Höskuldur Jónsson (1929-2014) Hömrum I, Hjarðarholtssókn

Original Digital object not accessible

Identity area

Type of entity

Person

Authorized form of name

Höskuldur Jónsson (1929-2014) Hömrum I, Hjarðarholtssókn

Parallel form(s) of name

    Standardized form(s) of name according to other rules

      Other form(s) of name

        Identifiers for corporate bodies

        Description area

        Dates of existence

        6.4.1929 - 4.12.2014

        History

        Höskuldur Jónsson fæddist að Hömrum í Laxárdal í Dalasýslu 6. apríl 1929.
        Hann lést á krabbameinsdeild Landspítalans við Hringbraut 4. desember 2014. Höskuldur var jarðsunginn frá Fella- og Hólakirkju 15. desember 2014, kl. 13.

        Places

        Legal status

        Höskuldur fór hefðbundna skólagöngu, gekk í Héraðsskólann að Reykjum í Hrútafirði áður en hann hélt suður til Reykjavíkur þar sem hann lærði til gagnfræðaprófs við Ingimarsskóla áður en hann hóf og lauk verzlunarskólaprófi frá Verzlunarskólanum í Reykjavík 1951.

        Functions, occupations and activities

        Höskuldur hóf í kjölfarið skrifstofustörf við málningarverksmiðjuna Hörpuna hf., þar sem hann starfaði í sautján ár, síðast sem fjármálastjóri. Þaðan flutti hann sig um set, yfir til Iðnaðarbankans þar sem hann starfaði sem skrifstofustjóri innheimtudeildar áður en hann gerðist útibússtjóri. Höskuldur starfaði síðar hjá Ríkisskattstjóra þar sem hann sinnti skattrannsóknum uns hann lét af störfum 69 ára gamall.

        Mandates/sources of authority

        Höskuldur var mikill unnandi klassískrar tónlistar og nam söng hjá Guðmundi Jónssyni óperusöngvara. Hann var meðlimur í Karlakór Reykjavíkur frá 1951 og söng síðast með eldri félögum, sat í stjórn kórsins og sinnti öðrum trúnaðarstörfum á vettvangi kórsins. Hann söng í kirkjukórum Háteigskirkju og Dómkirkju og var um árabil í stjórn Fella- og Hólakirkjusókna auk þess að sitja í stjórn Kirkjugarða Reykjavíkur.

        Internal structures/genealogy

        Foreldrar; Jón Ólafsson 11. júlí 1891 - 14. apríl 1971. Var í Borgum, Prestbakkasókn, Strand. 1901. Bóndi í Bæ í Hrútafirði, í Skálholtsvík. Bóndi á Hömrum í Laxárdal, Dal. 1927-46. Verkamaður í Reykjavík og kona hans; Aldís Ósk Sveinsdóttir 8. okt. 1895 - 7. ágúst 1990. Var á Læk, Kirkjubólssókn, V-Ís. 1901. Húsfreyja á Hömrum I, Hjarðarholtssókn, Dal. 1930. Húsfreyja og verkakona, síðast bús. í Reykjavík.

        Systkini;
        1) Þorsteinn Erlingsson Ólafsson 1. des. 1916 - 16. sept. 1984. Var í Bakkakoti, Reykjavíkursókn, Kjós. 1930. Dóttursonur Sveins Guðmundar Eyjólfssonar og Önnu Guðmundsdóttur. Sjómaður í Reykjavík 1945. Síðast bús. í Reykjavík. Vélvirki í Reykjavík.
        2) Guðrún Jónsdóttir 21. okt. 1921 - 18. júlí 2017. Starfaði við saumaskap og síðar umönnunarstörf í Reykjavík.
        3) Ólafur Jónsson 2. des. 1923 - 1. jan. 2013. Var á Hömrum I, Hjarðarholtssókn, Dal. 1930. Fékkst við ýmis störf, bús. á Seltjarnarnesi. Kjörbarn: Anna Sigríður Jensen f. 18.12.1944.
        4) Þórhallur Jónsson 4. jan. 1926 - 12. apríl 2020. Húsasmíðameistari. Var á Hömrum I, Hjarðarholtssókn, Dal. 1930.
        5) Borghildur Anna Jónsdóttir 4. apríl 1928 - 23. ágúst 2020. Var á Hömrum I, Hjarðarholtssókn, Dal. 1930.
        6) Ægir Jónsson 28. des. 1936 - 19. ágúst 2022.

        Kona hans 29.2.1952; Ólöf Ingibjörg Pálína Benediktsdóttir 11. apríl 1933 - 12. ágúst 2011. Bús. í Reykjavík.

        Dóttir hans;
        1) Guðrún Höskuldsdóttir 1951
        Sonur Ólafar;
        2) Guðlaugur Hermannsson 26.12.1950. M.III.: Inge Pultz Hermannsson, f. 18.9.1951 í Danmörku. Barn: Elisa Pultz Hermannsson, f. 15.6.1987 í Esbjerg.
        3) Aldís Jónína Höskuldsdóttir 5.6.1952, sambýlismaður Aðalbjörn Jóakimsson, hennar börn eru fimm,
        4) Ingibjörg Höskuldsdóttir 12.5.1957, sambýlismaður Kristján Hjartarson, hennar börn eru þrjú,
        5) Benedikt Höskuldsson 12.5.1957, maki Hjördís Magnúsdóttir, þeirra börn eru þrjú,
        6) Páll Höskuldsson 2.4.1960, eiginkona Lhyn Höskuldsson, hans börn eru fimm,
        7) Svava Tyrfingsdóttir 2.4.1960, maki Jóhann G. Jóhannsson, þeirra börn eru fjögur.

        General context

        Relationships area

        Related entity

        Reykjaskóli í Hrútafirði

        Identifier of related entity

        Category of relationship

        associative

        Dates of relationship

        1945-1946

        Description of relationship

        nemi þar

        Access points area

        Subject access points

        Place access points

        Occupations

        Control area

        Authority record identifier

        HAH07325

        Institution identifier

        IS-HAH

        Rules and/or conventions used

        Að venju eru upplýsingar frá Íslendingabók notaðar, ef þær stangast á við aðrar upplýsingar er þeim bætt við innan hornklofa [ ], ekki er tekin afstaða til mismunandi upplýsinga.

        Status

        Final

        Level of detail

        Full

        Dates of creation, revision and deletion

        GPJ skráning 20.11.2023

        Language(s)

        • Icelandic

        Script(s)

          Maintenance notes