Ingibjörg Sveinbjörnsdóttir (1917-2004) Seyðisfirði

Identity area

Type of entity

Person

Authorized form of name

Ingibjörg Sveinbjörnsdóttir (1917-2004) Seyðisfirði

Parallel form(s) of name

  • Inga á Eyri (1917-2004)

Standardized form(s) of name according to other rules

    Other form(s) of name

      Identifiers for corporate bodies

      Description area

      Dates of existence

      10.11.1917 - 7.5.2004

      History

      Inga á Eyri eins og hún var oftast kölluð, var fædd á Vestdalseyri í Seyðisfirði 10. nóvember 1917. Hún lést á Heilbrigðisstofnuninni á Siglufirði 7. maí síðastliðinn. Ingibjörg ólst upp á Vestdalseyrinni, og fluttist með fjölskyldunni inn í kaupstaðinn skömmu eftir að bræður hennar drukknuðu. Er hún var nokkurra ára var hún smátíma í fóstri hjá þeim hjónum Láru Bjarnadóttur frá Hvanneyri í Siglufirði og Gísla Lárussyni, en fór svo aftur til foreldra sinna.
      Ung að árum fór hún til Reykjavíkur og starfaði þar á Hótel Heklu og einnig aðstoðaði hún móðursystur sína Pálínu Ottadóttur við verslun þá er hún rak á Baldursgötu 36 í Reykjavík og eins við heimilisstörf.
      Fyrir sunnan kynntist hún eiginmanni sínum og fluttust þau til Siglufjarðar, festu þar kaup á húseigninni við Hvanneyrarbraut 28b og bjuggu þar allan sinn búskap.
      Ingibjörg vann við ýmis störf með húsmóðurstarfinu, við síldarsöltun og fiskvinnslu. Ingibjörg tók virkan þátt í félagslífi á Siglufirði. Hún var félagi í Slysavarnafélaginu Vörn á Siglufirði og var kjörin heiðursfélagi 1992.
      Útför Ingibjargar verður gerð frá Siglufjarðarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14.

      Places

      Vestdalseyri í Seyðisfirði: Siglufjörður:

      Legal status

      Functions, occupations and activities

      Mandates/sources of authority

      Internal structures/genealogy

      Foreldrar hennar voru hjónin Oddfríður Ottadóttir húsmóðir og verkakona, f. 27. júlí 1882 á Kúludalsá í Innri-Akraneshreppi, d. 30. september 1961, og Sveinbjörn Árni Ingimundarson sjó- og verkamaður, f. 26. desember 1878 á Tungubakka í A-Húnavatnssýslu, d. 4. ágúst 1956.
      Systkini Ingibjargar eru: Hallfríður Jóna Lindhart, hálfsystir, f. 8. desember, bjó í Danmörku, látin; Svava, f. 25. október 1908, d. 15. desember 1983, var búsett á Seyðisfirði; Sveinn Jóhann, f. 22. september 1910, drukknaði við heyflutninga í Seyðisfirði 23. september 1930; Guðrún Ásta, f. 31. október 1911, d. 9. júní 2002, var búsett á Seyðisfirði; Ingi Vilberg, f. 29. apríl 1913, d. 12. júlí sama ár. Daníel f. 15. júlí 1914, d. 5. október sama ár; Ingvi Hrafn, f. 1. júlí 1915, drukknaði með bræðrum sínum 23. september 1930, Ingimundur, f. 4. nóvember 1916, drukknaði með bræðrum sínum 23. september 1930; Otti Vilbergur, f. 20. júlí 1920, búsettur á Seyðisfirði.
      Ingibjörg eignaðist soninn
      1) Ingva Jóhann Svavarsson, f. 26. janúar 1934, kvæntur Huldu Halldóru Gunnþórsdóttur, f. 1935, börn þeirra eru Katrín Dagmar, f. 1958, Oddfríður Lára, f. 1961, Hjördís Hrund, f. 1965, Gunnþór Björn, f. 1968.
      Hinn 6. desember 1942 kvæntist Ingibjörg Jóni Sigurðssyni frá Eyri á Siglufirði, f. 17. júní 1914, d. 12. janúar 1982. Ingibjörg og Jón eignuðust fimm börn. Þau eru:
      1) Sigurður, f. 17. ágúst 1946, kvæntur Sigrúnu Ólafsdóttur, f. 1942, og á hann eina fósturdóttur, Ólöfu Ingimundardóttur, f. 1964.
      2) Sveinbjörn, f. 14. maí 1948, kvæntur Björgu Hjartardóttur, börn þeirra eru Ingibjörg, f. 1971, Jón Hjörtur, f. 1972, og Unnþór, f. 1974.
      3) Skúli, f. 11. janúar 1951, kvæntur Þórunni Kristinsdóttur, f. 1960, börn þeirra eru Bára Kristín, f. 1980, Sigurður Davíð, f. 1990, og Eyrún Sif, f. 1991.
      4) Sævar, f. 18. nóvember 1953, kvæntur Álfheiði Heiðar Sigurjónsdóttur, f. 1952, börn þeirra eru Ólafur Smári, f. 1970, Jón Ingi, f. 1974, Ægir Kristinn, f. 1979.
      5) Oddfríður, f. 27. júlí 1955, gift Sigfúsi Tómassyni, f. 1950, börn þeirra eru Sigríður Gréta, f. 1978, Aðalheiður, f. 1984, og Herbert Ingi, f. 1990. Langömmubörnin eru 17 talsins.

      General context

      Relationships area

      Related entity

      Svava Sveinbjörnsdóttir (1908-1983) Seyðisfirði (25.10.1908 - 15.12.1983)

      Identifier of related entity

      HAH09510

      Category of relationship

      associative

      Dates of relationship

      Description of relationship

      Related entity

      Ingvi Hrafn Sveinbjörnsson (1915-1930) Seyðisfirði (1.7.1915 - 23.9.1930)

      Identifier of related entity

      HAH09507

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Ingvi Hrafn Sveinbjörnsson (1915-1930) Seyðisfirði is the sibling of Ingibjörg Sveinbjörnsdóttir (1917-2004) Seyðisfirði

      Dates of relationship

      10.11.1917

      Description of relationship

      Related entity

      Sveinbjörn Jóhann Sveinbjörnsson (1910-1930) Seyðisfirði (22.9.1910 - 23.9.1930)

      Identifier of related entity

      HAH09509

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Sveinbjörn Jóhann Sveinbjörnsson (1910-1930) Seyðisfirði is the sibling of Ingibjörg Sveinbjörnsdóttir (1917-2004) Seyðisfirði

      Dates of relationship

      10.11.1917

      Description of relationship

      Related entity

      Ingimundur Sveinbjörnsson (1916-1930) Seyðisfirði (4.11.1916 - 23.9.1930)

      Identifier of related entity

      HAH09508

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Ingimundur Sveinbjörnsson (1916-1930) Seyðisfirði is the sibling of Ingibjörg Sveinbjörnsdóttir (1917-2004) Seyðisfirði

      Dates of relationship

      10.11.1917

      Description of relationship

      Related entity

      Svava Sveinbjörnsdóttir (1908-1983) Seyðisfirði (25.10.1908 - 15.12.1983)

      Identifier of related entity

      HAH09510

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Svava Sveinbjörnsdóttir (1908-1983) Seyðisfirði is the sibling of Ingibjörg Sveinbjörnsdóttir (1917-2004) Seyðisfirði

      Dates of relationship

      10.11.1917

      Description of relationship

      sammæðra

      Related entity

      Oddfríður Ottadóttir (1882-1961) Seyðisfirði (27.7.1882 - 30.9.1961)

      Identifier of related entity

      HAH09511

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Oddfríður Ottadóttir (1882-1961) Seyðisfirði is the parent of Ingibjörg Sveinbjörnsdóttir (1917-2004) Seyðisfirði

      Dates of relationship

      10.11.1917

      Description of relationship

      Access points area

      Subject access points

      Place access points

      Occupations

      Control area

      Authority record identifier

      HAH01509

      Institution identifier

      IS HAH

      Rules and/or conventions used

      Status

      Final

      Level of detail

      Full

      Dates of creation, revision and deletion

      GPJ 24.6.2017

      Language(s)

      • Icelandic

      Script(s)

        Maintenance notes