Björn Marinó Dúason (1916-2009)

Identity area

Type of entity

Person

Authorized form of name

Björn Marinó Dúason (1916-2009)

Parallel form(s) of name

    Standardized form(s) of name according to other rules

      Other form(s) of name

        Identifiers for corporate bodies

        Description area

        Dates of existence

        20.7.1916 - 14.12.2009

        History

        Björn Marinó Dúason fæddist á Ólafsfirði 20. júlí 1916. Foreldrar Björns fluttust til Siglufjarðar þegar hann var á öðru ári og þar ólst hann upp.
        Hann lést á dvalarheimilinu Hornbrekku í Ólafsfirði 14. desember 2009.
        Útför Björns fer fram frá Ólafsfjarðarkirkju í dag, föstudaginn 18. desember 2009, og hefst athöfnin kl. 13.30.

        Places

        Siglufjörður. Ólafsfjörður. Haganesvík í Fljótum.

        Legal status

        Björn stundaði á unglingsárum nám í kvöldskóla Siglufjarðar en fór síðan til náms við Verslunarskóla Íslands og lauk þaðan prófum 1936.

        Functions, occupations and activities

        Hann vann við skrifstofustörf hjá Síldarútvegsnefnd og hjá Síldarverksmiðjum ríkisins á Siglufirði 1936–1937, var kaupfélagsstjóri hjá Samvinnufélagi Fljótamanna í Haganesvík 1937–1941, deildarstjóri hjá Kaupfélagi Siglfirðinga 1942–1944. Á árunum 1945–1954 var hann skrifstofustjóri og framkvæmdastjóri hjá Friðrik Guðjónssyni útgerðarmanni og Hraðfrystihúsinu Hrímni hf. á Siglufirði og rak einnig um árabil umboðs- og heildverslun á Siglufirði. 1955–1958 var hann skrifstofustjóri hjá Hraðfrystihúsi Keflavíkur hf., sveitarstjóri Miðneshrepps í Sandgerði var hann 1958–1962, við skrifstofustörf í Keflavík og Reykjavík 1963–1967 og við bókhald hjá Hraðfrystihúsi Ólafsfjarðar hf. 1968–1989.
        Björn var alla tíð mikill félagsmálamaður, söng með karlakórnum Vísi á Siglufirði og starfaði með Leikfélagi Siglufjarðar sem leikari og leikstjóri. Síðar starfaði hann með Leikfélagi Ólafsfjarðar, taflfélagi Ólafsfjarðar og var einn af stofnendum félags eldri borgara í Ólafsfirði. Meðhjálpari var Björn í Ólafsfjarðarkirkju í 24 ár.

        Mandates/sources of authority

        Björn gaf út bókina Síldarævintýrið á Siglufirði sem hefur að geyma minningar hans og samantekt frásagna frá fjórða, fimmta og sjötta áratug síðustu aldar þegar Siglufjörður var mesta síldarverstöð landsins.
        Björn gaf einnig út bækurnar Heims um ból um jólasálminn alkunna og Hagyrðingur af Höfðaströnd. Björn skrifaði blaðagreinar og flutti fjölda útvarpserinda um áhugamál sín sem tengdust þjóðlegum fróðleik.

        Internal structures/genealogy

        Foreldrar hans voru Dúi Kristinn Stefánsson organisti og verkstjóri, f. 19.8. 1890, d. 9.7. 1931, og Steinunn Björnsdóttir Schram fátækrafulltrúi, f. 25.8. 1888, d. 11.10. 1974. Björn var þríkvæntur.
        K. 1 var Ólöf Margrét Bjarnadóttir, f. 17.9. 1918, d. 12.10. 1977. Eyrarbakka. Þau skildu. Foreldrar hennar voru (kjörfaðir) Bjarni Hermann Guðmundur Pálmason 10. 9 1887 - 27.4.1957, skipstjóri, og Salóme Jónsdóttir f. 29.12.1885 - 26.8.1970.
        Dætur Björns og Ólafar Margrétar eru:
        1) Steinunn Dúa, f. 14.4. 1938, d. 18.9. 1996. Leiðsögumaður á Spáni. Síðast bús. í Reykjavík. M1 Bragi Einarsson f. 19.8. 1929 - 17.7.2006 í Eden, þau skildu. M3: Juan Roig.
        2) Salóme Herdís, f. 15.6. 1939,
        3) Gunnhildur Birna, f. 12.7. 1940.
        0) Ólöf Margrét átti einnig dótturina Eddu Bragadóttur, f. 21.3. 1943 - 26.12.2010, Hjúkrunarfræðingur Reykjavík. Faðir hennar var Bragi Ólafsson f. 18.11.1903 - 19.12.1983, læknir Eyrarbakka og aðstoðar borgarlæknir Reykjavík.
        K. 2 var Olga Þórarinsdóttir, f. 11.1. 1924, d. 30.7. 1967 hjúkrunarkona. Foreldrar hennar voru Þórarinn Kristjánsson f. 26.10.1906 - 13.8.1988 símritari og Kristín Sigtryggsdóttir húsfreyja. Fósturfor: Páll Kristjánsson og Þóra Guðnadóttir.
        Björn og Olga voru barnlaus en ólu upp
        0) Ólafíu Margréti Karlsdóttur, f. 10.1. 1956, dóttur Steinunnar Dúu og Karls Guðmundar Karlsson f. 17.8.1937.
        K. 3 Kristín Sigurðardóttir, f. 9.5. 1922, d. 21.10. 2001. Foreldrar Kristínar voru Sigurður Jónsson verslunarmaður, f. 16.11. 1891, d. 23.7. 1963, og Sigríður Vilhjálmsdóttir húsfreyja, f. 19.11. 1891, d. 11.11. 1965.
        Börn Björns og Kristínar eru:
        4) Helga, f. 4.11. 1948,
        5) Sigurður, f. 20.1. 1950.
        Kristín átti einnig dótturina
        0) Sigríði Vilhjálms, f. 9.9. 1943.

        General context

        Relationships area

        Related entity

        Guðrún Sveinsdóttir (1890-1978) kennari Sauðárkróki (30.5.1890 - 23.10.1978)

        Identifier of related entity

        HAH04473

        Category of relationship

        family

        Dates of relationship

        Description of relationship

        Móðir Björns var Steinunn Engilráð (1888-1974) systir Margréta (1867-1923) sk Ólafs bróður Guðrúnar

        Related entity

        Guðrún Friðriksdóttir (1841-1920) Njálsstöðum (9.8.1841 - 17.3.1920)

        Identifier of related entity

        HAH04226

        Category of relationship

        family

        Type of relationship

        Guðrún Friðriksdóttir (1841-1920) Njálsstöðum is the grandparent of Björn Marinó Dúason (1916-2009)

        Dates of relationship

        1916

        Description of relationship

        Móðir Björns var Steinunn Engilráð (1888-1974), faðir hennar var Björn Sigurður (1843-1930) bróðir Guðrúnar Önnu

        Access points area

        Subject access points

        Place access points

        Occupations

        Control area

        Authority record identifier

        HAH01142

        Institution identifier

        IS HAH

        Rules and/or conventions used

        Status

        Final

        Level of detail

        Full

        Dates of creation, revision and deletion

        GPJ 13.5.2017

        Language(s)

          Script(s)

            Maintenance notes