Guðrún Jónasdóttir (1914-2007) frá Öxney

Original Digital object not accessible

Identity area

Type of entity

Person

Authorized form of name

Guðrún Jónasdóttir (1914-2007) frá Öxney

Parallel form(s) of name

  • Guðrún Jónasdóttir frá Öxney

Standardized form(s) of name according to other rules

    Other form(s) of name

      Identifiers for corporate bodies

      Description area

      Dates of existence

      24.6.1914 - 4.5.2007

      History

      Guðrún Jónasdóttir fæddist í Öxney á Breiðafirði 24. júní 1914. Hún lést á St. Franciskusspítala í Stykkishólmi 4. maí 2007.

      16 ára gömul fór Guðrún að heiman og vann ýmis störf.
      Að loknu námi réðst hún matráðskona að Ljósafossvirkjun þar sem hún kynntist Jóhanni. Þau bjuggu fyrst í Reykjavík en fluttu árið 1947 í Garðahrepp.
      Eftir að þau slitu samvistum vann Guðrún víða sem matráðskona, m.a. í Samvinnuskólanum á Bifröst, á Söltunarstöð Óskars Halldórssonar á Raufarhöfn og í Hraðfrystihúsi Keflavíkur.
      Um 1970 settist Guðrún að í Stykkishólmi þar sem hún sinnti ýmsum störfum til sjós og lands meðan kraftar entust.

      Útför Guðrúnar var gerð frá Stykkishólmskirkju 11.5.2007 og hófst athöfnin klukkan 15.

      Places

      Öxney á Breiðafirði: Kvsk á Blönduósi: Ljósafossvirkjun: Reykjavík: Bifröst: Raufarhöfn: Keflavík: Stykkishólmur um 1970:

      Legal status

      Tvítug að aldri stundaði hún nám við Kvennaskólann á Blönduósi 1934-1935,

      Functions, occupations and activities

      Matráðskona Ljósafossvirkjun, Samvinnuskólanum á Bifröst, á Söltunarstöð Óskars Halldórssonar á Raufarhöfn og í Hraðfrystihúsi Keflavíkur.

      Mandates/sources of authority

      Internal structures/genealogy

      Foreldrar hennar voru Elín Guðmundsdóttir frá Munaðarhóli í Neshreppi utan Ennis, f. 27. des. 1886, d. 27. júlí 1928 og Jónas Jóhannsson í Öxney, f. 21. júlí 1891, d. 1. jan. 1970. Systkini Guðrúnar eru Jóhann, f. 1912, d. 2005, Sigurlaug, f. 1913, d. 2005, Leifur, f. 1915, d. 1959, Kristín, f. 1916, María, f. 1917, d. 1969, Sjöfn, f. 1919, d. 1990, Sigríður, f. 1921, d. 1928, Lilja, f. 1923, d. 1971, Hildur, f. 1924, Katrín, f. 1926, d. 1978, og stúlka andvana fædd 1928. Hálfsystir samfeðra er Elín, f. 1945.
      Sambýlismaður Guðrúnar var Jóhann Magnús Hallgrímsson frá Ytri- Sólheimum í Mýrdal, f. 23. sept. 1911, d. 1. jan. 1982. Þau slitu samvistum.
      Börn þeirra eru 1) Hreinn, f. 1937, maki Geirþrúður Kjartansdóttir, f. 1935. Börn þeirra eru Kjartan, f. 1958, Guðrún, f. 1961, og Sturla Jóhann, f. 1971. 2) Sigríður, f. 1943, maki Björgvin Hermannsson, f. 1938, þau slitu samvistum. Sonur þeirra er Hermann, f. 1964. Sambýlismaður Sigríðar er Reynir Vilhjálmsson, f. 1934. 3) Brynja, f. 1947, maki Þorvaldur Ólafsson, f. 1944. Börn þeirra eru Þorbjörg, f. 1970, Þorgerður, f. 1972 og Gunnar, f. 1979.

      General context

      Relationships area

      Related entity

      Hólmfríður Kristjánsdóttir (1942) Reykjarhóli (26.11.1942 -)

      Identifier of related entity

      HAH04325

      Category of relationship

      family

      Dates of relationship

      Description of relationship

      Hermann dóttur sonur hennar er maður Guðlaugar dóttur Hólmfríðar

      Related entity

      Kvennaskólinn á Blönduósi 1931-1940 (1931-1940)

      Identifier of related entity

      HAH00115 -31-40

      Category of relationship

      associative

      Dates of relationship

      Description of relationship

      námsmey þar um1934

      Access points area

      Subject access points

      Place access points

      Occupations

      Control area

      Authority record identifier

      HAH01324

      Institution identifier

      IS HAH

      Rules and/or conventions used

      Status

      Final

      Level of detail

      Full

      Dates of creation, revision and deletion

      GPJ 21.5.2017

      Language(s)

      • Icelandic

      Script(s)

        Maintenance notes