stað.

    Inga tók til að rækta tré, blóm og garðávexti í nýja garðinum sínum og dafnaði þetta allt vel hjá henni. Síðasta húsið sem þau fluttu í á Hvammstanga var Breiðagerði og þaðan lá leiðin til Reykjavíkur haustið 1967.

    Inga og Sigurður höfðu það fyrir reglu eftir að þau eignuðust tengdabörn og barnabörn að bjóða öllum í hádegismat á aðfangadag jóla, það má því með sanni segja að jólin hafi byrjað snemma dags hjá okkur og var alltaf mikil tilhlökkun að koma til þeirra. Sigurður hjálpaði henni alltaf við að ganga frá í eldhúsinu á eftir matnum. Ég man alltaf eftir því þegar ég kom fyrst í heimsókn til þeirra, þá unglingsstúlka nýflutt frá Þórshöfn, hvað mér þótti þetta skrítið að sjá karlmann við uppvaskið en svo að sjálfsögðu vandist þetta og til allrar lukku erfðu drengirnir þetta frá honum og margt fleira gott.

    Inga kom á Sjúkrahúsið á Hvammstanga 22. október 1983 og eru því orðin nærri því sjö ár sem hún hefur verið sjúklingur hér, áður var hún búin að dvelja á elliheimilinu Grund í Reykjavík.

    Places

    Árnes á Ströndum; Grund Hvammstanga; Bjargarbær; Sólland; Grund Reykjavík:

    Legal status

    Functions, occupations and activities

    Mandates/sources of authority

    Árið 1952 orti Sigurður Gíslason ljóðið „Draumastúlkan“ sem birtist í ljóðabók hans, "Blá grýti".

    Í kossum þínum eru ástartöfrar,
    í augna þinna ljóma gleðin býr.
    Í hlýjum æsku bjarma brosa þinna
    er blíða, ró og dulið ævintýr.

    Á himni mínum ertu stjarnan eina.
    Í ævi minnar bikar skín þitt vín.
    Ég elska þig af æskuheitum funa,
    yndislega draumastúlkan mín.

    Internal structures/genealogy

    Foreldrar hennar; Daníel Gestsson 6. okt. 1865 - 28. nóv. 1945. Niðurseta í Lækjabæ, Efrinúpssókn, Hún. 1870. Léttadrengur á Lækjabæ, Efranúpssókn, Hún. 1880. Vinnumaður á Fallandastöðum, Staðarsókn, Hún. 1890. Hjú í Staðarbakka, Staðarbakkasókn, Hún. 1901. Fór 1902 úr Staðarbakkasókn að Hvalsá í Prestbakkasókn. Fór 1903 frá Stóru-Hvalsá í Prestbakkasókn að Árnesi. Bóndi á Neðra-Vatnshorni í Kirkjuhvammshr., V-Hún., síðast húsmaður á Hvammstanga og kona hans; Valgerður Níelsdóttir 5. des. 1868 - 19. nóv. 1954. Var á Egilsstöðum, Tjarnarsókn, Hún. 1870. Hjú í Stóruhvalsá, Prestbakkasókn, Strand. 1901. Fer 1903 frá Stóru-Hvalsá í Prestbakkasókn að Árnesi. Húsfreyja á Hvammstanga 1930. Húsfreyja á Neðra-Vatnshorni í Kirkjuhvammshr., V-Hún. síðar á Hvammstanga.

    Systir Ingigerðar;
    1) Níelsína Ósk Daníelsdóttir Wiium 23. feb. 1913 - 7. okt. 1993. Húsfreyja og verkakona í Reykjavík. Húsfreyja í Reykjavík 1945. Fyrri maður hennar 1932; Sigurður Magnússon Wiium 2. apríl 1903 - 21. des. 1957. Var í Þykkvabæ I, Prestbakkasókn 1910. Loftskeytamaður á Laugavegi 52, Reykjavík 1930. Loftskeytamaður í Reykjavík 1945.
    M2 1973; Jón Bergmann 28. apríl 1922 - 8. maí 1990. Var í Keflavík 1930. Síðast bús. í Reykjavík.

    Maður hennar; Sigurður Gíslason 2. júlí 1905 - 30. maí 1977. Verkamaður á Hvammstanga 1930. Var í Sóllandi, Hvammstangahr., V-Hún. 1957. Grund og Bjargarbæ á Hvammstanga. Verslunarmaður. Síðast bús. í Reykjavík.

    Börn þeirra;
    1) Ármann Karl Sigurðsson 11. júlí 1931 - 2. sept. 2012. Var í Sóllandi, Hvammstangahr., V-Hún. 1957, kvæntur Jóhönnu Birnu Ágústsdóttur. Þau eiga þrjúbörn, Sigurð Birgi, hans unnusta er Ingibjörg Rebekka Helgadóttir, búsett á Hvammstanga. Kolbrúnu, hún er gift Guðmundi Erlendssyni, eiga þau tvö börn, Jóhönnu Birnu og Erlend Inga, búsett á
    2) Gunnar Valgeir Sigurðsson 10.11.1932. Kfstj Hvammstanga. Var í Sóllandi, Hvammstangahr. 1957. Kona Gunnars; Hildur Kristín Jakobsdóttir 7. mars 1935 - 23. jan. 2003. Var í Hlégarði, Hvammstangahr., V-Hún. 1957. Verslunarmaður og handavinnukennari á Hvammstanga. Síðast bús. á Akureyri.
    3) Bryndís Maggý Sigurðardóttir 28. des. 1939. Var í Sóllandi, Hvammstangahr., V-Hún. 1957, gift Gunnari Sölva Sigurðssyni. Þau eiga tvö börn, Sigurð Inga, hann er í foreldrahúsum, og Valgerði Mörtu, hún er gift Benedikt Emil Jóhannssyni, búsett í Reykjavík, eiga þau þrjú börn, Evu Björk, Gunnar Örn og Lilju.
    4) Guðmundur Már Sigurðsson, búsettur í Reykjavík, fæddur 23. janúar 1945, kvæntur Ragnhildi Guðrúnu Karlsdóttur. Þau eiga þrjár dætur, Brynhildi, Ingu Hönnu og Gunnlaugu, þær eru allar í foreldrahúsum.

    General context

    Relationships area

    Related entity

    Hvammstangi (13.12.1895 -)

    Identifier of related entity

    HAH00318

    Category of relationship

    associative

    Dates of relationship

    1929

    Description of relationship

    Bjó þar fyrst að Grund, Bjargarbæ sem voru torfhýsi og síðast á Sóllandi sem þau hjón byggðu

    Related entity

    Karl Sigurðsson (1931-2012) frá Sóllandi Hvammstanga (11.7.1931 - 2.9.2012)

    Identifier of related entity

    HAH07485

    Category of relationship

    family

    Type of relationship

    Karl Sigurðsson (1931-2012) frá Sóllandi Hvammstanga is the child of Ingigerður Daníelsdóttir (1903-1990) Sóllandi Hvammstanga

    Dates of relationship

    11.7.1931

    Description of relationship

    Related entity

    Gunnar Sigurðsson (1932) frá Sóllandi Hvammstanga (10.11.1932 -)

    Identifier of related entity

    HAH04539

    Category of relationship

    family

    Type of relationship

    Gunnar Sigurðsson (1932) frá Sóllandi Hvammstanga is the child of Ingigerður Daníelsdóttir (1903-1990) Sóllandi Hvammstanga

    Dates of relationship

    10.11.1932

    Description of relationship

    Access points area

    Subject access points

    Place access points

    Occupations

    Control area

    Authority record identifier

    HAH03804

    Institution identifier

    IS HAH

    Rules and/or conventions used

    Status

    Final

    Level of detail

    Full

    Dates of creation, revision and deletion

    GPJ 11.8.2019

    Language(s)

    • Icelandic

    Script(s)

      Maintenance notes