Björnfríður Ingibjörg Elímundardóttir (1902-1979) Björnólfsstöðum

Identity area

Type of entity

Person

Authorized form of name

Björnfríður Ingibjörg Elímundardóttir (1902-1979) Björnólfsstöðum

Parallel form(s) of name

  • Ingibjörg Elímundardóttir (1902-1979) Björnólfsstöðum

  • Björnfríður Ingibjörg Elímundardóttir Björnólfsstöðum

Standardized form(s) of name according to other rules

    Other form(s) of name

      Identifiers for corporate bodies

      Description area

      Dates of existence

      10.9.1902 - 6.7.1979

      History

      Björnfríður Ingibjörg Elímundsdóttir 10. september 1902 - 6. júlí 1979 Vinnukona á Staðarhrauni, Akrasókn, Mýr. 1930. Heimili: Setberg, Skógarströnd. Síðast bús. í Reykjavík. Var á Björnólfsstöðum, Engihlíðarhr., A-Hún. 1957.

      Places

      Stakkaberg á Skarðsstönd; Staðarhraun; Setberg; Björnólfsstaðir í Langadal; Reykjavík: Jarðsett í heimagrafreit á Stakkabergi.

      Legal status

      Functions, occupations and activities

      Fyrst fór hún í kaupavinnu til nágranna, en síðar réðist hún til ársvista og þá fyrst til í Breiðafjarðareyjar. Hún var i Elliðaey hjá Ólafi Jónssyni og Theodóru Daðadóttur og síðar i Hergilsey á búi þeirra feðga Snæbjarnar Kristjánssonar og Hafliða sonar hans. Eyjarnar voru fagrar og gögn þeirra og gæði mikil, en harðsótt var oft að nytja þau gögn. Lítt var skeytt um kynskiptingu þegar þurfti að taka til hendi, hvort heldur var á sjó eða landi og þurftu konur því að vera jafnvígar á árina og rokkinn og kambana. Björnfríður Ingibjörg reri þvi stundum til fiskjar og eitt sinn fór hún með Hergilseyjarmönnum til selveiBa i Oddbjarnarsker. Fá störf sem hún vann um dagana munu hafa verið henni ógeðfelldari en sú veiðiför enda heldur óvægilega gengið að sela- og þó einkum kópadrápinu, og hún var mikill dýravinur alla ævi. Leið hennar lá aftur upp á land, hún fór i vist til sýslumannshjónanna i Stykkishólmi og síðar að Setbergi á Skógarströnd. Þar var hún um sjö ára skeið hjá Mariu Andrésdóttur og Daða Danielssyni og börnum þeirra, og undi hún sér hvergi betur. Þarna var mannmargt heimili og glaðvært, félagslif var með miklum blóma í sveitinni, en hún félagslynd að upplagi. Þá fluttist Björnfríður Ingibjörg til Reykjavíkur og vann þar að ýmsum störfum til 1936 er hún réðst kaupakona Bjarna Gestssonar, að BjörnólfsstöBum i Langadal. Dvöl hennar þar varð þó öllu lengri en í upphafi var ætlað, því að ekki skildu leiðir þeirra úr því, meðan lif entist. Ekki gengu þau í hjónaband, en húsfreyjusessinn á Björnólfsstööum fyllti hún með miklum sóma alla sina tíð. Hún gekk að verki með miklum myndarskap bæði heimilishaldi öllu og handavinnu, og var framtirskarandi gestrisin og góð heim að sækja.

      Mandates/sources of authority

      Internal structures/genealogy

      Foreldrar hennar; Elímundur Þorvarðarson 28. desember 1877 - 4. febrúar 1959 Bóndi á Stakkabergi á Skarðsströnd, Dal. 1904-39 og bjó þar til æviloka og kona hans 3.7.1898; Ingibjörg Guðmundsdóttir 30. desember 1871 - 25. nóvember 1947 Húsfreyja á Stakkabergi, Dagverðarnessókn, Dal. 1930. Húsfreyja á Stakkabergi.
      Systkini Ingibjargar;
      1) Elín Elímundsdóttir 25. nóvember 1898 - 27. desember 1987 Síðast bús. í Fellstrandarhreppi. Húsfreyja að Langeyjarnesi, Skarðstr., Dal. Var þar 1930.
      2) Ingveldur Elímundardóttir 4. mars 1900 - 29. júní 1988 Síðast bús. í Reykjavík.
      3) Ólöf Guðmunda Elímundsdóttir 11. júlí 1905 - 7. júlí 1997 Stakkabergi
      4) Sigfríður Elímundsdóttir 24. ágúst 1906 - 22. júní 1995
      5) Guðbjörg Helga Elímundsdóttir 1. nóvember 1909 - 24. ágúst 1966 Ljósmóðir á Stöðvarfirði, síðast bús. í Stöðvarhreppi. Maður hennar; Runólfur Einarsson 10. júní 1901 - 17. júní 1966 Var í Litla-Sandfelli, Þingmúlasókn, S-Múl. 1901. Námsmaður á Freyjugötu 25, Reykjavík 1930. Skólastjóri á Stöðvarfirði. Síðast bús. í Stöðvarhreppi.
      6) Ingimundur Elímundarson 13. júlí 1912 - 16. maí 2005
      7) Guðlaug Elímundardóttir 13. apríl 1915 - 10. október 2002 Ólst upp með foreldrum á Skarðsströnd. Nam karlmannafatasaum í Stykkishólmi. Húsfreyja á Stakkabergi um 1937-39 og síðan á Melum í sömu sveit um 1939-61. Fluttu síðan til Reykjavíkur og vann hún þar við saumaskað með fleiru. Síðast bús. í Reykjavík.
      Sambýlismaður Ingibjargar; Bjarni Gestsson 29. júlí 1902 - 25. apríl 1990 Bóndi á Björnólfsstöðum, Höskuldsstaðasókn, A-Hún. 1930. Var á Björnólfsstöðum, Engihlíðarhr., A-Hún. 1957. Bóndi þar. Síðast bús. í Reykjavík. Þau barnlaus.

      General context

      Relationships area

      Related entity

      Bjarni Gestsson (1902-1990) Björnólfsstöðum (29.7.1902 - 25.4.1990)

      Identifier of related entity

      HAH02663

      Category of relationship

      family

      Type of relationship

      Bjarni Gestsson (1902-1990) Björnólfsstöðum is the spouse of Björnfríður Ingibjörg Elímundardóttir (1902-1979) Björnólfsstöðum

      Dates of relationship

      10.9.1902

      Description of relationship

      Sambýliskona, þau barnlaus

      Related entity

      Björnólfsstaðir í Langadal ([1200])

      Identifier of related entity

      HAH00202

      Category of relationship

      hierarchical

      Type of relationship

      Björnólfsstaðir í Langadal is controlled by Björnfríður Ingibjörg Elímundardóttir (1902-1979) Björnólfsstöðum

      Dates of relationship

      Description of relationship

      til 1974

      Access points area

      Subject access points

      Place access points

      Occupations

      Control area

      Authority record identifier

      HAH02916

      Institution identifier

      IS HAH

      Rules and/or conventions used

      Status

      Final

      Level of detail

      Full

      Dates of creation, revision and deletion

      GPJ 17.1.2018

      Language(s)

      • Icelandic

      Script(s)

        Maintenance notes