Blöndubrú í Blöndudal 1950

Identity area

Type of entity

Corporate body

Authorized form of name

Blöndubrú í Blöndudal 1950

Parallel form(s) of name

    Standardized form(s) of name according to other rules

      Other form(s) of name

        Identifiers for corporate bodies

        Description area

        Dates of existence

        24.06.1951

        History

        Nýja Blöndubrúin vígð

        Um 1000 manns hvaðanæfa af Norður- og Vesturlandi sóttu vígsluhátíðina.

        Á sunnudaginn var fór fram vígsla nýrrar brúar á Blöndu, um 30 km. framan við Blönduós. Var byrjað á brúargerð þessari fyrir 2 árum og henni að mestu lokið í fyrrahaust. Við vígsluathöfnina fluttu ræður: Hermann Jónasson samgöngumálaráðherra, Geir Zoéga vegamálastjóri, Jón Pálmason þingmaður Austur-Húnvetninga og Guðbrandur Ísberg sýslumaður. Gísli Ólafsson frá Eiríksstöðum flutti kvæði, er hann hafði ort í tilefni þessa viðburðar. Tveir karlakórar úr héraðinu sungu, og dansað var á brúnni fram eftir kvöldi.

        Veður var bjart og fagurt þennan dag, og sóttu um 1000 manns vígsuna, fyrst og fremst Húnvetningar, en auk þeirra margt manna víðs vegar að af Norður- og Vesturlandi og sunnan úr Reykjavík.

        Blöndubrúin nýja er um 100 metra löng, með 4 metra breiðri akbraut. Þetta er hengi brú að samskonar gerð og brúin yfir Jökulsá hjá Grímsstöðum. Hún er mikið mannvirki og kemur til með að stytta leiðina milli Akureyrar og Reykjavíkur að verulegum mun. Verkstjóri við byggingu brúarinnar var Þorvaldur Guðjónsson Akureyri.

        (Íslendingur 24. tölublað 27.06.1951)

        Hin nýja 100 m. langa Blöndubrú vígð í dag.

        Í dag verður vígð hin nýja hengibrú yfir Blöndu, en brúin er skammt frá Löngumýri í Blöndudal. Brú þessi er í tölu stærstu brúa landssins og er af henni hin mesta samgöngubót.

        Þetta mikla brúarmannvirki er 100 m. að lengd og akbrautin eftir brúnni 4 metrar á breidd. Er brúin svipuð mjög Ölfusárbrúnni.

        Byggð á einu ári.

        Þessi nýja Blöndubrú er um 30 km. leið fyrir ofan Blönduósbrúna. Byrjað var á brúarsmíðinni árið 1949. Var brúarsmíðinni sjálfri lokið 1950. Þá var eftir að múrhúða yfir alla steypu og aðeins þá var eftir að mála hana. Því er nú lokið og hin nýja Blöndubrú er hvít að lit og fallegt mannvirki til að sjá, með fjórum 15 metra háum turnum, er halda uppi burðarstrengjum brúarinnar.

        Mikil samgöngubót.

        Húnvetningar fagna mjög þeirri stórlega auknu samgöngubót sem brú þessi hefur í för með sjer og eins skapar hún meira öryggi við flutninga á vetrum.

        Þegar vígsluhátíðin fer fram í dag verða þar m.a. viðstaddir landbúnaðar- og samgöngumálaráðherra, vegamálastjóri og ýmsir leiðandi menn þar nyðra.

        (Morgunblaðið 140. tölublað 24.06.1951)

        Nýja Blöndubrúin vígð

        Nýja brúin á Blöndu hjá Löngumýri í Blöndudal verður vígð í dag með mikilli viðhöfn. Meðal ræðumanna þar munu verða Geir Zoëga, vegamálastjóri, Hermann Jónasson, samgöngumálaráðherra o.fl. Borgfirðingar, sem eru á ferð í Húnavatnssýslu í boði Vatnsdælinga og Þingbúa munu fara til vígslunnar ásamt gestgjöfum sínum og búist er við fjölmenni úr héraðinu. Að lokinni vígslu mun verða stiginn dans á brúnni, mega menn þá gæta sín, ef vel er veitt, að falla ekki fyrir borð.

        (Tíminn 139. tölublað 24.06.1951)

        Nýja Blöndubrúin vígð í fyrradag

        NÝJA BRÚIN yfir Blöndu hjá Löngumýri var vígð á sunnudaginn að viðstöddu miklu fjölmenni. Munu 800-1000 manns hafa verið viðstödd brúarvíglsuna, þar af margir utan héraðs menn. Ræður fluttu Hermann Jónasson samgöngumálaráðherra, Geir G. Zoëga vegamálastjóri, Jón Pálmason alþingismaður og Guðbrandur Ísberg sýslumaður, en Gísli Ólafsson skáld frá Eiríksstöðum flutti kvæði. Þá sungu Karlakórinn Húnar á Blönduósi og Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps. Dansað var á brúnni um kvöldið.

        (Alþýðublaðið 140. Tölublað 26.06.1951)

        Ný Blöndubrú vígð.

        Blöndubrúin nýja hjá Löngumýri var vígð í gær að viðstöddu miklu fjölmenni, ekki aðeins úr Húnavatnssýslum, heldur og úr ýmsum nærliggjandi byggðarlögum og sýslum.

        Hófst athöfnin með því að vegamálastjóri, Geir G. Zoëga bauð gesti velkomna. Þá sungu tveir karlakórar, Húnar frá Blönduósi og Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps, en að því loknu hélt Hermann Jónasson samgöngumálaráðherra vígsluræðuna, Geir G. Zoëga vegamálastjóri lýsti brúarsmíðinni, en aðrar ræður héldu þingmaður Austur-Húnavatnssýslu, Jón Pálmason, og Guðbrandur Ísberg sýslumaður. Gísli Ólafsson skáld flutti brúardrápu. Sungið var milli ræðuhalda og eins á eftir.

        Um kvöldið var dansað á brúnni, en hjlómsveit frá Sauðárkróki lék fyrir dansinum.

        Nærri lætur, að 800-1000 manns hafi verið viðstatt brúarvígsluna. Veður var eins fagurt og frekast var unnt að kjósa sér.

        Brúin er 112 metra löng og er að henni hin mesta samgöngubót, því áður var aðeins ein brú á Blöndu, niður við ósa hennar.

        (Vísir 142. Tölublað 25.06.1951)

        Places

        Blöndudalur
        Bólstaðarhlíðarhreppur

        Legal status

        Functions, occupations and activities

        Mandates/sources of authority

        Internal structures/genealogy

        General context

        Brúarvígsludrápa flutt við vígslu Blöndubrúar í Blöndudal 24.06.1951

        Blöndubrú vígð

        Aldir runnu, áin Blanda
        áfram braust í hamraþröng,
        Út frá hennar ægi-djúpi
        ógnar hringdi “Líkaböng”.
        Flestum var hún farartálmi
        Í flóði sýndist brúna dökk.
        Furðu djarft þó fóru margir
        flaut, á meðan ekki sökk.

        Þessa breiðu elfu yfir
        Oft með djarfleik ferð var sótt.
        Sumum reyndist flughál fyrri
        feigðar skör um dimma nótt.
        Oft var treyst á Túnguvaði
        taumalung er reyndist best.
        Enginn veit hve oft hún mældi
        aflið sitt við mann og hest.

        Voldug Blanda í vígamóði
        víða kunn um byggðarhring
        Hún var stærsti varnar veggur
        vina milli, um Húnaþing.
        Oft fjekk vænn og vaskur drengur
        við hana dauða fangbrögð þreytt.
        Með framfaranna afturelding
        er nú loksins högum breytt.

        Nú er okkur opnuð leiðin
        Yfir Blöndu gljúfra þröng
        Frelsisdaginn ferðamannsins
        Færum þökk í ljóði og söng.
        Mannvíg fleiri varla vinnur
        Vonarsál úr djúpi rís.
        Brúin kallar, áfram yfir,
        Alla, hvern sem fara kýs.

        Það er bæði gagn og gaman,
        Að Grettistökin birtast enn.
        Hjer hafa saman sigur unnið
        Sýslu og þjóðar vökumenn.
        Gæfan fleytir okkur yfir
        Örlaganna flúð og straum.
        Hjer er fullgertfagurt merki
        Um fólksins þráða óska-draum.

        Nú er vald þitt bugað, Blanda,
        Burtu hættan, gráa sár.
        Í hjarta fagnar æska og elli
        Yfir hvelfist himinn blár.
        Alvadshöndin alltaf vaki
        Yfir grænum foldar sal
        Meðan blessuð sumarsólin
        signir gamla Blöndudal.
        Höf: Gísli Ólafsson frá Eiríksstöðum

        Relationships area

        Access points area

        Subject access points

        Place access points

        Occupations

        Control area

        Authority record identifier

        HAH0780

        Institution identifier

        IS-HAH

        Rules and/or conventions used

        Status

        Final

        Level of detail

        Full

        Dates of creation, revision and deletion

        MÞ 29.08.2022

        Language(s)

        • Icelandic

        Script(s)

          Sources

          Íslendingur 24. tölublað 27.06.1951
          Morgunblaðið 140. tölublað 24.06.1951
          Tíminn 139. tölublað 24.06.1951
          Alþýðublaðið 140. Tölublað 26.06.1951
          Vísir 142. Tölublað 25.06.1951

          Maintenance notes