Ásthildur Guðrún Gísladóttir (1943-2008)

Identity area

Type of entity

Person

Authorized form of name

Ásthildur Guðrún Gísladóttir (1943-2008)

Parallel form(s) of name

  • Ásthildur Guðrún Königseder (1943-2008)

Standardized form(s) of name according to other rules

    Other form(s) of name

      Identifiers for corporate bodies

      Description area

      Dates of existence

      23.7.1943 - 13.9.2008

      History

      Ásthildur Guðrún Gísladóttir Königseder fæddist í Reykjavík 23. júlí 1943. Hún lést á heimili sínu úr hjartaáfalli 13. september 2008.
      Eldamennska var líf og yndi Ásthildar, og var hún þekkt fyrir hana. Sú náðargjöf sem hún fékk í tengslum við hana var einstök og skipti þá litlu máli hvort um væri að ræða kökur, salöt eða aðra rétti. Það er ekki ofsögum sagt að hún hafi verið frumkvöðull hér á landi í tengslum við pastarétti, enda fylgdist hún vel með erlendum straumum í matreiðslu. Hún átti heilan bókaskáp af kokkabókum víðsvegar að úr heiminum. Hún var örlát og mikil selskapsmanneskja.
      Ásthildur verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík í dag 29. sept. 2008 og hefst athöfnin klukkan 15.

      Places

      Reykjavík. Austurríki.

      Legal status

      Functions, occupations and activities

      Á yngri árum starfaði Ásthildur við ýmis skrifstofustörf, meðal annars hjá RARIK, læknastofum og dagblaðinu Mynd sem var útgefið í nokkra mánuði. Var mynd af Ásthildi á forsíðu fyrsta tölublaðs þess, enda var hún glæsileg kona. Á seinni árum vann hún lengi við afgreiðslustörf og rekstur verslunar hjá Rauða krossi Íslands, aðallega á Landspítalanum, en einnig við matreiðslu í mötuneytum og sem aðstoðarmanneskja á tannlæknastofu.

      Mandates/sources of authority

      Internal structures/genealogy

      Hún var dóttir hjónanna Gísla Hanssonar, f. 22.7. 1900, d. 30.5. 1948, Verkamaður á Hverfisgötu 88 b, Reykjavík 1930. Bóndi í Fitjakoti, bifreiðastjóri og síðar sunlaugarvörður í Reykjavík og Guðrúnar Þórðardóttur, f. 25.2. 1903, d. 14.7. 1963. Var í Reykjavík 1910. Húsfreyja á Hverfisgötu 88 b, Reykjavík 1930. Húsfreyja í Reykjavík 1945.
      Ásthildur var yngst fjögurra systkina. Hin eru
      1) Þórður, f. 24.1. 1929, d. 18.9. 1980, Var á Hverfisgötu 88 b, Reykjavík 1930. Nemi í Reykjavík 1945. Húsasmiður og sveitastjóri, síðast bús. í Gerðahreppi.
      2) Þóra Gísladóttir f. 22. ágúst 1932 - 20. júlí 2013 Var í Reykjavík 1945.
      3) Auður Gísladóttir Henttinen f. 15. nóvember 1934 - 9. febrúar 2014 Var í Reykjavík 1945.
      Fyrri eiginmaður Ásthildar var Ólafur Franz Mixa f. 16. október 1939 foreldrar hans voru: Franz Mixa f. 3. júní 1902 - 16. janúar 1994. Flutti til Reykjavíkur 1929. Kennari og hljómsveitarstjóri á Bárugötu 16, Reykjavík 1930. Kenndi píanóleik, tónsmíðar og fleira í Reykjavík til 1938. Tónskáld. Síðar professor í Graz í Austurríki. Foreldrar: Josef Franz Mixa, málarameistari í Vín, f. 13.2.1871 og Adelheid Mixa, f. Leipert, f. 22.10.1876. Móðir Ólafs Mixa var Katrín Ólafsdóttir Hjaltested f. 3. mars 1916 - 28. desember 2009. Stud. art á Fjólugötu 7, Reykjavík 1930. Húsfreyja í Reykjavík 1945. Skrifstofustarfsmaður og skrifstofustjóri, kennari og rithöfundur í Reykjavík.
      Börn þeirra eru tvö:
      1) Már Wolfgang Mixa, f. 6.2. 1965, kvæntur Kristínu Loftsdóttur, f. 28.10. 1968. Börn þeirra eru Mímir, f. 26.1. 2003, og tvíburarnir Alexía og Sól, f. 24.1. 2006.
      2) Halla Guðrún Mixa, f. 27.7. 1968.
      Seinni eiginmaður Ásthildar var Jörg Hermann Königseder og bjuggu þau í Austurríki.
      Þau eignuðust eitt barn,
      2) Jörg Albert Königseder, f. 2.3. 1978, í sambúð með Mirijam Wolfgruber.
      Sambýlismaður hennar til margra ára var Steinar Guðmundsson.
      Síðasta ár ævi sinnar var hún í sambúð með Sigurði Kjartani Brynjólfssyni f. 5. nóvember 1942 - 2. september 2008. heildsali á Seltjarnarnesi, sem lést skömmu á undan henni

      General context

      Relationships area

      Related entity

      Björn Ólafsson (1917-1984) (26.2.1917 - 31.3.1984)

      Identifier of related entity

      HAH02880

      Category of relationship

      family

      Dates of relationship

      Description of relationship

      Fyrri maður Ásthildar var Franz Mixa, en seinni kona hans var Katrín Ólafsdóttir Hjaltested systir Björns Ólafssonar

      Access points area

      Subject access points

      Place access points

      Occupations

      Control area

      Authority record identifier

      HAH01092

      Institution identifier

      IS HAH

      Rules and/or conventions used

      Status

      Final

      Level of detail

      Full

      Dates of creation, revision and deletion

      GPJ 13.5.2017

      Language(s)

      • Icelandic

      Script(s)

        Maintenance notes