Identity area
Type of entity
Authorized form of name
Parallel form(s) of name
Helena Martha Heckel (1923-2007)
Helena Martha Ottósdóttir Heckel (1923-2007)
Standardized form(s) of name according to other rules
Other form(s) of name
Identifiers for corporate bodies
Description area
Dates of existence
History
Helena Martha Ottósdóttir fæddist í Pirna í Saxlandi í austurhluta Þýskalands 14. september 1923. Hún lést á Heilbrigðisstofnuninni á Blönduósi 22. nóvember síðastliðinn. Eftir lát Georgs flutti Helena aftur til Blönduóss og bjó þar til dauðadags.
Útför Helenu verður gerð frá Blönduóskirkju í dag og hefst athöfnin kl. 14.
Places
Pirna Austur Saxlandi: A-Húnavatnssýsla: Skagaströnd: Neskaupsstaður: Blönduós:
Legal status
Verslunarpróf Pirna 1940: Helena lauk prófi frá Ljósmæðraskóla Íslands 1959: Árið 1972 fór hún í Nýja hjúkrunarskólann og útskrifaðist 1974.
Functions, occupations and activities
Helena lauk verslunarskólaprófi í Pirna 1940 og starfaði í nokkur ár á skrifstofu flutningafyrirtækis þar í borg.
Hafði þegar verið ráðin héraðsljósmóðir á Skagaströnd er hún hélt til náms. Hún starfaði sem héraðsljósmóðir á Skagaströnd, og síðar á Blönduósi, 1958-1972. Á þessu tímabili leysti Helena af í rúmt ár sem ljósmóðir við Fjórðungssjúkrahúsið á Neskaupstað, og síðar einnig á Blönduósi á tímabilinu 1975-1979. Helena starfaði sem hjúkrunarfræðingur á Héraðshælinu á Blönduósi 1975-1985, en á starfstíma sínum þar leysti hún af nokkrum sinnum sem hjúkrunarforstjóri og stóð ennfremur fyrir skurðstofu. Hún starfaði síðar sem hjúkrunarfræðingur á heilsuhæli NLFÍ í Hveragerði 1985-1986 og loks á Hrafnistu í Reykjavík 1986-1990, þar til hún hætti störfum fyrir aldurs sakir.
Mandates/sources of authority
Internal structures/genealogy
Foreldrar hennar voru Karl Otto Heckel járnbrautarstarfsmaður, f. 1.7. 1887, d. 12.5. 1945, og Martha Anna kona hans, húsmóðir, f. 14.5. 1898, d. 9.11. 1953.
Systir Helenu er
1) Hildegard Langwost, fædd Heckel í Pirna 4.6. 1929.
Helenu tókst að komast til Eutin í Norður-Þýskalandi 1946, skömmu áður en ferðafrelsi var heft milli hernámssvæða.
Árið 1947 giftist hún Horst Hülsdunk bifreiðarstjóra. Þau bjuggu í Eutin þar til þau komu til Íslands með Esjunni í júní 1949 á vegum Búnaðarfélags Íslands og réðu sig til landbúnaðarstarfa í Húnavatnssýslum.
Dóttir þeirra er
1) Sólveig, f. 20.2. 1950, gift Hans Kristjáni Guðmundssyni, sonur þeirra er Gunnar Ólafur, f. 8.9. 1969, kvæntur Suzanne Gessner. Dætur Gunnars eru Elísabet, f. 9.1. 1992 (móðir hennar er Ásdís Þórhallsdóttir), og Yrsa Kristín Ella, f. 14.1. 2005. Helena og Horst skildu.
Þann 17.11. 1956 giftist Helena Georg Rafni Hjartarsyni, múrara frá Skagaströnd, f. 27.5. 1923, d. 13.9. 2001. Foreldrar Georgs voru Hjörtur Jónas Klemensson formaður, f. 15.2. 1887, d. 6.2. 1965, og Ásta Þórunn Sveinsdóttir húsfreyja, f. 21.7. 1891, d. 30.12. 1960. Georg gekk Sólveigu dóttur Helenu í föðurstað og ættleiddi hana. Helena og Georg eignuðust saman þrjú börn, þau eru:
2) Ásta Hjördís, f. 12.6. 1957, sambýlismaður Ingólfur Birgisson. Börn hennar eru a) Egill Eydal, f. 7.10. 1984, og b) Aron Kári, f. 20.2. 1990.
3) Georg Ottó, f. 30.3. 1962, sambýliskona Linda Velander. Börn þeirra eru a) Mikaela Helena, f. 18.3. 1995, og b) Mark Örn, f. 20.7. 1999.
4) Sigurður Arinbjörn, f. 2.5. 1964, sambýliskona Sólveig Guðmundsdóttir. Börn Sigurðar eru a) Anný Mjöll, f. 24.10. 1992 (móðir hennar er Aldís Hreinsdóttir), og b) Garðar Rafn, f. 28.11. 1999. Stjúpdóttir Sigurðar er Sóley Guðmundsdóttir, dóttir Sólveigar.
General context
Relationships area
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Type of relationship
Dates of relationship
Description of relationship
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Type of relationship
Dates of relationship
Description of relationship
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Type of relationship
Dates of relationship
Description of relationship
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Type of relationship
Dates of relationship
Description of relationship
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Type of relationship
Dates of relationship
Description of relationship
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Type of relationship
Dates of relationship
Description of relationship
Access points area
Subject access points
Place access points
Occupations
Control area
Authority record identifier
Institution identifier
Rules and/or conventions used
Status
Level of detail
Dates of creation, revision and deletion
GPJ 19.6.2017
Language(s)
Icelandic
Script(s)
Sources
®GPJ ættfræði
mbl 3.12.2007. https://www.mbl.is/greinasafn/grein/1178494/?item_num=1&searchid=12e6a7741283a2c623b05020f5933674822c794c