Höskuldur Egilsson (1909-2001) Böðvarsnesi Suður Þingeyjarsýslu

Original Digital object not accessible

Identity area

Type of entity

Person

Authorized form of name

Höskuldur Egilsson (1909-2001) Böðvarsnesi Suður Þingeyjarsýslu

Parallel form(s) of name

    Standardized form(s) of name according to other rules

      Other form(s) of name

        Identifiers for corporate bodies

        Description area

        Dates of existence

        9.7.1909 - 4.8.2001

        History

        Höskuldur Egilsson 9. júlí 1909 - 4. ágúst 2001. Var í Böðvarsnesi, Illugastaðasókn, S-Þing. 1930.
        Hann fæddist á Vatnsleysu í Fnjóskadal í Suður-Þingeyjarsýslu 9. júlí 1909. Höskuldur ólst upp hjá foreldrum sínum, fyrst í Fnjóskadal og síðan á Kambsmýrum á Flateyjardal.
        Hann lést á Landspítalanum í Fossvogi 4. ágúst 2001. Útför Höskuldar fór fram frá Háteigskirkju 14.8.2001 og hófst athöfnin klukkan 15.

        Places

        Legal status

        Hann tók fullnaðarpróf frá barnaskólanum á Grenivík vorið 1923, var í unglingaskóla í Flatey á Skjálfanda veturinn 1926, stundaði nám á Laugum í Reykjadal 1929-31 og stundaði nám við íþróttaskóla Þorgeirs Sveinbjarnarsonar á Laugum 1933-34.

        Functions, occupations and activities

        Höskuldur stundaði alla almenna sveitavinnu á unglingsárunum, starfaði við vegavinnu á Vaðlaheiði og í Ljósavatnsskarði 1928-1939, lengst af sem bryti. Einnig starfaði hann við skógarhögg hjá Skógrækt ríkisins á Vöglum í Fnjóskadal 1939-1941. Höskuldur flutti til Akureyrar 1941 og starfaði við skipaafgreiðslu hjá Eimskip á Akureyri 1941-1946 en var síðan starfsmaður á skrifstofu verkalýðsfélaganna á Akureyri 1946-1953.
        Hann flutti til Reykjavíkur 1953 og var verslunarmaður hjá KRON 1953-1984 er hann lét af störfum vegna aldurs.

        Mandates/sources of authority

        Höskuldur sat í stjórn Ungmennafélagsins Glæðis í Fnjóskadal, í stjórn Verkamannafélags Akureyrarkaupstaðar, sat í fulltrúaráði verkalýðsfélaganna 1943-1953. Hann sat í trúnaðarmannaráði Verslunarmannafélags Reykjavíkur um árabil og átti sæti á þingum ASÍ og Landssambands verslunarmanna flest árin 1946-1995.
        Höskuldur söng með Kantötukór Akureyrar, kirkjukór Akureyrar í tólf ár og kór Háteigssóknar í fjörutíu ár. Hann söng með einnig með Alþýðukórnum um skeið og kór eldri borgara.

        Internal structures/genealogy

        Foreldrar hans voru Egill Olgeirsson, bóndi á Kambsmýrum á Flateyjardal, f. 1.2. 1887, d. 14.5. 1922, og Theódóra Friðrika Þórðardóttir, húsfreyja og bóndi, f. 31.1. 1890, d. 29.3. 1979.

        Systkini Höskuldar voru;
        1) Olga Egilsdóttir, f. 6.5. 1912, d. 5.2. 1989,
        2) Steinþór Egilsson, f. 29.10. 1920, d. 20.12. 1966.

        Fyrri kona Höskuldar var Margrét Hallgrímsdóttir, f. 10.6. 1915, d. 28.10. 1995, þau skildu.
        Hinn 20. janúar 1956 giftist Höskuldur Sigurlaugu Elínu Guðmundsdóttur, f. 29.9. 1912, d. 18.3. 1999. Foreldrar hennar voru Guðmundur Tryggvason skipstjóri, f. 31.7. 1880 d. 20.2. 1949, og Magðalena Baldvinsdóttir húsfreyja, f. 23.9. 1889, d. 30.12. 1971.

        Dóttir Höskuldar og Sigurlaugar Elínar er
        1) Sigurlaug Ástdís kennari, f. 18.7. 1953, maki Sturla Þór Guðmundsson, f. 4.1. 1957, dóttir þeirra er Bryndís f. 11.5. 1990. Börn Sigurlaugar Ástdísar frá fyrra hjónabandi eru Arnlaug Borgþórsdóttir, f. 4.2. 1976, og Höskuldur Borgþórsson, f. 10.11. 1978, sonur hans er Höskuldur Árni, f. 30.7. 1997.

        Stjúpbörn Höskuldar eru
        1) Svanlaug Baldursdóttir bókasafnsfræðingur, f. 31.7. 1940, sonur hennar er Baldur Vilhjálmsson, f. 21.3. 1975, dóttir hans er Dagbjört Hanna, f. 9.1. 2001.
        2) Magni Baldursson arkitekt, f. 17.1. 1942, d. 16.11. 2000, eftirlifandi kona hans er Brynhildur Þorgeirsdóttir, f. 22.3. 1944, dætur þeirra eru Vala Magnadóttir, f. 10.1. 1968 og Nanna Magnadóttir, f. 10.3. 1973.
        3) Hallgerður Baldursdóttir bankastarfsmaður, f. 6.10. 1945, gift Svend Örnskov, f. 11.9. 1948.
        4) Ásgerður Baldursdóttir skrifstofumaður, f. 6.10. 1945, gift Johann Kroll f. 14.9. 1939, dóttir hennar er Lísa Kuchar, f. 10.6. 1968.

        General context

        Relationships area

        Access points area

        Subject access points

        Place access points

        Occupations

        Control area

        Authority record identifier

        HAH08747

        Institution identifier

        IS HAH

        Rules and/or conventions used

        Að venju eru upplýsingar frá Íslendingabók notaðar, ef þær stangast á við aðrar upplýsingar er þeim bætt við innan hornklofa [ ], ekki er tekin afstaða til mismunandi upplýsinga.

        Status

        Final

        Level of detail

        Full

        Dates of creation, revision and deletion

        GPJ skráning 30.12.2021

        Language(s)

        • Icelandic

        Script(s)

          Maintenance notes