Guðbjörg Ólafsdóttir (1935-2003) Lýsuhóli, Staðarsveit

Original Digital object not accessible

Identity area

Type of entity

Person

Authorized form of name

Guðbjörg Ólafsdóttir (1935-2003) Lýsuhóli, Staðarsveit

Parallel form(s) of name

Standardized form(s) of name according to other rules

Other form(s) of name

Identifiers for corporate bodies

Description area

Dates of existence

8.11.1935 - 12.3.2003

History

Guðbjörg Ólafsdóttir fæddist í Skjaldabjarnarvík í Árneshreppi á Ströndum hinn 8. nóvember 1935. Ung að árum fluttist Guðbjörg frá foreldrum sínum í Skjaldabjarnarvík í Árneshreppi á Ströndum að Felli í Árneshreppi. Þar ólst hún upp hjá systkinunum Hallfríði og Ólafi Guðmundsbörnum. Þrettán ára gömul réðst Guðbjörg í vist til Reykjavíkur til hjónanna Árna Gestssonar og Ástu Jónsdóttur. Guðbjörg fór ung að vinna og vann ýmis störf, þar á meðal við fiskvinnslu.
Hún lést á kvenlækningadeild 21A á Landspítala við Hringbraut hinn 12. mars 2003. Útför Guðbjargar var gerð frá Bústaðakirkju 21.3.2003 og hófst athöfnin klukkan 13.30.

Places

Legal status

Kvsk á Blönduósi 1953-1954

Functions, occupations and activities

Guðbjörg og Stefán fluttu 1954 að Lýsuhóli í Staðarsveit á Snæfellsnesi til aldraðra foreldra Stefáns. Þar voru þau við almenn bústörf til ársins 1956 er þau fluttu til Reykjavíkur. Í Reykjavík stundaði Guðbjörg meðal annars saumaskap ásamt því að sinna börnum sínum og heimilishaldi. Guðbjörg og Stefán voru til margra ára félagar í Snæfellingakórnum og komu fram með kórnum við hin ýmsu tækifæri. Síðustu tuttugu árin hefur Guðbjörg starfað sem dagmóðir.

Mandates/sources of authority

Foreldrar; Ólafur Bjarni Jónsson 15. okt. 1900 - 6. mars 1977. Var í Norðurfjarðarverslunarstaðnum, Árnesssókn, Strand. 1930. Bóndi í Skjaldbjarnarvík, síðast bús. á Ísafirði og kona hans; Guðrún Hansdóttir 8. maí 1914 - 30. júní 1995. Var á Felli, Árnesssókn, Strand. 1930.

Systkini;
1) Jón Ólafsson 14. nóv. 1934 - 13. feb. 1968. Stýrimaður. Síðast bús. í Ögurhreppi.
2) Magnús Ólafsson 9.7.1937
3) Guðmundur Ólafsson 1938
4) Vilborg Ólafsdóttir 10.10.1940
5) Kristín Ólafsdóttir 24.3.1942
6) Héðinn Ólafsson 28. júní 1943 - 25. feb. 2014
7) Hallvarður Ólafsson 30. sept. 1944 - 22. jan. 2022.
8) Ragnar Davíð Ólafsson 22.3.1947
9) Ragnheiður Ólafsdóttir 16.11.1949
10) Guðjón Ólafsson 4. des. 1950 - 13. apríl 2004. Fiskverkamaður og sjómaður á Ísafirði.
11) Aðalsteinn Ólafsson 13.9.1952.

Internal structures/genealogy

Maður hennar 26.12.1954. Stefán Lárus Kristjánsson 7.3.1933 - 31.8.2023. Bóndi Lýsuhóli í Staðarsveit

Börn;
1) Ólafur Þorkell, f. 1959, kvæntur Sveinbjörgu Sveinbjörnsdóttur, f. 1959, þau eiga tvö börn, Egil Má, f. 1978, og Ólöfu Ástu, f. 1989.
2) Kristján Jóhann, f. 1960, kvæntur Ingunni Aðalheiði Guðmundsdóttur, f. 1961, þau eiga sjö börn, Jóhann Davíð, f. 1981, Helgu Dagbjörtu, f. 1983, Stefán Daníel, f. 1985, Halldóru Dögg, f. 1991, Guðmund Daða, f. 1996, Guðbjörgu Dagnýju, f. 1997, og Heiðbjörtu Dís, f. 2001.
3) Sigríður Guðrún, f. 1963, hún á fjögur börn, Elísabetu Heiðu, f. 1988, faðir Stefán Bjarnason Sigurðsson, f. 1964, sambýlismaður Gunnar Þór Sigurðsson, f. 1963, þau eiga þrjú börn, Elvu Rut, f. 1991, Stefán Örn, f. 1994, og Björn Anton, f. 1996. 4) Stefanía Guðbjörg, f. 1964, d.1993, kvænt Einari Braga Bjarnasyni, f. 1962, þau eiga tvö börn, Svanlaugu Erlu, f. 1981, og Braga Þór, f. 1984. 5) Lárus, f. 1973, hann á fjögur börn, þrjú börn með fyrrum sambýliskonu sinni, Sigríði Guðbjörgu Hrafnsdóttur, f. 1973, Atla Hrafn, f. 1991, Stefaníu Ösp, f. 1994, og Arnar Smára, f. 1997, og eitt barn með sambýliskonu sinni, Þórey Hallbergsdóttur, f. 1976, Birtu Karen, f. 2001.

General context

Relationships area

Access points area

Subject access points

Place access points

Occupations

Control area

Authority record identifier

HAH08149

Institution identifier

IS-HAH

Rules and/or conventions used

Að venju eru upplýsingar frá Íslendingabók notaðar, ef þær stangast á við aðrar upplýsingar er þeim bætt við innan hornklofa [ ], ekki er tekin afstaða til mismunandi upplýsinga.

Status

Final

Level of detail

Full

Dates of creation, revision and deletion

GPJ skráning 13.10.2023

Language(s)

  • Icelandic

Script(s)

Maintenance notes

  • Clipboard

  • Export

  • EAC

Related subjects

Related places