Agatha Kristjánsdóttir (1935). Listmálari Kópavogi

Identity area

Type of entity

Person

Authorized form of name

Agatha Kristjánsdóttir (1935). Listmálari Kópavogi

Parallel form(s) of name

  • Agatha K. Kristjánsdóttir (1935)

  • Agatha K. Kristjánsdóttir

Standardized form(s) of name according to other rules

    Other form(s) of name

      Identifiers for corporate bodies

      Description area

      Dates of existence

      31.7.1935 -

      History

      Agatha K. Kristjánsdóttir 31. júlí 1935. Listmálari Kópavogi.

      Places

      Reykjavík

      Legal status

      Kvsk á Blönduósi 1955

      Functions, occupations and activities

      Hún hefur stundað myndlist í átta ár og á þeim tíma verið í Myndlistaklúbbi Háaleitis, svo og sótt ýmis námskeið. Hún hefur ferðast mikið og sótt sýningar og söfn. Einnig hefur Agatha stundað nám í píanóleik.

      Mandates/sources of authority

      Í landslagsmyndum Agöthu, sem eru áhugaverðasti hluti sýningarinnar, er hvergi að finna hvassar línur, heldur er það mýkt litarins og breiðar pensilstrokur sem marka sýn hennar á landið. Litasamsetningar eru oft nokkuð sérstakar, og koma á óvart fyrir að ganga ágætlega upp, eins og t.d. í „Botnssúlur" (nr. 1) og „Vífilfell" (nr. 6), þar sem bljúgar línur gera landið mýkra og hlýlegra en ella. Þessi mýkt er ráðandi afl í öllum landslagsmyndum sýningarinnar, og tengjast þannig ákveðinni draumsýn, sem síðan kemur fram með öðrum hætti í þeim verkum sem listakonan nefnir „Fantasía" (nr. 7, 16-18); þar má sjá huldufólk og vætti, sem byggja landið, og vísa sterklega til þjóðtrúar landsmanna. Það þarf nokkurn kjark til að sýna verk sín á opinberum vettvangi og ekki of mikið um að áhugafólk í myndlistinni láti verða af því. Það er sterkur heildarsvipur á þeirri listsköpun sem Agatha sýnir hér og ánægjan af henni fyrir hvern listamann felst væntanlega ekki síst í því að kynna verk sín öðrum, eins og hér er gert.
      Eiríkur Þorláksson

      Internal structures/genealogy

      Foreldrar hennar: Kristján Friðrik Guðmundsson 14. júní 1909 - 16. maí 1999. Listaverkasali. Var í Reykjavík 1910. Bóndi á Ljótsstöðum, Hofssókn, N-Múl. 1930. Forstjóri og verslunarstjóri og kona hans; Anna Sigríður Sigurjónsdóttir 6. ágúst 1914 - 3. sept. 1975. Var á Vopnafirði 1930. Húsfreyja í Reykjavík 1945. Síðast bús. í Reykjavík.

      Bræður Agöthu;
      1) Birgir Kristjánsson, f. 4. ágúst 1932 - 30. maí 2017. Starfaði lengst af í Húsasmiðjunni. Síðast bús. í Hveragerði. Kona hans Elín Ellertsdóttir;
      2) Bóas Kristjánsson f. 10. apríl 1937, kvæntur Ragnhildi Kristjánsdóttur;
      3) Sigurjón Kristjánsson f. 25. júní 1941, kvæntur Mattínu Sigurðardóttur;
      4) Friðfinnur Kristjánsson f. 26. júní 1942, kvæntur Þórunni Ólafsdóttur.

      Mánudaginn 11.5.1953 opinberuðu trúlofun sína ungfrú Agatha Kristjánsdóttir, Langholtsveg 34 og Kristján Halldórsson, sjóm., Grundarstíg 8, Reykjavík.

      General context

      Telpa verður fyrir bíl.
      Í fyrradag ók bifreið norður Barónsstíginn og við gatnamót Grettisgötu og Barónsstígs ók hún fram hjá annari bifreið sem stóð á görunni. Í sama bili hljóp lítil telpa fyrir bifreiðina og sá bílstjórinn hana ekki vegna bifreiðarinnar sem stóð á götunni. Lenti telpan á bifreið inni nálægt afturhjólunum, féll í götuna og skrámaðist nokkuð á andliti. Bílstjórinn ók telpunni þegar á Landsspítalann og svo heim aftur er læknisaðgerð hafði farið fram. Telpan er þriggja ára og heitir Agatha Kristjánsdóttir og á heima á Njálsgötu 72.
      Þjóðviljinn, 221. tölublað (24.09.1938), Blaðsíða 2. http://timarit.is/view_page_init.jsp?pageId=2735338

      Relationships area

      Related entity

      Kvennaskólinn á Blönduósi 1951-1960 (1951 - 1960)

      Identifier of related entity

      HAH00115 -51-60

      Category of relationship

      associative

      Type of relationship

      Kvennaskólinn á Blönduósi 1951-1960 is the associate of Agatha Kristjánsdóttir (1935). Listmálari Kópavogi

      Dates of relationship

      1954-1955

      Description of relationship

      nemandi þar 1954-1955

      Access points area

      Subject access points

      Place access points

      Occupations

      Control area

      Authority record identifier

      HAH05115

      Institution identifier

      IS HAH

      Rules and/or conventions used

      Status

      Final

      Level of detail

      Full

      Dates of creation, revision and deletion

      GPJ 27.9.2019

      Language(s)

      • Icelandic

      Script(s)

        Sources

        ®GPJ ættfræði
        Morgunblaðið, 208. tölublað (14.09.1994), Blaðsíða 20. http://timarit.is/view_page_init.jsp?pageId=1813653

        Morgunblaðið, 106. tölublað (13.05.1953), Blaðsíða 4. http://timarit.is/view_page_init.jsp?pageId=1289346

        Morgunblaðið, 139. tölublað (24.06.1999), Blaðsíða 39. http://timarit.is/view_page_init.jsp?pageId=1938750

        Maintenance notes