Indriði Brynjólfsson (1897-1977) Sæbóli Skagaströnd

Identity area

Type of entity

Person

Authorized form of name

Indriði Brynjólfsson (1897-1977) Sæbóli Skagaströnd

Parallel form(s) of name

Standardized form(s) of name according to other rules

Other form(s) of name

Identifiers for corporate bodies

Description area

Dates of existence

17.8.1897 - 8.12.1977

History

Þann 8. desember 1977 andaðist í Borgarsjúkrahúsinu í Reykjavík Indriði Brynjólfsson. Hann var fæddur 17. ágúst 1897 á Broddanesi í Strandasýslu. Voru foreldrar hans Brynjólfur Lýðsson, Jónssonar frá Skriðnesenni í Bitru, er var mikill höfðingi í sinni sveit og riddari af Fálkaorðunni, og konu hans Kristínar Indriðadóttur frá Ytri-Ey í Vindhælishreppi, en hún var mikilhæf kona. Fljótlega fluttu foreldrar Indriða að YtriEy og bjuggu þar allan sinn búskap. Ólst Indriði þar upp í glöðum og mannvænlegum systkinahópi. Hann vann að margvíslegum störfum til sjós og lands með föður sínum. Þá var Brynjólfur Lýðsson manna hagastur á tré og járn og hafði smiðju, fór eigi hjá því að Indriði lærði margt handbragða af honum. Þá mun Indriði hafa verið með föður sínum er hann vann hvalinn 1918 fram undan Vindhælisstöpum. Indriði var því vel búinn út í lífið, auk þess sem hann var hraustmenni og vinnugefinn, hann var og hár maður vexti. Hann hóf snemma ferðir suður á vetrarvertíð í verið á Suðurnesjum, síðan fór hann á togara, sem þótti hámark sjómennskunnar í þá daga. A sumrin vann hann á búi foreldra sinna og stundaði grenjavinnslu á vorin.
Var á Ytri-Ey, Hofssókn, A-Hún. 1930. Verkamaður á Sæbóli á Skagaströnd og síðar í Reykjavík.
Indriði var jarðsettur á Höskuldsstöðum 17. desember 1977.

Places

Ytri-Ey
Sæból
Reykjavík.

Legal status

Functions, occupations and activities

Mandates/sources of authority

Internal structures/genealogy

Foreldrar hans; Brynjólfur Lýðsson 3. nóvember 1875 - 27. apríl 1970 Bóndi og smiður á Ytri-Ey, Hofssókn, A-Hún. 1930. Bóndi í Ytri-Ey í Vindhælishreppi. Var í Sæbóli, Höfðahr., A-Hún. 1957. Síðast bús. í Höfðahreppi og kona hans 17.10.1896; Kristín Guðmundína Indriðadóttir 21. febrúar 1873 - 2. maí 1941. Var á Efri-Skúf, Höskuldsstaðasókn, Hún. 1880. Var á Ytri-Ey, Höskuldsstaðasókn, Hún. 1890. Húsfreyja í Ytri-Ey á Skagaströnd. Húsfreyja á Ytri-Ey, Hofssókn, A-Hún. 1930.

Systkini hans;
1) Guðbjörg Brynjólfsdóttir 12. nóvember 1898 - 3. júlí 1982 Húsfreyja í Reykjavík 1945. Síðast bús. í Reykjavík. M1; Hannes Sigurður Einarsson 19. september 1895 - 18. október 1940 Stýrimaður í Reykjavík. M2; Lárus Hansson 16. desember 1891 - 14. mars 1958 Verkamaður. Var í Reykjavík 1910 en átti lögheimili í Svanga í Skorradal. Innheimtumaður á Lindargötu 14, Reykjavík 1930. Innheimtumaður í Reykjavík 1945.
2) Ragnheiður Brynjólfsdóttir 22. maí 1901 - 10. júní 1994 Húsfreyja á Lindargötu 43 b, Reykjavík 1930. Var í Böðvarshúsi, Blönduóshr., A-Hún. 1957. Klæðskeri og handavinnukennari, síðast bús. í Reykjavík. Maður hennar 12.11.1926; Þorvaldur Þórarinsson 16. nóvember 1899 - 2. nóvember 1981 Skrifstofumaður á Lindargötu 43 b, Reykjavík 1930. Skrifstofumaður á Blönduósi, síðar bókari í Reykjavík. Var í Böðvarshúsi, Blönduóshr., A-Hún. 1957. Þau skildu.
3) Magnús Leó Brynjólfsson 18. júlí 1903 - 25. mars 1941 Sjómaður í Hafnarfirði 1930. Sjómaður í Reykjavík. Kona hans; Guðrún Sigurveig Sigurðardóttir 22. júní 1903 - 12. apríl 1973 Húsfreyja í Hafnarfirði 1930. Ekkja í Reykjavík 1945. Húsfreyja, síðast bús. í Reykjavík.
4) Jóhann Bergmann Brynjólfsson 15. ágúst 1905 - 27. ágúst 1990 Vinnumaður í Hafnarfirði 1930. Var í Sæbóli, Höfðahr., A-Hún. 1957. Bóndi á Ytri-Ey og síðar verkamaður á Akureyri. M1; Kristín Vilhjálmsdóttir 7. maí 1896 - 1. mars 1978 Var í Ásgeirsárseli, Víðidalstungusókn, Hún. 1901. Húsfreyja á Hnausum, Þingeyrasókn, A-Hún. 1930. Ljósmóðir. Síðast bús. í Reykjavík. Þau skildu. M2 11.10.1853; Ester Jónsdóttir Thorlacius 29. október 1903 - 9. júní 1991 Var á Öxnafelli, Saurbæjarsókn, Eyj. 1930. Var í Sæbóli, Höfðahr., A-Hún. 1957. Síðast bús. í Glæsibæjarhreppi .
5) Anna Súsanna Brynjólfsdóttir 1. september 1907 - 22. október 1908
6) Anna Súsanna Brynjólfsdóttir 6. janúar 1910 - 22. maí 1999 Var á Ytri-Ey, Hofssókn, A-Hún. 1930. Kjólameistari, síðast bús. í Reykjavík. Kjörbarn: Jón Ásgeirsson, f. 11.5.1950. Maður hennar; Ásgeir Jónsson 1. janúar 1914 - 14. nóvember 2005 Stofnandi og eigandi vinnuvélafyrirtækisins Hegra h.f., síðast bús. í Reykjavík.
7) Lýður Brynjólfsson 25. október 1913 - 12. mars 2002 Var á Ytri-Ey, Hofssókn, A-Hún. 1930. Húsasmiður og kennari. Síðar skólastjóri við Iðnskólann í Vestmannaeyjum. Kona hans; Auður Guðmundsdóttir 27. janúar 1918 - 1. febrúar 2003 Var á Vestmannabraut 29 , Vestmannaeyjum 1930. Síðast bús. í Vestmannaeyjum.

Kona hans 12.12.1932; Ingunn Margrét Díana Gísladóttir 4. ágúst 1900 - 23. október 1951. Var á Flateyri, Holtssókn, V-Ís. 1901. Verslunarstúlka á Hverfisgötu 98 a, Reykjavík 1930. Húsfreyja á Sæbóli. Hét fullu nafni Ingunn Margrét Díana Guðborg Gísladóttir.

Synir þeirra;
1) Haukur Borg Indriðason 18. feb. 1934 - 11. okt. 2009. Vélvirki
2) Indriði Indriðason 11.2.1936 - 4.8.1998. Sjómaður og síðar vinnuvélamaður. Síðast bús. í Reykjavík. Kona hans 6.9.1958; Steinunn Unnur Hákonardóttir 9.5.1935 - 4.2.2013.
Fékkst við umönnunarstörf í Kópavogi og Reykjavík. Indriði sonur þeirra var annar nemandi Guðmundar bakarameistara á Blönduósi, Kona Indriða Anna Helgadóttir Seljan.
3) Þórarinn Indriðason 15.6.1937 - 24.10.2018. Atvinnurekandi.

General context

Relationships area

Access points area

Subject access points

Place access points

Occupations

Control area

Authority record identifier

HAH08879

Institution identifier

IS HAH

Rules and/or conventions used

Að venju eru upplýsingar frá Íslendingabók notaðar, ef þær stangast á við aðrar upplýsingar er þeim bætt við innan hornklofa [ ], ekki er tekin afstaða til mismunandi upplýsinga.

Status

Final

Level of detail

Full

Dates of creation, revision and deletion

GPJ skráning 21.4.2022

Language(s)

  • Icelandic

Script(s)

Maintenance notes

  • Clipboard

  • Export

  • EAC

Related subjects

Related places