Haukur Níelsson (1921-2004)

Identity area

Type of entity

Person

Authorized form of name

Haukur Níelsson (1921-2004)

Parallel form(s) of name

    Standardized form(s) of name according to other rules

      Other form(s) of name

        Identifiers for corporate bodies

        Description area

        Dates of existence

        13.12.1921 - 27.8..2004

        History

        Haukur Níelsson bóndi á Helgafelli í Mosfellssveit, fæddist í Reykjavík 13. desember 1921. Hann andaðist 27. ágúst síðastliðinn.
        Haukur ólst upp á Helgafelli. Hann stundaði nám í Íþróttaskólanum í Haukadal 1938 til 1939 og lauk búfræðiprófi frá Bændaskólanum á Hvanneyri 1941. Haukur var verkstjóri hjá Hitaveitu Reykjavíkur 1945 til 1953 er hann gerðist bóndi á Helgafelli. Hann var skipaður fangavörður við Hegningarhúsið í Reykjavík 1971 og gegndi því starfi í 12 ár. Haukur sat í hreppsnefnd Mosfellssveitar 1966 til 1986 og var formaður Búnaðarfélags Mosfellshrepps frá 1969 til 1994. Hann var kosinn í stjórn Kaupfélags Kjalarnesþings 1971 og var formaður stjórnar frá 1974 til 1994, sat í skólanefnd Bændaskólans á Hvanneyri 1976 til 1984, var formaður Framsóknarfélags Kjósarsýslu um langt ára bil auk þess sem hann sat í stjórn fleiri félaga s.s. Hestamannafélagsins Harðar og Skógræktarfélags Mosfellssveitar.
        Útför Hauks verður gerð frá Lágafellskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15.

        Places

        Helgafell í Mosfellssveit:

        Legal status

        Nám í Íþróttaskólanum í Haukadal 1938 til 1939 og lauk búfræðiprófi frá Bændaskólanum á Hvanneyri 1941.

        Functions, occupations and activities

        Bóndi:

        Mandates/sources of authority

        Hann var skipaður fangavörður við Hegningarhúsið í Reykjavík 1971 og gegndi því starfi í 12 ár. Haukur sat í hreppsnefnd Mosfellssveitar 1966 til 1986 og var formaður Búnaðarfélags Mosfellshrepps frá 1969 til 1994. Hann var kosinn í stjórn Kaupfélags Kjalarnesþings 1971 og var formaður stjórnar frá 1974 til 1994, sat í skólanefnd Bændaskólans á Hvanneyri 1976 til 1984, var formaður Framsóknarfélags Kjósarsýslu um langt ára bil auk þess sem hann sat í stjórn fleiri félaga s.s. Hestamannafélagsins Harðar og Skógræktarfélags Mosfellssveitar.

        Internal structures/genealogy

        Haukur var sonur Níelsar Guðmundssonar bónda í Laxárholti í Hraunhreppi, síðar á Helgafelli í Mosfellssveit, f. 1.7. 1887, d. 29.3. 1963, og Unnar Guðmundsdóttur húsfreyju, f. 12.3. 1881, d. 24.1. 1947.
        Systkini Hauks eru Marta, f. 1.4. 1914, d. 19.10. 1940 og Sverrir Jón, f. 14 11. 1916.

        Haukur kvæntist 24.10. 1942 Önnu Sigríði Steingrímsdóttur húsfreyju, f. 18.4. 1919, d. 23.5. 1993. Hún var dóttir Steingríms Davíðssonar skólastjóra á Blönduósi og konu hans Helgu Jónsdóttur húsmóður.
        Börn Hauks og Önnu eru
        1) Níels Unnar verktaki á Helgafelli, f. 29.12. 1942, kvæntur Steinunni Elíasdóttur húsmóður, þau eiga fjögur börn og
        2) Marta sjúkraliði á Helgafelli, f. 27.4. 1951, gift Birgi Víglundssyni skrifstofumanni, hún á þrjú börn.

        General context

        Relationships area

        Related entity

        Anna Steingrímsdóttir (1919-1993) Pálmalundi (18.4.1919- 23.5.1993)

        Identifier of related entity

        HAH01031

        Category of relationship

        family

        Type of relationship

        Anna Steingrímsdóttir (1919-1993) Pálmalundi is the spouse of Haukur Níelsson (1921-2004)

        Dates of relationship

        24.10.1942

        Description of relationship

        Access points area

        Subject access points

        Place access points

        Occupations

        Control area

        Authority record identifier

        HAH01393

        Institution identifier

        IS HAH

        Rules and/or conventions used

        Status

        Final

        Level of detail

        Full

        Dates of creation, revision and deletion

        GPJ 24.5.2017

        Language(s)

        • Icelandic

        Script(s)

          Maintenance notes