Ásgeir Gíslason (1920-1972) bifreiðastjóri hjá Norðurleið

Identity area

Type of entity

Person

Authorized form of name

Ásgeir Gíslason (1920-1972) bifreiðastjóri hjá Norðurleið

Parallel form(s) of name

  • Ásgeir Héðinn Gíslason (1920-1972) bifreiðastjóri hjá Norðurleið

  • Ásgeir Héðinn Gíslason bifreiðastjóri hjá Norðurleið

Standardized form(s) of name according to other rules

    Other form(s) of name

      Identifiers for corporate bodies

      Description area

      Dates of existence

      21.9.1920 - 23.8.1972

      History

      Ásgeir Héðinn Gíslason 21. sept. 1920 - 23. ágúst 1972. Var í Reykjavík 1930. Síðast bús. í Reykjavík. Einn af stofnendum Norðurleiða, síðar bifreiðastjóri hjá BSR.
      Bíllinn er af Reo Speedwagon 1947

      Places

      Reykjavík;

      Legal status

      Bifreiðastjóri:

      Functions, occupations and activities

      „Í síðustu viku lagði heljar dómur dauðans fagurgerðan mannlegan hlyn til hinztu hvílu, Ásgeir Gíslason bifreiðastjóra á B.S.R. Vissulega kom engum, sem til þekkti, fráfall hans á óvart, því hann háði vonlausa sjúkdómsbaráttu síðustu mánuðina. Snemma á þessu ári var gerð á honum höfuðaðgerð, en sjúkdómurinn var þess eðlis, að hvorki lærdómur, þekking eða mannlegar læknishendur fengu rönd við reist. Ásgeir var mjög gjörvulegur maður, stór og sterkur og samsvaraði sér vel, svipurinn hreinn og þýður, skemmtilegt sambland af karlmannlegri fegurð og myndarskap. Drengskapur, einlægni og góður vilji leyndi sér ekki í svip eða framkomu.“

      „Þegar fyrirtækið „Norðurleið" var stofnað og tók að sér sérleyfið Reykjavik-Akureyri, gerðist hann hluthafi þar, og stundaði akstur á þessari sérleyfisleið um nokkura ára skeið. Komu þá fyrrgreindir hæfileikar hans að góðum notum. Á þessum árum lenti hann að vetralagi i bílslysi við Giljá i Húnaþingi. Í þessu slysi brákaðist hann i baki og átti lengi við þrautir og vanheilsu að stríða og grunur minn er sá, að frá þeirri stundu hafi hann ekki gengið heill til skógar.“

      „Hann var góður söngmaður og söng með Karlakór B.S.R. í nokkur ár. Söngfélagar hans hafa beðið mig að flytja honum beztu þakkir fyrir söng hans og starfsemi í þágu kórsins. Ásgeir var vinsæll og vinmargur á vinnustað, átti fáa eða enga andstæðinga. Þó hafði hann ákveðnar skoðanir á þjóðmálum og félagsmálum og hvikaði ekki frá því, sem hann áleit að væri rétt þó fast væri deilt.“

      Jakob Þorsteinsson. Íslendingaþættir Tímans, 15. tölublað (21.09.1972), Blaðsíða 4-5. http://timarit.is/view_page_init.jsp?pageId=3572129

      Mandates/sources of authority

      Internal structures/genealogy

      Foreldrar hans; Gísli Einarsson 5. nóv. 1883 - 9. júlí 1931. Var á Kleppi í Reykjavík 1890. Verkamaður í Reykjavík og umsjónarmaður bæjarhesthúss Reykjavíkur á Hlemmi og kona hans Ólöf Ásgeirsdóttir 26. ágúst 1883 - 8. des. 1964. Húsfreyja í Reykjavík.

      Systkini Ásgeirs;
      1) Sigríður Ása Gísladóttir 21. mars 1911 - 10. maí 1990. Húsfreyja, síðast bús. í Reykjavík.
      2) Guðrún Gísladóttir 4. sept. 1915 - 2. mars 1980. Húsfreyja í Reykjavík. Sjúklingur á Suðurpóli III við Laufásveg, Reykjavík 1930.
      3) Einar Jón Gíslason 11. sept. 1918 - 19. feb. 2006. Bifreiðastjóri og síðar starfmaður Áburðarverksmiðju ríkisins, síðast bús. í Reykjavík. Kona hans 8.4.1944; Guðlaug Sigurjónsdóttir, f. 11.8. 1921. Foreldrar hennar voru Guðlaug Gísladóttir og Sigurjón Á. Ólafsson.
      4) Gyða Gísladóttir 2. sept. 1924. Var á Suðurpóli III við Laufásveg, Reykjavík 1930. Húsfreyja í Reykjavík 1945.

      Kona hans: Guðrún Marsveinsdóttir 6. feb. 1930 - 26. sept. 1988. Síðast bús. í Reykjavík. Hún lést úr heilablóðfalli á heimili sínu 26. september 1988.
      Dætur þeirra;
      1) Sólveig Sigurbjörg Ásgeirsdóttir 26.4.1948
      2) Ólöf Ásgeirsdóttir 23.9.1951
      3) Guðrún Ásgeirsdóttir 7.11.1956

      General context

      Relationships area

      Access points area

      Subject access points

      Place access points

      Occupations

      Control area

      Authority record identifier

      HAH03627

      Institution identifier

      IS HAH

      Rules and/or conventions used

      Status

      Final

      Level of detail

      Full

      Dates of creation, revision and deletion

      GPJ 6.10.2019

      Language(s)

      • Icelandic

      Script(s)

        Sources

        ®GPJ ættfræði
        Jakob Þorsteinsson. Íslendingaþættir Tímans, 15. tölublað (21.09.1972), Blaðsíða 4-5. http://timarit.is/view_page_init.jsp?pageId=3572129 https://www.mbl.is/greinasafn/grein/1071754/?item_num=13&searchid=605d95b4739c8cd3d89b8dea822f514a2ffce452

        Maintenance notes