Identity area
Type of entity
Person
Authorized form of name
Hafsteinn Kristinsson (1933-1993) Hveragerði
Parallel form(s) of name
- Hafsteinn Kristinsson Hveragerði
Standardized form(s) of name according to other rules
Other form(s) of name
Identifiers for corporate bodies
Description area
Dates of existence
11.8.1933 - 18.4.1993
History
Hafsteinn Kristinsson 11. ágúst 1933 - 18. apríl 1993. Framkvæmdastjóri og stofnandi Kjöríss hf. Síðast bús. í Hveragerðisbæ.
Hafsteinn Kristinsson var fæddur á Selfossi, sonur þeirra vildishjóna Kristins Vigfússonar, húsasmíðameistara á Selfossi um langan aldur, og Aldísar Guðmundsdóttur frá Litlu-Sandvík í Flóa. Hafsteinn ólst upp í þessum bæ þar sem landið er flatt, en óx fljótt allmjög upp úr flatanum og varð með hærri mönnum.
Places
Árnesi Selfossi; Hveragerði:
Legal status
Mjólkurfræðingur frá Landbúnaðarháskólanum í Kaupmannahöfn
Functions, occupations and activities
Á þrítugsaldri sigldi Hafsteinn til náms í Danmörku. Þó á þeim dýrðardögum í Höfn við nám og leik hafi ekki alltaf verið mjólk á borðum var starf Hafsteins alla tíð tengt þeirri vöru. Að námi loknu hóf Hafsteinn fljótlega störf hjá Osta og smjörsölunni sf. og stofnsetti þar rannsóknastofu og mótaði þar gæðamat á þeim mjólkurvörum er fyrirtækið hafði til sölu. Seinna varð Hafsteinn um tíma ráðunautur í mjólkurfræðum hjá Búnaðarfélagi Íslands og vann á þeim vettvangi hið merkasta starf.
En gömul hugmynd sem Hafsteinn hafði oft rætt um á námsárunum varð í höndum hans að veruleika. Hann reisti lítið ostabú þar sem hann fór að gera ýmsa sérosta, osta sem ekki höfðu verið á borðum á Íslandi nema þegar einhver kom heim úr útlöndum. Með þessari frumraun í gerð osta var Íslendingum komið á ostabragðið og þegar Hafsteinn hætti ostagerð sinni tóku önnur samlög við og héldu því merki hátt sem hann hafði hafið á loft.
En þannig var það, einn góðan veðurdag hætti Hafsteinn að framleiða ost og sagði nú er sól og nú skal ég selja ykkur ís. Og síðan þann dag hefur Hafsteinn rekið ísgerðina Kjörís við mikinn og góðan orðstír og vinsældir.
Mandates/sources of authority
Internal structures/genealogy
Foreldrar hans; Hafliði Kristinn Vigfússon 7. jan. 1893 - 5. jan. 1982. Húsasmiður í Árnesi Selfossi. Trésmiður á Reykjum, Kotstrandarsókn, Árn. 1930. Heimili: Eyrarbakki og kona hans; Aldís Guðmundsdóttir 24. feb. 1902 - 9. ágúst 1966. Húsfreyja í Árnesi Selfossi. Húsfreyja á Reykjum, Kotstrandarsókn, Árn. 1930. Heimili: Eyrarbakki. Frá Sandvík í Flóa
Bræður Hafsteins;
1) Guðmundur Kristinsson 31. des. 1930. Aðalgjaldkeri Landsbankans á Selfossi og rithöfundur (Saga Selfoss, Til æðriheima 2004, Sumarlandið 2010). Kona hans Ásdís Ingvarsdóttir
- jan. 1933, frá Skipum á Stokkseyri.
2) Sigfús Kristinsson 27. maí 1932. Húsasmíðameistari Selfossi
Kona Hafsteins; Laufey Sveinfríður Valdimarsdóttir 26. jan. 1940, móðir hennar; Guðrún Margrét Albertsdóttir (1902-1970) Neðstabæ
Börn þeirra;
1) Aldís Hafsteinsdóttir 21. des. 1964, forstjóri Kjöríss og sveitarstjóri Hveragerði. Maður hennar; Lárus I. Friðfinnsson matreiðslumaður og eiga þau tvö börn.
2) Valdimar Hafsteinsson fæddur 9.2.1966, iðnrekstrarfræðingur, kvæntur Sigrúnu Kristjánsdóttur hjúkrunarfræðinema og eiga þau tvo drengi.
3) Guðrún Hafsteinsdóttir fædd 9.2.1970, stúdent, gift Davíð Jóhanni Davíðssyni
4) Sigurbjörg Hafsteinsdóttir fædd 18.7.1975,
Dreng eignuðust þau Laufey og Hafsteinn fyrst sem lést skömmu eftir fæðingu.
General context
Relationships area
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Dates of relationship
Description of relationship
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Dates of relationship
Description of relationship
Related entity
Identifier of related entity
Category of relationship
Dates of relationship
Description of relationship
Access points area
Subject access points
Place access points
Occupations
Control area
Authority record identifier
Institution identifier
IS HAH
Rules and/or conventions used
Status
Final
Level of detail
Full
Dates of creation, revision and deletion
GPJ 4.8.2019
Language(s)
- Icelandic
Script(s)
Sources
®GPJ ættfræði.
mbl 27.4.1993. https://timarit.is/page/1784264?iabr=on
Maintenance notes
Digital object metadata
Access
Filename
Hafsteinn_Kristinsson1933-1993Hverager__i.jpg
Latitude
Longitude
Media type
Image
Mime-type
image/jpeg