Foreldrar; Sigfús Jónasson 20. apríl 1876 - 14. febrúar 1952. Bóndi og bókbindari í Forsæludal í Vatnsdal, Áshr., A-Hún. lengst af frá um 1908 til 1952. Bóndi og bókbindari þar 1930 og kona hans 11.8.1908; Sigríður Indíana O. Ólafsdóttir 22. október 1886 - 9. júlí 1960 Með foreldrum á Sneis til 1890 og síðan á Blönduósi fram undir 1910. Húsfreyja í Forsæludal í Vatnsdal, Áshreppi, A-Hún. Fluttist þangað 1908 og var húsfreyja þar fram undir 1950. Húsfreyja í Forsæludal, Undirfellssókn, A-Hún. 1930. Dvaldi þar síðan með börnum sínum. Frá Ólafshúsi á Blönduósi.
Systkini; 1) Ingibjörg Sigfúsdóttir 24. jan. 1909 - 10. jan. 2002. Vinnukona á Forsæludal, Undirfellssókn, A-Hún. 1930. Var á Refsteinsstöðum, Þorkelshólshreppi, V-Hún. 1957. Húsfreyja þar 1960. Kjörsonur skv. Hún.: Þórir Heiðmar Jóhannsson, f. 23.12.1941. 2) Benedikt Sigfússon 21. maí 1911 - 16. apríl 1994. Vinnumaður á Forsæludal, Undirfellssókn, A-Hún. 1930. Bóndi víða um Saurbæjarhreppi, Eyjaf., síðast búsettur á Akureyri. Ókvæntur. 3) Jónas Sigfússon 4. sept. 1913 - 24. júlí 1971. Vinnumaður á Forsæludal, Undirfellssókn, A-Hún. 1930. Bóndi í Forsæludal, Áshr. Ókvæntur og barnlaus. 4) Sigríður Sigfúsdóttir 18. sept. 1915 - 30. jan. 2003. Var í Forsæludal, Undirfellssókn, A-Hún. 1930 og 1957. 5) Sigfús Sigfússon 19. nóv. 1917 - 29. sept. 2002. Var á Forsæludal, Undirfellssókn, A-Hún. 1930. Var á Orrastöðum í Torfalækjarhreppi, A-Hún. 1957. Bóndi í Gröf í Víðidal og Þórormstungu í Vatnsdal. 6) Ólafur Sigfússon 26. jan. 1920 - 6. júlí 1986. Var á Forsæludal, Undirfellssókn, A-Hún. 1930. Bóndi og smiður í Forsæludal. Síðast bús. í Blönduóshreppi. Ókvæntur. Drukknaði. Skáldmæltur og voru ljóð hans gefin út. 7) Guðrún Sigfúsdóttir 18.5.1924 - 29.8.2016 Flögu í Vatnsdal 1962-1989, sambýlismaður 1944; Ívar Níelsson, f. 29.12. 1912, d. 23.4. 1999. Bóndi Flögu í Vatnsdal.
Maður Indíönu; Bragi Arnar Haraldsson 30. júlí 1932. Var í Forsæludal, Áshr., A-Hún. 1957. Bóndi Sunnuhlíð frá 1962. Bf hennar 25.6.1949; Ragnar Ólafur Sigurðsson 21. ágúst 1922 - 16. feb. 1968. Verkamaður. Síðast bús. í Hafnarfirði. Var í Gröf, Víðidalstungusókn, V-Hún. 1930. Fósturfor: Gunnar Jónsson og Ingibjörg Gunnarsdóttir.
Börn; 1) Sigríður Ingibjörg Ragnarsdóttir 25.6.1949. Forsæludal. Maður hennar; Lúther Þór Olgeirsson 24. apríl 1943 Fæddur 23.4.1943 skv. kb. Bóndi Forsæludal. 1) Sigfús Indriði Bragason 25. ágúst 1953. Var í Forsæludal, Áshr., A-Hún. 1957. 2) Kristín Bragadóttir 5. desember 1954. 3) Ólafur Bragason 16. apríl 1957. 4) Jónas Bragason 17. september 1958 - 3. mars 1991. Bóndi á Marðarnúpi og síðar í Sunnuhlíð, Áshr., A-Hún. Síðast bús. í Áshreppi. 5) Helgi Bragason 6. apríl 1961. Zóphoníasarhúsi á Blönduósi. 6) Árni Bragason 1. júlí 1965.
Indiana var fædd að bænum Forsæludal og stendur bærinn þar fremst og austan Vatnsdalsár. 16. júní 1927 - 18. okt. 2008. Var á Forsæludal, Undirfellssókn, A-Hún. 1930. Var í Forsæludal, Áshr., A-Hún. 1957. Í Forsæludal byrjaði Indiana síðan búskap með Braga Haraldssyni en þau fluttu sig síðan á næsta bæ, Sunnuhlíð, árið 1962. Í Sunnuhlíð voru þau búandi, fyrst sem leiguliðar en keyptu seinna jörðina og bjuggu þar síðan. Í Forsæludal og Sunnuhlíð bjó Indiana alla ævi, fyrir utan síðustu tvö árin. Þann tíma var hún á Heilbrigðisstofnuninni á Blönduósi, þar andaðist hún og var útför hennar gerð frá Undirfellskirkju 25. október 2008.
„Ferðaþrá í brjósti brann burt um víða geyma. En allt það sem ég fegurst fann, fann ég hérna heima“.
námsmey þar
Húsfreyja þar
Fædd þar og svo húsfeyja til 1962