Elsa Schepler Guðjónsson (1924-2010)

Identity area

Type of entity

Person

Authorized form of name

Elsa Schepler Guðjónsson (1924-2010)

Parallel form(s) of name

  • Elsa Eiríksson Schepler Guðjónsson (1924-2010)

Standardized form(s) of name according to other rules

Other form(s) of name

Identifiers for corporate bodies

Description area

Dates of existence

21.3.1924 - 28.11.2010

History

Dr. phil. h.c. Elsa E. Guðjónsson, MA, fyrrv. deildarstjóri textíl- og búningafræðideildar Þjóðminjasafns Íslands, fædd Elsa Ída Schepler Eiríksson 21. mars 1924.
Hún andaðist 28. nóvember 2010. Útför Elsu fer fram frá Langholtskirkju í dag, 7. desember 2010, og hefst athöfnin kl. 13.

Places

Reykjavík:

Legal status

Eftir stúdentspróf frá Menntaskólanum í Reykjavík 1942 fór Elsa vestur um haf og lauk BA-prófi í textíl- og búningafræðum, list- og listasögu frá University of Washington, Seattle, árið 1945. Meistaraprófsgráðu í sömu greinum, auk miðaldasögu frá sama skóla árið 1961. Elsa nam Íslandssögu við Háskóla Íslands 1953-1956.

Functions, occupations and activities

Hún starfaði sem sérfræðingur og safnvörður í Þjóðminjasafni Íslands frá 1963 en fastráðin 1968 og deildarstjóri textíl- og búningadeildar safnsins 1985 til starfsloka 1994. Elsa átti sæti í fjölmörgum nefndum og ráðum varðandi málefni tengd textílum og búningasögu og vann mikið starf varðandi kynningu á þeim málum, jafnt hérlendis sem erlendis. Elsa var höfundur bóka og fjölmargra greina, ritgerða og bókarkafla, einkum um textíl- og búningasögu í íslenskum sem og erlendum tímaritum, fræði- og alfræðiritum, allt frá 1945. Höfundur útvarps- og sjónvarpsþátta. Fyrirlesari á ráðstefnum og þingum um textíl- og búningafræði, myndfræði og heimilis- og listiðnað innanlands og utan. Elsu hlotnuðust fjölmargar viðurkenningar fyrir störf sín og hlaut riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu árið 1981. Kjörin félagi í Vísindafélagi Íslendinga 1985. Hlaut verðlaun frá Kungliga Gustav Adolfs Akademien í Uppsölum í Svíþjóð 1987 og heiðursdoktorsnafnbót við Háskóla Íslands árið 2000. Elsa var einnig útgefandi og má þar nefna lítið kver sem ber heitið Jólasveinarnir þrettán sem hún orti um á dönsku, íslensku og ensku og síðast en ekki síst með saumnál.

Mandates/sources of authority

Internal structures/genealogy

Foreldrar: Elly Margrethe Eiríksson, f. Schepler, f. 1896 í Kaupmannahöfn, og Halldór Guðmundur Marías Eiríksson, stórkaupmaður og framkvæmdastjóri, f. 1889 á Hrauni á Ingjaldssandi, Önundarfirði, d. 1948.
Maki: Þór Vilhelm Guðjónsson f. 14. nóvember 1917 - 24. nóvember 2014. Veiðimálastjóri, gegndi ýmsum trúnaðarstörfum og hlaut fjölda viðurkenninga fyrir störf sín, þar á meðal Riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu. Bús. í Reykjavík.

Börn:
1) Stefán Þór Þórsson f. 7. apríl 1946 áfengisráðgjafi.
2) Elsa Margrét Þórsdóttir f. 10. janúar 1949, fatahönnuður, leikmyndateiknari og listmálari, f. 1949,
3) Kári Halldór Þórsson f. 14. desember 1950 ,leikstjóri og leiklistarkennari.

General context

Relationships area

Related entity

Elsa Margrét Þórsdóttir (1949) (10.1.1949)

Identifier of related entity

HAH03297

Category of relationship

family

Type of relationship

Elsa Margrét Þórsdóttir (1949)

is the child of

Elsa Schepler Guðjónsson (1924-2010)

Dates of relationship

10.1.1949

Description of relationship

Access points area

Subject access points

Place access points

Occupations

Control area

Authority record identifier

HAH01203

Institution identifier

IS HAH

Rules and/or conventions used

Status

Final

Level of detail

Full

Dates of creation, revision and deletion

GPJ 5.9.2017

Language(s)

  • Icelandic

Script(s)

Maintenance notes

  • Clipboard

  • Export

  • EAC

Related subjects

Related places