Auðkenni
Tegund einingar
Einstaklingur
Leyfileg nafnaform
Arnljótur Ólafsson Pétursson (1913-1973)
Hliðstæð nafnaform
- Arnljótur Pétursson (1913-1973)
- Arnljótur Ólafsson (1913-1973)
- Arnljótur Ólafsson Pétursson
Staðlað form nafns/nafna samkvæmt öðrum reglum
Aðrar nafnmyndir
Auðkenni fyrir stofnanir
Lýsing
Fæðingar- og dánarár
27.3.1913 - 19.3.1973
Saga
Arnljótur Ólafsson Pétursson 27. mars 1913 - 19. mars 1973. Bifreiðastjóri, síðast bús. á Seltjarnarnesi. Var á Öxnhóli, Bægisársókn, Eyj. 1930
Hann var fóstursonur Halldórs G Ólafssonar bónda í Selhaga (Stafni 1920) og Sólveigar Guðmundsdóttur
Staðir
Stafn 1920: Selhagi: Öxnhóll í Öxnadal 1930:
Réttindi
Starfssvið
Lagaheimild
Innri uppbygging/ættfræði
Foreldrar hans voru; Fanney Þorsteinsdóttir 21. september 1885 - 4. júlí 1981. Húsfreyja í Krossanesi. Ráðskona í Hvammi í Laxárdal, Hvammssókn, Skag. 1930.
Presturinn skrifaði nafnið Fanný í prestþjónustubókina við skírn hennar. Og maður hennar Pétur Lilji Magnússon 15. febrúar 1883 - 8. júní 1920. Var í Efstasamtúni, Lögmannshlíðarsókn, Eyj. 1890. Bóndi í Krossanesi í Vallhólmi, Skag. Drukknaði í Norðurá. Þegar skírn hans er færð í prestþjónustubók frá Bægisá er nafnið skrifað ,,Pétur Lili„.
Systkini Arnljóts;
1) Þorsteinn Magnús Steindór Pétursson 31. desember 1905 - 19. ágúst 1975 Lausamaður á Hala, Oddasókn, Rang. 1930. Útgerðarmaður í Keflavík. Kjörsonur Jón Axel Steindórsson.
2) Jóhanna Rannveig Pétursdóttir 11. júní 1909 - 24. mars 1993 Vinnukona í Vatnskoti, Rípursókn, Skag. 1930. Húsfreyja á Sauðárkróki.
Kona hans var Þorgerðar Sigurbjargar Einarsdóttur, f. 20. ágúst 1895, d. 23. ágúst 1982.
Börn hennar með fyrri manni Guðmundi Júlíusi Jónssyni, f. 11. júlí 1894 á Melstað í Reykjavík, d. 15. júní 1931
1) Sigurjón Hólmfreð Karel, f. 28. júlí 1917, d. 30. júlí 1968. Kona hans var Þórey Pétursdóttir, nú látin.
2) Jóhann Stefán, f. 26. janúar 1921. Kona hans er Ingigerður Helgadóttir.
3) Svavar, f. 15. ágúst 1930. Sambýliskona hans var Ósk Kristjánsdóttir, nú látin.
Almennt samhengi
Tengdar einingar
Access points area
Efnisorð
Staðir
Occupations
Stjórnsvæði
Authority record identifier
Kennimark stofnunar
IS HAH
Reglur eða aðferð sem stuðst er við
Staða
Loka
Skráningarstaða
Fullt
Skráningardagsetning
GPJ 6.11.2017
Tungumál
- íslenska
Leturgerð(ir)
Heimildir
®GPJ ættfræði